Elrið og þjóðsögurnar
Undanfarin misseri höfum við birt fjölmarga pistla um ýmsar elritegundir og enn eigum við í handraðanum fleiri pistla um þessa merku ættkvísl. Í þessum pistli höldum við áfram að fjalla um elri en beinum kastljósinu að ýmsum sögnum sem tengjast því frekar en trjánum sjálfum eða gildi þeirra í skóg- og garðrækt. Í heimildum okkar er í fæstum tilfellum tilgreint hvaða tegundum elris sagt er frá þegar þær tengjast sögnum og ævintýrum en oft má þó auðveldlega átta sig á því. Algengast er að um sé að ræða Alnus glutinosa sem á íslensku er bæði nefnt svartelri og rauðelri eins og við höfum greint frá í fyrri pistlum. Sjálfsagt eru tegundirnar aukaatriði því annars geta góðar sögur týnst í einhverju staðreyndaþrugli. Það yrði ekki ánægjulegt lesefni í þessu samhengi þótt það skipti máli við lýsingu tegunda. Sagnir þessar teljast flestar til goðsagna eða þjóðsagna frá Evrópu og tengjast gjarnan hinum rauða lit sem kemur í sár flestra trjánna. Það hefur löngum þótt dularfullt fyrirbæri. Einnig skoðum við meintan lækningamátt tegundarinnar í þessum pistli.
Þrátt fyrir nokkra leit þá geta heimildir okkar því miður sjaldnast ævintýrasagna frá öðrum heimsálfum en Evrópu. Við erum þó ekki í nokkrum vafa um að tegundir eins og ryðelri, Alnus rubra, áttu sínar þjóðsögur meðal frumbyggja Norður-Ameríku. Að þeim höfum við ekki aðgang og ef til vill eru þær að eilífu glataðar eins og flestar þjóðirnar sem kunnu þær.

Grísk goðafræði
Í grískri goðafræði er ótrúlega algengt að fólk breytist í tré. Við höfum meðal annars nefnt þessa umbreytingu í pistlum um töfratré og í fyrri pistli okkar af tveimur um ólífutré. Þegar kemur að elrinu eru sögurnar heldur fátæklegri þarna suður í Grikklandi. Það er ekki einu sinni víst að um elri sé að ræða í þeirri sögu sem við nefnum enda er náttúrufræði í grískum goðsögum ekki alltaf hin nákvæmasta. Sagan segir að sólguðinn Helíos hafi átt dóttur að nafni Helíades og skínandi son að nafni Pæþon. Drengurinn reyndi að feta í fótspor föður síns og aka sólvagni yfir himinhvolfið. Sú tilraun varð honum að fjörtjóni. Eins og vænta mátti varð Helíades ákaflega sorgmædd við þessi tíðindi enda unni hún bróður sínum heitt. Því sótti að henni óstöðvandi grátur. Þegar Helíades Helíosardóttir hafði syrgt í fjóra mánuði með látlausu táraflóði þótti guðunum nóg komið og tóku í taumana. Þeir aumkuðu sig yfir systkinin og duttu ofan á þá lausn að breyta þeim báðum í tré sem af drypi rauðagull í stað tára. Það varð úr og seinni tíma náttúrufræðingar telja að þar með hafi fyrstu elritrén orðið til. Eða fyrstu aspirnar. Þeir eru ekki sammála um hvort heldur varð (Lawrenee 2023). Með frjálslegri túlkun má segja að hið drjúpandi rauðagull hafi með tímanum breyst í frjórekla.
Í Grikklandi vex Alnus glutinosa sem fyrr er nefnt. Þar vex einnig tegundin Alnus cordata. Hana mætti nefna hjartaelri á íslensku því laufin eru hjartalaga eins og við nefndum í þessum pistli. Í honum má sjá myndir af tegundinni. Ef systkinin urðu að elri er rómantískara að sjá fyrir sér tré sem bera hjartalaga laufblöð til minningar um systkinaást barna sólguðsins heldur en hin snubbóttu lauf rauð- eða svartelris. Þess vegna veðjum við á hjartaelri.

