Jóla, jóltré
Í aðdraganda jóla höfum við hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga til sölu aðventutré, tröpputré og jólatré af ýmsum stærðum og gerðum. Aðventutré og tröpputré henta bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Þau geta hjálpað til við að skapa samræmda götumynd í bænum.
Almenn sala á jólatrjám hefst í Kjarnaskógi í fimmtudaginn 3. desember klukkan 10 og lýkur á hádegi á Þorláksmessu. Opið verður frá kl.10 til 18.
Stjórnarfólk stendur svo vaktina í Laugalandsskógi á Þelamörk helgarnar 12.–13. og 19.–20. desember milli kl. 11 og 15. Þar gefst almenningi tækifæri til að höggva sitt eigið jólatré.Pantanir á aðventutrjám, tröpputrjám og eldiviði í síma 893-4047 eða ingi@kjarnaskogur.is. Svo má alltaf mæta í Kjarna og velja þar það sem hentar.

Aðventutré
Aðventutré eru til notkunar utanhúss og eru afhent í þungum trékössum sem unnir eru úr eyfirsku lerki og greni. Þau henta vel þar sem vindálag er mikið og óskað er eftir hærri trjám. Þau henta jafnt einstaklingum sem fyrirtækjum og er upplagt fyrir nærbýli að taka sig saman, lýsa skammdegið og skapa heildstæða götumynd á aðventu.
Hægt er að velja um stafafuru eða rauðgreni, stærðir eru á bilinu 1,5-2,5 m og mögulegt er að fá trén afhent með seríum ef óskað er. Verð kr. 40.000 án ljósa og kr. 45.000 með ljósum. Við komum með trén til þín á aðventunni og sækjum aftur í lok janúar eða eftir samkomulagi.

Tröpputré
Tröpputrén okkar sívinsælu standa á lágum trjábol og eru tilvalin til dæmis á tröppur og svalir. Stærð er um það bil á bilinu 1-1,5 m. Verð kr. 23.000 án ljósa og kr. 25.000 með ljósum.
Við komum með trén til þín á aðventunni og sækjum aftur í lok janúar eða eftir samkomulagi sé þess er óskað.

Eldiviður
Við bjóðum einnig upp á úrvals eldivið, við sem fellur til við grisjun í skógum okkar um Eyjafjörð, einkum þó úr Naustaborgum. Hægt er að nýta ferðina þegar þið pantið aðventutré eða tröpputré eða nálgast eldiviðinn í Kjarna. Við bjóðum upp á eldivið úr barrtrjám og birki. Eldiviðurinn er afhentur í 40 lítra pokum. Verð kr. 4.000.

Jólatré í Kjarnaskógi
Í byrjun desember hefst sala á jólatrjám í Kjarnaskógi. Við fáum aðstöðu hjá nágrönnum okkar og vinum í Sólskógum og höfum aðstöðu í sölugróðurhúsinu neðan við starfsstöð félagsins. Jólatré af ýmsum stærðum og gerðum en einungis jólatré sem ræktuð eru á Íslandi. Við flytjum engin jólatré inn til landsins með tilheyrandi smithættu.
Einnig til sölu greinar, plattar, könglar og fleira smálegt úr skóginum.
Opið frá kl 10 til kl 18 alla daga frá og með fimmtudeginum 3. desember. Við stöndum vaktina til kl 12 á Þorláksmessu. Nánari upplýsingar um söluna má sjá á Facebook.
Jólatrjáasala í Laugalandsskógi
Skógræktarfélag Eyfirðinga býður fólki að höggva sín eigin jólatré í Laugalandsskógi á Þelamörk helgarnar 12.–13. desember og 19.–20. desember milli kl. 11 og 15. Við bjóðum upp á okkar góða ketilkaffi, kakó og piparkökur á notalegri samverustund við varðeldinn áður en heim er haldið með flottasta tréð úr skóginum. Við vekjum athygli á gjafabréfunum okkar á Þelamörkina. Æ algengara er að fyrirtæki sameini góða jólagjöf til starfsfólks og þjappi mannskapnum saman yfir kakóbolla í Laugalandsskógi,
Beygt er af þjóðvegi við bæinn Grjótgarð í Hörgársveit og við erum með fullt af bogasögum á staðnum.Eitt verð óháð stærð kr. 10.000,
Nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook.

Að lokum óskum við landsmönnum öllum gleði- og friðarjóla. Til að öðlast hvoru tveggja mælum við með gönguferð í skóginum.





Comments