top of page
Search


Oddeyrargötuöspin og hæðarmælingar trjáa
Sigurður Arnarson Bergsveinn Þórsson Við Oddeyrargötu 12 á Akureyri stendur glæsileg ösp. Hún gerir tilkall til að teljast hæsta lauftré á Akureyri. Að minnsta kosti vitum við ekki um hærra lauftré. Aftur á móti vitum við um sitkagrenitré sem sennilega er enn hærra. Í þessum pistli fjöllum við almennt um trjámælingar og þessa stóru ösp. Það er ekki á hverjum degi sem við birtum svona bláar myndir. Fyrir miðri mynd er Oddeyrargöturisinn. Mynd: Sig.A. Hæsta tré á Akureyri? Skóg
Sigurður Arnarson
May 22, 202411 min read


Hvað kom fyrir aspirnar?
Glöggir trjá- náttúruunnendur hafa eflaust tekið eftir því að í upphafi sumars eru sumar aspir í bænum nánast alveg lauflausar. Svo virðist sem eitthvað hafi orðið til þess að tilteknir klónar alaskaaspa líta mjög illa út. Aðrir klónar hafa alveg sloppið og eru ljómandi fallegir. Því vaknar þessi spurning: Hvað kom fyrir aspirnar? Skjólbelti við kirkjugarðinn er dálítið skellótt. Sumir klónar í góðu standi, aðrir lauflausir eða því sem næst. Mynd: Sig.A. Tegundir og klónar As
Sigurður Arnarson
Jun 14, 202313 min read


Blæöspin í Grundarreit og uppgangur myndlistar
Árið 1899 hófst gróðursetning í svokallaðan Furulund á Þingvöllum. Markar sá reitur ákveðið upphaf skipulagðrar gróðursetningar á Íslandi eins og flestir vita. Færri vita að Furulundurinn á sér systurreit norður í Eyjafirði. Stafar þessi almenna vankunnátta sennilega af meðfæddu lítillæti Eyfirðinga sem eru ekkert að blása upp svona merkilegar staðreyndir. Líta má á þessa tvo reiti sem fyrstu tilraunir til endurreisnar skóga á Íslandi. Á sínum tíma voru gróðursettar blæaspir
Sigurður Arnarson
Mar 1, 20237 min read


Landnám blæaspa
Það er engum blöðum um það að fletta, hvorki laufblöðum né öðrum blöðum, að ásýnd Íslands var ekki sú sama við landnám og nú er. Landið var allt betur gróið og 25-40% landsins var skógi vaxið. Undraskamman tíma tók forfeður okkar að breyta þessari ásýnd. Skógum var miskunnarlaust eytt og landgæðum hnignaði. Af þeim trjátegundum sem talið er að hafi verið hér við landnám tókst næstum að útrýma einni en ekki alveg. Þetta er tegundin blæösp eða Populus tremula . Í þessum pistli
Sigurður Arnarson
Jan 18, 202314 min read


Leyndardómur Garðsárgils
Blæösp er ein þeirra fáu trjátegunda sem talið er að hafi vaxið á Íslandi við landnám. Hér í Eyjafirði eru vel þekktar blæaspir á tveimur stöðum. Annars vegar í Grundarreit og hins vegar í Vaðlareit eða Vaðlaskógi. Færri vita að til eru sagnir um að á síðustu öld hafi hún fundist á einum stað til viðbótar. Getur verið að í gilinu leynist blæösp? Mynd: Sig.A. Almennt um blæaspir Blæaspir eru taldar með mest útbreiddu trjátegundum í heimi. Vestasti útbreiðslustaður hennar er á
Sigurður Arnarson
Nov 9, 20224 min read


Leynigestur í Vaðlaskógi
Tilvera blæaspa, Populus tremula, á Íslandi er ein mesta ráðgáta íslenskra skóga. Hvergi er tilvera hennar samt meiri ráðgáta en í Vaðlaskógi eða Vaðlareit þar sem hún vex og dafnar í landi Halllands. Hvenær kom hún, eða hefur hún verið þarna alla tíð? Hvaðan kom hún? Hvernig kom hún? Hefur hún íslenskan ríkisborgararétt? Frábær mynd Péturs Halldórssonar af öspinni og Akureyri handan fjarðar. Þessar og álíka spurningar hafa fengið grasafræðinga og áhugafólk um skóg- og trjá
Sigurður Arnarson
Oct 19, 202211 min read


Dularfulla öspin við Bjarmastíg
Við Bjarmastíg á Akureyri stendur gömul ösp. Þetta er engin venjuleg ösp því þetta er sögufrægt tré. Hennar hefur víða verið getið í skræðum í gegnum tíðina en alltaf hefur fylgt henni einhver dulúð. Öspin er ein af þeim trjáplöntum sem eru í litla bæklingnum um merk tré á Akureyri sem gefinn var út í tilefni af 75 ára afmæli Skógræktarfélags Eyfirðinga árið 2005. Bjarmastígsöspin sumarið 2022. Mynd: Sig.A. Elstu heimildir Asparinnar er getið í bókinni Garðagróður frá 1965 o