Keltar og jafnvægið
Við höfum tvær heimildir sem segja frá því hvernig Keltar litu á elri. Einkum mun þar átt við írska Kelta en á Írlandi vex aðeins ein tegund elris villt. Það er tegundin Alnus glutinosa sem áður er nefnd og á sér tvö jafngild íslensk heiti eins og við sögðum frá í pistlum um tré ölrakóngsins og höfum klifað á lengi síðan. Nú eru gárungarnir farnir að tala um víkingaelri því íþróttalið sem kennt er við víkinga leikur í svörtum og rauðum búningum sem eru litir þessa elris samkvæmt íslenskri tungu. Hér neðar segjum við frá því að norrænir víkingar gátu lent í vanda er þeir ætluðu sér að höggva niður írska hermenn með skildi úr elrivið.
Nokkur áherslumunur er á heimildunum en meginlínurnar eru þær sömu. Því er þessi kafli byggður á Lawrenee (2023) og Spade (2021). Báðir höfundar eru sammála um að elri tákni einhvers konar jafnvægi milli andstæðna. Það minnir dálítið á hugmyndir austurasískra heimspekikenninga um Jin og Jang sem tíðum mynda andstæður sem geta ekki hvor án annarrar verið. Það má meðal annars líta á elri sem tákn jafnvægis karlkyns og kvenkyns sem fellur vel að þessum hugmyndum. Í því sambandi má benda á að hvert tré ber bæði kvenkyns og karlkyns æxlunarfæri. Þau eru aðskilin en samt á sama trénu. Þetta sést vel á mynd hér ofar. Ekkert verður af fræmyndun nema andstæðurnar, karlkyns og kvenkyns blóm, nái saman. Við höfum áður sagt frá því að fjölbreytni kynja meðal trjáa getur verið mikil og má lesa um það hér.

Elrið og mörk töfralandsins
Spade (2021) segir að þetta jafnvægi gæti tengst því að elri getur vaxið á mörkum votlendis og þurrlendis sem líta má á sem mörk tveggja heima. Þessir heimar eru jafnréttháir. Annar er ekkert æðri hinum heldur eru þeir tvö ólík form á lífinu þótt flest okkar skynji aðeins annan lífheiminn. Þannig má segja að elritrén vaxi á mörkum hins veraldlega og hins andlega og hver veit nema þau myndi tengingu á milli heimanna.

Að auki hefur elrið jákvæð áhrif á vistkerfið og mætti því líta á það sem töfrum gæddan lífgjafa. Plöntur sem vaxa nálægt elri vaxa að jafnaði betur en aðrar plöntur. Í dag vitum við að það stafar af gerlunum á rótunum sem vinna nitur beint úr andrúmslofti og breyta því í form sem plöntur geta nýtt sér sem áburðarefni. Þótt sú vitneskja sé ekki mjög gömul í sögulegu samhengi hefur gagnsemi elrisins lengi verið kunn. Þannig segir Krajick (1998) frá því í grein í Science að allt bendi til að hinir fornu Inkar hafi ræktað elri í þeim tilgangi að auka frjósemi. Því til sannindamerkis segir hann að elrifrjókorn hafi aukist snarlega í mýrum og öðrum jarðvegi hvar sem Inkar settust að. Fyrir fróðleiksfúsa má geta þess að elritegundin sem þar er um að ræða er Alnus acuminata. Það er alveg hugsanlegt að elri hafi átt auðveldara með að sá sér út í kjölfar akuryrkju Inkanna og það hafi verið ástæða fjölgunar frjókorna en Krajick telur að elrinu hafi verið plantað.
Því miður skildu Inkarnir ekki eftir sig nein hefðbundin ritverk og við þekkjum lítið til ræktunarmenningar þeirra og ekkert til þjóðsagna sem gætu hafa tengst elrinu.

