top of page
Search


Birki og beit
Af þeim löndum sem við helst miðum okkur við er Ísland meðal þeirra sem hafa einna minnstu skógarþekju, enda er landið með skógarsnauðustu löndum í heimi. Aðeins um 2% landsins er vaxið skógi eða kjarri. Þar af vex birki á 1,5% landsins. Í þeirri tölu eru bæði birkiskógar og birkikjarr sem er það lágvaxið að það telst ekki til skóga samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum. Rétt er að nefna að birki er sú trjátegund sem mest er plantað af á Íslandi þessi misserin. Því er bæði plantað þa
Sigurður Arnarson
6 hours ago21 min read


Gróður á lóðarmörkum
„Það væri gaman að fá pistil um gróður sem skjól í görðum, t.d. á lóðarmörkum, hvaða tegundir henta hvar, blöndun á t.d. há- og lággróðri. Það er svo mikið um víggirðingu garða með skjólveggjum þar sem gróður væri heppilegri og jafnvel auðveldari í hirðingu en tréverkið.“ Þessi orð eru rituð af Maríu Rut Dýrfjörð eftir að hún hafði svarað getraun rétt á Facebooksíðu Skógræktarfélagsins. Í verðlaun fékk hún að stinga upp á umfjöllunarefni fyrir tré vikunnar. Okkur þykir efnið
Sigurður Arnarson
Mar 1117 min read


Þróun skógarbotnsins
Víðast hvar á Íslandi ber landið glögg merki þess að hér hefur fólk búið í meira en ellefu hundruð ár án þess að gera sér að fullu grein fyrir því hvað landið þyldi. Fólkið kom að skógivöxnu landi og hóf þegar að höggva trén í ýmsum tilgangi. Það gat nýtt timbrið á fjölbreyttan hátt, til dæmis til smíða og kolagerðar, en einnig þurfti að rýma fyrir ræktun gróðurs og búfjár. Sjálfsagt hafa landnemarnir talið að af nægu væri að taka enda telja fræðingar að þá hafi um 25-40% lan
Sigurður Arnarson
Mar 421 min read


Runnkennt elri til landgræðslu - Seinni hluti: Tegundir
Í norðurhluta Evrópu, Ameríku, Asíu og í fjöllum sunnar í sömu álfum vex elri sem oftast myndar kjarr frekar en skóg. Nú er mest af því flokkað sem ein safntegund. Þetta runnkennda elri vex gjarnan við skógarmörk og getur lifað og vaxið við skilyrði sem reynast öðrum tegundum trjáa og runna strembin. Um þetta fjölluðum við í fyrri hluta þessa pistils sem lesa má hér . Í þeim pistli lofuðum við að fjalla nánar um mismunandi hópa þessa elris. Hér kemur sú umfjöllun. Myndarlegt
Sigurður Arnarson
Jan 1420 min read


Saga elris
Fyrir fáeinum vikum birtum við pistil um hina ágætu elriættkvísl. Tegundir af þeirri ættkvísl eru gagnlegar í skógrækt, garðyrkju, landgræðslu og sem götutré. Nú höldum við áfram að segja frá þessari ættkvísl sem rækta mætti mun meira en nú er gert. Í þessum pistli fjöllum við um ættina og ættkvíslina sem elrið tilheyrir og segjum aðeins frá náttúrusögu ættkvíslarinnar. Við segjum einnig frá erfðaflæði innan ættkvíslarinnar og frá ýmsu smálegu. Flestar elritegundir, eins og þ
Sigurður Arnarson
Oct 1, 202517 min read


Geislasópur
Almennt má skipta trjám og runnum í annars vegar sígræn og hins vegar lauffellandi. Svo verða alltaf til einhverjar undantekningar sem passa ekki alveg í annan hvorn hópinn. Eins og stundum áður leyfum við runnum að fljóta með þegar við fjöllum um #TrévikunnarSE. Að þessu sinni veljum við sígrænan OG lauffellandi runna. Þetta er geislasópur ( Cytisus purgans) sem einmitt núna er svo víða í fullum blóma á Akureyri og sjálfsagt víðar. Hann hefur grænar greinar allt árið og getu
Sigurður Arnarson
Jun 17, 20212 min read


