Samanburður broddhlyns og garðahlyns
Björgvin Steindórsson var forstöðumaður Lystigarðs Akureyrar frá 1997 og þar til hann lést eftir erfið veikindi aðeins 61 árs að aldri árið 2016. Björgvin var alltaf í vinnunni og arfleifð hans lifir í garðinum. Björgvin tók fjölda mynda af trjám og allskonar gróðri á ferðalögum sínum heima og í útlöndum, í Lystigarðinum og í eigin garði. Fyrir andlát sitt merkti hann flestar myndirnar og flokkaði. Ekkja hans, Anna Rebekka Hermannsdóttir, hefur veitt okkur aðgang að þessu stóra myndasafni sem við lítum á sem mikinn fjársjóð. Í safninu er einnig að finna stuttar lýsingar á mörgum ættkvíslum og tegundum sem Björgvin hafði skráð hjá sér. Þessi pistill byggir að mestu á einu slíku skjali. Þar ber hann saman þær tvær tegundir hlyntrjáa sem mest eru ræktaðar á Íslandi. Aðrar tegundir ættkvíslarinnar sem hér eru ræktaðar teljast frekar til runna en trjáa þótt það kunni að breytast í framtíðinni. Okkur er sérstök ánægja af að birta þessar athugasemdir til að auðvelda almenningi að bera tegundirnar saman. Við höfum bætt við smávægilegum upplýsingum án þess að við hirðum um að geta hvað sé frá honum komið og hvað frá okkur. Meirihlutinn er þó frá honum kominn. Hitt er bara til uppfyllingar.
Mörg yrki eru ræktuð af broddhlyni. Hér eru það 'Crimson King' í haustlitum og 'Drummondii' með sín tvílitu blöð. Hvorug myndin er tekin á Íslandi. Myndir: Björgvin Steindórsson.
Tegundirnar
Tegundirnar tvær sem um ræðir eru garðahlynur, Acer pseudoplatanus L., og broddhlynur, A. platanoides L. Tegundirnar eiga sitthvað sameiginlegt. Fyrir það fyrsta má nefna að allar hlyntegundir hafa gagnstæð blöð. Blöðin á báðum tegundum minna á lauf platanviða, Platanus, og bera báðar fræðiheiti sem vísa í það. Pseudoplatanus er sett saman úr orðunum pseudo og platanus. Hið fyrra merkir gervi, falskur, plat eða eitthvað slíkt. Því merkir fræðiheitið gerviplatanviður, platplatan, eða eitthvað álíka.

Platanoides vísar einnig í platanviði. Viðskeytið er notað yfir eitthvað sem er líkt. Fræðiheitið getur því merkt platanlíki.
Annað sem tegundirnar eiga sameiginlegt er að það var hinn sænski grasafræðingur Carl von Linné (1707 – 1778) sem lýsti tegundunum fyrst af grasafræðilegri nákvæmni og gaf þeim nöfn. Þess vegna er bókstafinn L. að finna á eftir fræðiheitunum. Nöfnin og lýsingarnar birti hann í tímamótaverki sínu Species Plantarum árið 1753. Í sama riti nefndi hann sjö aðrar hlyntegundir á nafn en kenndi enga þeirra við platanvið. Ef til vill sýnir það okkur hversu líkar þessar tegundir geta verið.

Enn er ónefnt að tegundirnar eru báðar evrópskar. Garðahlynur vex í miðhluta álfunnar og oft til fjalla. Broddhlynur vex á svipuðum slóðum en einnig norðar. Hann er miklu algengari á Norðurlöndum en þar telst garðahlynur innfluttur slæðingur.
Tvö kort af fjölfræðivef Wikipediu. Það fyrra sýnir útbreiðslu garðahlyns en hið síðara broddhlyns. Grænt merkir hvar talið er að tegundin sé náttúruleg en gulbrúnt sýnir hvar tegundirnar eru taldar til slæðinga. Sjá má að broddhlynur er norðlægari en garðahlynur.