Helgi Þórsson
Sep 14, 202210 min read


Lystigarðsrandi
Sú trjátegund sem setur hvað mestan svip á Akureyri er alaskaösp. Sumum er vel við hana en öðrum ekki. Þannig er t.d. búið að höggva niður þetta #TrévikunnarSE sem einmitt var alaskaösp. Hún var stakstæð og þannig aspir geta verið alveg sérlega tilkomumiklar. Ein glæsilegasta öspin á Akureyri er alaskaösp í Lystigarðinum. Hún stendur þar stakstæð og fær að njóta sín til fulls. Öspin er af yrki sem kallast ´Randi´ og er víða til í bænum. Nánar má lesa um Randa hér . Þessari t

Sigurður Arnarson
May 19, 20211 min read


'Grænagata'
Í síðustu viku fjölluðum við lítillega um asparklóninn ´Randa´ sem er algengur á Akureyri og auðþekktur. Nú höldum við okkur á sömu slóðum og tökum fyrir annan asparklón sem er í ræktun í bænum og ólíkur öðrum öspum. Það er klónninn ´Grænagata‘ sem við veljum nú sem #TrévikunnarSE. Við Grænugötu 4 hér í bæ er stór og mikil ösp. Hún er vel þekkt meðal ræktunarmanna og kennd við götuna. Í daglegu tali er hún kölluð Grænugötuöspin. Hún er af tegundinni alaskaösp sem lengst af he

Sigurður Arnarson
Feb 24, 20212 min read


Klónar alaskaaspa -´Randi´
Þegar alaskaöspum er fjölgað er það oftast gert með græðlingum. Það merkir að erfðaefni hinna nýju plantna verður nákvæmlega það sama og hjá foreldrinu. Þeir sem eru að fjölga öspum eru því að klóna lífverur. Algengast er að hafa orðið í hvorugkyni (klón) þegar talað er um dýr, en í karlkyni (klónn) þegar talað er um tré. Hver klónn hefur sitt nafn og er það skráð með stórum staf og að jafnaði haft innan einfaldra gæsalappa. Sumir þessara klóna eru auðþekktir hver frá öðrum j

Sigurður Arnarson
Feb 17, 20212 min read


Gráöspin við Brekkugötu 8
Á hverju ári velur Skógræktarfélag Íslands tré ársins á Íslandi. Áður hefur verið fjallað hér um hengibjörkina Frú Margréti í Kjarnaskógi sem eitt sinn hlaut þann titil. Nú er komið að öðrum verðlaunahafa. Það er Gráösp ( Populus x canescens ) sem stendur við Brekkugötu 8. Það var valið tré ársins hjá SÍ árið 2012. Gráösp er blendingur blæaspar ( Populus tremula ) og silfuraspar ( Populus alba ) sem hefur komið fram náttúrulega þar sem útbreiðslusvæði þeirra er liggja saman.
Sigurður Arnarson
Oct 3, 20202 min read


Aspamæður
Sum tré eru tvíkynja. Það merkir að hvert tré er bæði með karl- og kvenkyns æxlunarfæri. Þetta á við um reyni og birki svo dæmi séu nefnd. Önnur tré eru einkynja. Það merkir að hvert tré er annað hvort karlkyns eða kvenkyns. Þannig er því til dæmis farið hjá víðiættinni, en til hennar heyra bæði víðir og aspir. Nú er einmitt sá tími þegar alaskaaspir eru að henda fræjum sínum. Það er nánast eins og það snjói á þurrum dögum og fræin þekja stór svæði og fara víða. Þetta er tilr
Sigurður Arnarson
Jul 30, 20202 min read


Öspin í Garðsárreit
Skógræktarfélagið hefur umsjón með nokkrum skógarreitum í Eyjafirði. Einn þeirra er Garðsárreitur. Stærsta tréð í þeim reit er voldug alaskaösp. Hún er #TrévikunnarSE að þessu sinni. Í leiðinni viljum við minna á skógargöngu í Garðsárreit næstkomandi fimmtudag, þar sem Helgi Þórsson mun sýna okkur skóginn, töfra hans og umhverfi. Fyrsta skógræktarverkefni SE var friðun skógarleifa í Garðsárgili. Birkikjarr hafði þá verið í gilinu frá ómunatíð, enda illkleift mönnum og skepnu
Sigurður Arnarson
Jul 18, 20202 min read


Súlublæösp
Áður hefur verið fjallað um mismunandi asparklóna á Íslandi. Það eru allt saman klónar alaskaaspar ( Populus trichocarpa eða Populus balsamifera ssp. trichocarpa ). Til eru fleiri tegundir aspa í heiminum og nokkrar þeirra þrífast ágætlega á Íslandi en aðrar miður. Súlusvartösp Mest rætkaði asparklónn í heimi (eða klón, ef konur vilja frekar hafa það í hvorugkyni) er svartasparklónninn Populus nigra ´Italica´ . Sumir segja að það sé mest ræktaði trjáklónn í heimi. Formóðir a

Sigurður Arnarson
Sep 25, 20192 min read
bottom of page