Elrið og vorið
Spade (2023) bendir á tengingar milli hinnar eilífu endurreisnar, endurfæðingar og jafnvægis sem elri getur staðið fyrir. Líta má á árlegan lífsferil elris sem endalaus átök lífs og dauða. Það blómgast snemma, laufgast og verður grænt en að loknu sumri hrörna laufblöðin og falla. Að vori lifnar tréð aftur og blómgast á undan öðrum trjám sem loforð um sigur vorsins á vetrinum eða lífsins yfir dauðanum.
Spade segir frá því að á Írlandi hafi mánuður, sem fellur nokkurn veginn saman við einmánuð á Íslandi, verið kenndur við elri. Jafndægur að vori er einmitt í þeim mánuði. Þá má fara að búast við að elriblómin sýni sig. Þegar þau birtast má líta á þau sem öruggt merki þess að þá styttist í sumarið. Þannig er elrið augljóst tákn fyrir sigur ljóssins yfir myrkrinu. Spade segir að þessi mánuður hafi kallast Fearn sem er sama orðið og þriðji bókstafur gamals írsks stafrófs og lítur svona út: ᚃ. Orðið mun vera gamalt keltneskt orð yfir elri. Í keltneskunni sem töluð er í Veils varð þetta að orðinu gwern sem einmitt merkir elri. Í Veils virðist elrið hafa skipað stóran sess í þjóðsögum. Við þetta má bæta að Lawrenee (2023) segir írskar sagnir herma að hin fyrsta manneskja hafi verið sköpuð úr elritré. Það er enn eitt dæmið um hvernig elri táknar sigur lífsins.

Elri, álfar og aðrar vættir
Algengar eru sagnir á Írlandi um elritré sem tengdust álfum. Þeir geta verið nokkuð grimmir á eyjunni grænu og hver sá sem skerðir elri getur sett sig í hættu enda ekki gott að lenda í einhverju klammeríi við álfa. Sum elritré eru þóknanlegri álfum en önnur. Ef þau elritré sem álfar hafa sérstaklega í hávegum eru hoggin geta þeir hefnt sín með því að kveikja í húsi þess sem verknaðinn framdi. Þannig getur rauði liturinn í sárinu verið viðvörun og jafnvel orðið að eldi í brennandi húsi. Þessi þjóðtrú gat valdið töluverðum vanda því elriviður hafði mjög hagnýtt gildi. Gat það bæði átt við um veraldleg og trúarleg atriði. Því varð að velja elritré af mikilli kostgæfni ef átti að fella þau (Lawrenee 2023). Spade (2021) fjallar í hlaðvarpsþætti sínum um ást álfa á elri. Hann samsinnir því að álfarnir leggi mikið upp úr því að hugsað sé vel um elri en segir að þeir hafi oftast látið það afskiptalaust að menn felldu elri ef þeir sömu menn skildu eftir veglegar gjafir handa álfunum. Þeim var samt ekki sama um hvað elriviður væri notaður í. Þess vegna varð að fara alveg sérlega varlega ef til stóð að nota elri til galdra. Það voru varla nema römmustu galdramenn og -konur sem treystu sér til að nota tré til galdra sem sem álfar héldu verndarhendi yfir.
Í fyrri elripistlum okkar sögðum við frá því að elritegundir geta myndað kjarr. Á ensku kallast það aldercarr. Hjá Keltum var það sveipað dulúð og ýmsir andar taldir búa í því. Sú trú virðist reyndar ekki einskorðuð við Írland eins og við sögðum frá í fyrsta pistli okkar um ölrakónginn. Spade (2021) segir að þar sem elrikjarr sé algengt í torfæru votlendi geti vel hugsast að einmitt þar megi finna opnar dyr úr mannheimum yfir í heim álfa og anda. Trúin á ýmsa anda í elriskógum og -kjarri gat (og getur eflaust enn) verið æði misjöfn eftir landsvæðum. Bæði Spade (2021) og Lawrenee (2023) nefna að líta hafi mátt á elri sem tákn fyrir endurreisn og hringrás lífsins eins og nefnt er hér að framan. Lawrenee (2023) segir að í Austurríki hafi því jafnvel verið trúað að vekja mætti fólk til lífsins með aðstoð elritrjáa. Þar vaxa þrjár tegundir elris en ekki er þess getið hvaða tré henta best í þessu sambandi. Vel má ímynda sér að þessi eiginleiki elritrjáa tengist hinum blóðlitu sárum sem koma á sárin þegar trén eru söguð niður. Þá fækkar tegundunum sem til greina koma um eina.
Spade (2021) segir að víða í Evrópu hafi verið til fólk sem hryllti við að nota elri vegna blóðsins sem lak úr sárunum. Það taldi tryggara að skerða ekki slík tré.