Töfratré
Á þessum árstíma er lífríkið allt að vakna til lífsins, svona smám saman. Eitt af því sem gleður augað á þessum árstíma er töfratré eða Daphne mezerum eins og það er kallað á máli grasafræðinnar. Töfratré blómstrar ljómandi fallega, eins og sjá má. Það blómstrar fyrir lafugun þannig að blómin eru mjög áberandi. Á haustin myndar tegundin rauð aldin sem eru eitruð. Sagt er að 10-12 ber geti verið banvæn fyrir fullorðið fólk. Því er rétt að planta ekki töfratrjám þar sem óvitar

Sigurður Arnarson
Apr 30, 20202 min read


Meyjarrós - Stórasta tré í heimi 😉
Í síðasta trjápistli var fjallað um Grasvíði og vakti fyrirsögnin "Minnsta trjátegund landsins" nokkra athygli. Leiddu flestir,og jafnvel höfundurinn sjálfur, líkur að því að senniilega er smjörlaufinu góða ekki heimilt að kalla sig tré þótt trjákennt sé. Áður en við byrjum aftur að fjalla um "réttborin tré" ætlum við að vekja athygli á öðrum runna, heldur stórgerðari, þe Meyjarrós. Hún blómstraði snemma hér norðanlands, hefur verið áberandi undanfarnar vikur og er enn að.

Ingólfur Jóhannsson
Jul 31, 20192 min read


Minnsta trjátegund landsins?
Á Íslandi teljast fjórar víðitegundir innlendar. Að auki finnast hér slæðingar sem sá sér auðveldlega í náttúrunnu s.s. alaskavíðir, jörfavíðir, viðja, selja o.fl. Af þessum fjórum íslensku víðitegundum er aðeins eitt sem stundum getur gert kröfu til að teljast tré. Það er gulvíðir. Oftast er hann þó runni. Hinar þrjár tegundirnar eru loðvíðir, fjallavíðir (einnig nefndur grávíðir) og smjörlauf eða grasvíðir. Sú síðast talda er að jafnaði minnst þessara tegunda. Það er jafnve

Sigurður Arnarson
Jul 24, 20192 min read


Kergi
#TrévikunnarSE í þetta skiptið er af sömu ætt og tré síðustu viku. Það kallast kergi eða garðakergi og er einnig nefnt síberískt baunatré. Fræðiheitið er Caragana arborescens . Til eru um 50-80 tegundir af þessari ættkvísl og hafa sumar þeirra verið reyndar hér á landi en engin þeirra er mikið ræktuð. Mest er þó ræktað af garðakerginu. Það hefur meiri útbreiðslu á heimsvísu en aðrar tegundir ættkvíslarinnar og er breytilegra upp af fræi. Það er að auki hávaxnasta tegundin in

Sigurður Arnarson
Jul 10, 20192 min read


Koparreynir
Að þessu sinni er koparreynir #TrévikunnarSE . Koparreynir stendur nú í blóma hér og þar í bænum. Blómin eru í hvítum sveip og síðar koma ber sem einnig eru hvít. Lengi vel virtust þrestir og aðrar berjaætur ekki átta sig á því á Íslandi að hvít ber eru líka æt. Þá stóðu ber koparreynis oft á runnunum langt fram eftir vetri. Hin síðari ár hefur þetta breyst og þrestir éta berin með bestu lyst. Koparreynir fær gjarnan fallega koparlitaða haustliti og ber af því nafn sitt. Það

Sigurður Arnarson
Jun 26, 20192 min read


Heggur
Trjátegundir eru misjafnlega áberandi eftir árstímum. Sumar fara í fagra haustliti en eru e.t.v. ekki áberandi á öðrum árstímum. Sama á við um tegundir sem blómgast fallega í fremur stuttan tíma. Ein þeirra tegunda sem hefur verið hvað mest áberandi síðustu vikuna er ein af þeim sem fyllir seinni hópinn. Það er heggur, Prunus padus, og er hann #TrévikunnarSE. Heggur er lauffellandi tré eða runni sem hefur lengi verið í garðrækt á Íslandi. Hann má einnig sjá sem skraut í jöðru

Sigurður Arnarson
May 29, 20192 min read
bottom of page
