top of page
Search


Hin einmana eik eyðimerkurinnar
Í hinum stóra heimi eru til allskonar tré. Sum eru algeng en önnur eru fágætari. Má sem dæmi nefna að birki verður að teljast algengt, íslenskt tré þótt tegundin þeki aðeins um 1,5% landsins, eða þar um bil. Aftur á móti er blæösp sjaldgæft, íslenskt tré. Hún er samt hreint ekkert sjaldgæf í hinum stóra heimi. Svona er allt afstætt. Við höfum stundum fjallað um tré sem eru sjaldgæf í heiminum. Má nefna sem dæmi pistla um tré sem telja má lifandi steingervinga og finnast aðein
Sigurður Arnarson
Oct 8, 202510 min read


Næfurhlynur. Tegund í útrýmingarhættu
Heimurinn er fullur af allskonar lífi. Athafnir okkar manna eru því miður þannig að mikill fjöldi dýra, sveppa og plantna á undir högg að sækja. Það er beinlínis okkur að kenna að margar tegundir ramba á barmi útrýmingar. Það er svo sem ekkert nýtt að tegundir deyi út. Sennilega hafa hið minnsta 99,9% allra tegunda, sem til hafa verið, horfið af jörðinni. Eftir því sem fleiri aukastöfum er bætt við töluna þeim mun nær erum við réttu svari. Fimm skeið hafa gengið yfir jörðina
Sigurður Arnarson
Feb 26, 202511 min read


Hjartatré - Hjartanlega velkomið aftur
Fyrir 15 milljónum ára var landslag og gróður allt öðruvísi en seinna varð á því landsvæði sem við nú köllum Ísland. Á þeim hluta tertíer var í gangi það jarðsögutímabil sem kallað er míósen. Engar ísaldir höfðu þá mótað landið, grafið dali og firði eða sorfið berg. Atlantshafið var miklu minna en nú er og hugsanlegt er að landbrú frá hinu íslausa Grænlandi þess tíma, yfir Ísland og Færeyjar til Skotlands hafi ekki að fullu verið horfin. Ef marka má steingervinga hefur veðurf
Sigurður Arnarson
Jan 3, 20248 min read


Hið forna, horfna beyki
Í íslenskum jarðlögum frá því fyrir ísöld hafa fundist leifar ýmissa trjáa sem ekki vaxa villtar á landinu í dag. Meðal þeirra trjáa sem fundist hafa eru tré af ættkvísl beykitrjáa eða Fagus spp. Eldri heimildir greina frá því að hér á landi mætti telja allt að sex eða sjö tegundir beykitrjáa á tertíer. Þegar laufblöð núlifandi tegunda eru skoðuð má greina töluverðan fjölbreytileika í útliti. Ekkert bendir sérstaklega til þess að fjölbreytileikinn hafi verið eitthvað minni
Sigurður Arnarson
Apr 12, 202312 min read


Hin séríslenska hlyntegund
Einangrun landsins hefur komið í veg fyrir að allskonar trjágróður, sem að jafnaði þrífst við svipuð veðurfarsskilyrði og hér eru, hafi numið hér land. Halda má því fram að sérstæða íslenskrar flóru sé tegundafábreytni og skortur á fjölbreytni. Samt er það svo að víða um heim eru til afskekktar eyjar sem eru umvafðar fjölbreyttum gróðri. Því dugar einangrunin ekki ein og sér til að útskýra þessa tegundafátækt. Ástæða fátæktarinnar er sú að gróðurfarið á Íslandi er mótað af í
Sigurður Arnarson
Feb 15, 20239 min read


Eikin sem hélt hún væri akasíutré
Út um allan Eyjafjörð eru merkileg tré. Stundum höfum við fjallað um gömul og virðuleg tré sem eru vel þekkt. Sjaldnar höfum við skoðað yngri tré, en það gerum við nú. Á Akureyri eru fjölmörg fræg tré. Flest eru þau úr eldri hverfum borgarinnar en mörg efnileg tré er að finna í yngri görðum. Tré vikunnar að þessu sinni er eik í garðinum við Móasíðu 5a. Núverandi eigendur hússins fluttu þangað árið 2007 og hófu þá þegar að rækta fjölbreyttan gróður við húsið. Þá voru tvö tré í
Sigurður Arnarson
Jul 20, 20224 min read


Álmurinn Sunnuhlíð 10
Vorið 2022 verður sjálfsagt lengi í minnum haft hér fyrir norðan. Önnur eins blómgun í trjám og runnum er svo mikil að elstu menn snarmissa minnið. Ein af þessum trjátegundum sem nú blómstra sem aldrei fyrr er álmur eða Ulmus glabra . Það eru ekkert mjög mörg álmtré á Akureyri en eitt þeirra verður nú fyrir valinu sem #TrévikunnarSE og það af góðri ástæðu. Tréð er algerlega þakið blómum og fræþroski er byrjaður! Álmtré við Sunnulíð. Staðsetning Gatan Sunnuhlíð liggur beint up
Sigurður Arnarson
Jun 20, 20222 min read
bottom of page