Báðar geta tegundirnar orðið mjög gamlar. Broddhlynur verður vanalega um 250 ára gamall en garðahlynur getur orðið allt að 500 ára. Báðar tegundirnar geta myndað stór og stæðileg tré með breiða krónu og til eru yrki af báðum tegundum sem hafa rauðleit blöð. Báðar tegundir mynda dæmigerð vængjuð hnot eins og aðrar hlyntegundir en munur er á hornunum sem vængirnir mynda.
Báðar tegundirnar hafa dæmigerð fræ fyrir ættkvíslina en hornin sem vængirnir mynda eru mismunandi. Fyrri myndin sýnir garðahlyn með hvasst horn en sú seinni broddhlyn með mun gleiðara horn. Myndir: Björgvin Steindórsson.
Samanburður
Hér að neðan eru helstu greiningaratriði sett í töflu sem byggir á upplýsingum Björgvins Steindórssonar. Sumt kemst þó illa í hana og frá því segjum við í megintexta. Báðar tegundirnar geta farið illa út úr haustkali. Broddhlynur er þó miklu viðkvæmari fyrir því en garðahlynurinn þótt hann vaxi að jafnaði norðar. Að auki er garðahlynur saltþolnari. Hvoru tveggja gerir það að verkum að broddhlynur er miklu minna ræktaður á Íslandi en garðahlynur. Þar sem sumarið hefur verið að lengjast að undanförnu má vel vera að nú sé orðið auðveldara að rækta broddhlyn en áður.
Þegar tegundirnar eru komnar vel á legg dregur oftast úr hættu á kalskemmdum hjá báðum tegundum.

Eins og við sögðum frá í pistli um ættkvísl hlyntrjáa, sem sjá má hér, er henni skipt upp í deildir. Þessar tvær tegundir tilheyra sitthvorri deildinni og teljast því ekki mjög skyldar. Því kemur ekki á óvart að hvergi er vitað til þess að tegundirnar geti myndað frjóa blendinga. Broddhlynur blómstrar að auki á undan garðahlyn. Það kann að eiga sinn þátt í skorti á blendingum.

Blöð
Eins og kemur fram í töflunni eru blöð broddhlyns meira ydd en blöð garðahlyns. Þess vegna heitir hann broddhlynur. Samt er það þannig að stundum eru broddarnir lítt sjáanlegir og í sumum tilfellum má einnig sjá móta fyrir broddum á laufi garðahlyns. Laufblöð hans geta verið nokkuð fjölbreytt og stundum lík blöðum broddhlyns. Broddarnir eru þó aldrei eins áberandi og aldrei svona neðarlega eins og sjá má á myndinni hér að neðan.
Fyrri myndin sýnir efra borð laufblaða af broddhlyn (til vinstri) og garðahlyns (til hægri). Neðri blöðin tvö eru dæmigerð, græn blöð en dökka blaðið er af yrki sem kallast 'Royal Red'. Seinni myndin sýnir neðra borð sömu laufblaða. Rauði garðahlynurinn kom upp af sáningu. Á fyrri myndinni sést að efra borðið er grænt. Plöntur sem hafa annað borðið rautt en hitt grænt eru gjarnan kallaðar atropurpureum. Það orð er stundum notað sem yrkisheiti en þarf ekki að vera það. Sjá má að styttra er á milli æðanna í blaðholdinu hjá garðahlyni. Þar með hefur hann fleiri æðar í hverju blaði en broddhlynurinn. Myndir: Sig.A.
Þakkir
Þessi pistill hefði aldrei orðið til ef ekki hefði verið fyrir velvilja Önnu Rebekku Hermannsdóttur sem góðfúslega veitti okkur aðgang að myndasafni og minnispunktum Björgvins Steindórssonar. Fyrir það erum við mjög þakklát. Myndir Björgvins höfum við birt í fjölmörgum pistlum og munum halda því áfram. Einnig er vert að þakka Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur fyrir sitt þarfa verk við yfirlestur handrits og Bergsveini Þórssyni fyrir mikilvægar upplýsingar. Mestu þakkirnar fá þau sem styðja við skógrækt á Íslandi til dæmis með því að ganga í Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Heimildir
Björgvin Steindórsson (án ártals): Minnispunktar.
Bernd Schulz (2020): Identification of Trees and Shrubs in Winter using Buds and Twigs. Kew Publishing. Royal Botanic Gardens, Kew.




Comments