Kynjaverur og börkurinn
Diana Wells (2010) segir frá ölrakónginum sem Goethe orti um árið 1778. Við sögðum frá honum í upphafi þessa pistils. Diana lætur ekki staðar numið þar. Í elriskógum mátti líka búast við því að mæta hræðilegri, eldgamalli kerlingu. Hún gat breytt sér í glæsilega ungmey sem tældi til sín karla. Þegar það hafði tekist breyttist hún aftur í þá norn sem hún var. Diana telur að þessa sögn megi rekja til barkarins á A. glutinosa. Þegar trén eru ung er börkurinn ljós og sléttur. Þá minna trén á grannar, fagrar yngismeyjar. Þegar tréð eldist á börkurinn það til að springa og missa þokka sinn. Þá dökknar tréð og verður drungalegt. Því er tegundin kölluð svartelri á sumum tungum. Þegar svo er komið minna trén á gamlar, hrukkóttar, ógnvekjandi nornir sem rétt er að gæta sín á. Þær geta sem best haft áhuga á að tæla unga menn í torfærur mýranna sem trén geta vaxið í.

Elri í orrustum
Vel mátti tengja elri við stríð og dauða. Þar er líklegt að rauður litur sáranna skipti máli. Bæði Spade og Lawrenee geta þess að írskir hermenn notuðu gjarnan skildi úr elriviði. Spade (2023) nefnir að þegar hoggið var í skildina og sárið varð rautt hafi það hvatt hermenn til dáða og fyllt þá baráttuanda og hugrekki. Það átti að geta komið í veg fyrir að þeir fengju sjálfir svona rauð sár. Lawrenee (2023) bætir því við að elriskildir hafi verið bæði léttir og mjúkir. Þeir voru það mjúkir að þegar hoggið var í þá með eggvopnum áttu vopnin til að festast í skjöldunum. Það gat gefið skjaldberum heilmikið forskot. Sagt er að margur norrænn víkingur hafi fallið við að reyna að ná öxum sínum úr elriskjöldum Íra.
Í velskum þjóðsögum er að finna sagnir um Brján hinn blessaða eða Brân Fendigaidd. Nafnið Brân mun merkja hrafn eða kráka svo ef til vill er réttara að kalla hann Hrafn hinn blessaða. Hvort sem kalla ber hann Brján eða Hrafn er sagt að litur hans hafi verið rauðfjólublár og þann lit sá hann alltaf í sárum elritrjáa. Því bar hann helst af öllu elrispjót í orrustum og úr því gat blætt (Spade 2021).

Kross Krists
Hin blóðlituðu sár á trjánum urðu til þess að í Evrópu var því trúað að kross Krists hefði verið gerður úr elrivið. Þar er komin skýringin á blóðlituðum sárum. Það blæðir enn úr trjánum vegna skammarinnar sem hlaust af þessu hlutverki. Að vísu hafa fjölmörg tré verið grunuð um að hafa gegnt þessu sama hlutverki og rökin eru æði fjölbreytt. Mörg þeirra trjáa eiga það sameiginlegt með elrinu að vaxa ekki í Palestínu (Wells 2010). Enn eru til meintar flísar úr krossinum sem gætt er sem helgra dóma í kaþólskum kirkjum um allan heim. Óvíst er að þær flísar tilheyri allar sömu trjátegund. Ef til vill má leysa þessa þraut með þeirri einföldu lausn að krossinn hafi verið settur saman úr mörgum tegundum trjáa og flestum innfluttum. Svona getur hið forna verslunarveldi Rómverja hafa haft fjölbreytt áhrif.

Skóbúnaður
Við höfum áður sagt frá því að elri, einkum rauð- eða svartelri, þótti sérlega gott til að skera út hæla á skó eða jafnvel heilu skóna. Einnig mátti nota gráelri í þessum tilgangi. Þetta skæðislausa skótau þótti nokkuð klossað eins og við er að búast. Því gátu ferðamenn orðið dálítið sárfættir á göngu sinni. Þá koma alþýðulækningar að góðum notum. Laga mátti þreytta fætur með því að setja elrilauf í klossana og reyndar einnig í aðra skó (Wills 2018, Lawrenee 2023). Hér á Íslandi gátu vonbiðlar gengið með grasið í skónum en sunnar í álfunni mátti ganga með lauf í skónum til að fá ferska fætur.

