Spariskógardagur - myndir
- Ingólfur Jóhannsson
- 18 hours ago
- 3 min read
Frábær Spariskógardagur Skógræktarfélagsins að baki Þúsundir heimsóttu Kjarnaskóg í gær. Fólkið skemmti sér í skóginum, skógurinn skemmti fólkinu, skemmtikraftarnir, skógurinn og gestir skemmtu sér saman, uppskriftin að fjölskylduhátíðinni er fundin!
Yndi er ein af fjölmörgum verðmætum skógarafurðum. Þetta getum við þegar mismunandi samfélagskraftar eru leiddir saman og jú, þegar starfsfólk Skógræktarfélagsins leit haukfránum augum yfir vettvang í lok dags sást vart ein kókómjólkurferna sem ekki hafði skilað sér í flokkunartunnur.
Takk unga fólk sem heimsótti okkur. Takk öll hin sem heimsóttuð skóginn og lögðuð ykkar af mörkum til að gera daginn dásamlegan. Takk Akureyrarbær fyrir velvilja gagnvart starfsemi okkar!
Sérstakar þakkir fær þó Sérsveitin okkar, starfsfólk og velunnarar, sem reyndar handtók Engan, en í sjálfboðavinnu framreiddi skógarkaffi, popp og ís, úrvals handspilaða músík, fræðslu um sveppi, ber og aðra fæðu úr skóginum, fornbíla, leyfði börnunum á öllum aldri að skjóta af boga og fleira og fleira. Svo kynnti fyrirtækið Skógarmenn vörur úr skóginum sem það framleiðir. Það er gott að eiga góða að.
Hér að neðan birtum við myndir frá gærdeginum og vel má vera að við bætum við myndum. Hér má sjá stutt drónamyndband.
Kjarnaskógur-Alltaf logn!

Tvær myndir af bogfimisvæðinu. Myndir: Ingólfur Jóhannsson og Sig.A.

Horft úr lofti á Birkivöll sem var aðalsamkomustaður dagsins. Myndir: Sig.A.

Söngkonan Ragnheiður Júlíusdóttir og trommarinn Árni Ketill Friðriksson stóðu sig með mikilli prýði með Birkibandinu. Við vekjum athygli á að Árni Ketill klæðir sig í stíl við settið. Mættu aðrir trymblar taka það sér til fyrirmyndar. Mynd: Ingólfur Jóhannsson.



Tvær myndir af fornbílasýningunni. Myndir: Sig.A. og Ingólfur Jóhannsson.




Poppararnir voru vinsælir. Fyrri myndin sýnir hvar poppað var yfir eldi. Að vanda vakti aðferðin mikla athygli. Seinni myndin sýnir hvar poppið er afhent í heppilegum kaffifilterum. Myndir: Sig.A. og Ingólfur Jóhannsson.


Vel má vera að við birtum fleiri myndir á næstu dögum. Ingólfur Jóhannesson Sigurður Arnarson




