Lækningar
Margar heimildir geta þess að áður fyrr hafi elri verið notað til lækninga á erfiðari kvillum en táfýlu. Í nánast öllum tilfellum er talað um það í þátíð. Nota mátti lauf, börk og við í þessum tilgangi. Laufin gátu ekki bara frískað upp á fæturna. Þau gátu einnig læknað kláða eftir bit skordýra að sögn Wills (2018). Svo mælti hefðin fyrir að nota ætti börk elritrjáa til að lækna brunasár og sýkingar í húð (Tudge 2005). Inkar í Suður-Ameríku eru sagðir hafa notað innri börk af elri til að græða sár og laga húðvandamál og frumbyggjar Norður-Ameríku notuðu ryðelri á sama hátt samkvæmt Clapp & Crowson (2022 og 2023). Svo rammt kvað að lækningamætti elrisins að árið 1747, þegar Carl Linnæus sendi Peter Kalm til Norður-Ameríku til að finna lækningaplöntur, leitaði hann sérstaklega uppi elritegundir. Í Vesturheimi hitti Kalm landa sína frá Svíþjóð sem notað höfðu börk af elri til að græða sár sem náðu allt að beini (Wells 2010).
Þrátt fyrir að börkur elritrjáa hafi verið nýttur til að græða sár og önnur húðvandamál í að minnsta kosti þremur heimsálfum hafa læknavísindin ekki staðfest læknisfræðilega virkni elritrjáa nema hvað gerladrepandi efni hafa fundist í trjánum, einkum reklunum. Meira um það í næsta kafla.

Gagnsemi elrirekla
Blóm, við, blöð og börk elritrjáa má nota til að búa til fjölbreytta liti eins og við nefndum í fyrri pistlum um elri. Úr kvenreklunum má einnig búa til blek. Það sem við höfum ekki sagt frá áður um reklana er að samkvæmt Lawrenee (2023) búa reklarnir yfir töframætti. Í sumum héruðum Englands var því trúað að hver sá sem gengi með trénaða kvenrekla í vösum sínum væri með öllu ónæmur fyrir hvers kyns gigtarsjúkdómum. Sagt er að í reklum elris megi finna gerladrepandi efni. Því er til dæmis haldið fram í þessu myndbandi. Þar segir líka að samsvarandi efni séu í minna mæli í öllu trénu og þar sé komin skýringin á ferskum fótum þeirra sem ganga í elriklossum sem fylltir eru með laufum. Þau geta drepið gerla og dregið úr táfýlu. Svo er því haldið fram af sumum að með því að hella soðnu vatni yfir elrirekla megi fá ljómandi góðan gerladrepandi vökva.

Að lokum
Eins og venjulega viljum við færa yfirlesara handrits okkar bestu þakkir fyrir sitt framlag. Að þessu sinni tók Pétur Halldórsson það að sér. Í farvatninu eru fáeinir pistlar um elri sem við birtum síðar. Tveir eru um ryðelri, tveir um blæelri og tveir um eitthvað annað. Innihald þeirra kemur í ljós í fyllingu tímans. Við endum þennan stutta pistil með tilvitnun í Thomas Spade (2021). Hann endaði hlaðvarpsþátt sinn um elri á því að biðja hlustendur að taka elrið sér til fyrirmyndar og finna jafnvægi í lífi sínu. Við teljum það mun vænlegra en að lifa á mörkum lífs og dauða eins og sumt elri virðist gera. Við tökum undir með Spade þegar hann segir: „Finnið fallegt tré og faðmið það.“

Heimildir
Casey Clapp & Alex Crowson (2022): Archaeondronology (Andean Alder). Hlaðvarpsþáttur úr þáttaröðinni Completely Arbortrary frá ágúst 2022 Sjá: ARCHAEONDRONOLOGY (ANDEAN ALDER) — Completely Arbortrary.
Casey Clapp & Alex Crowson (2023): Mid Succession (Red Alder). Hlaðvarpsþáttur úr þáttaröðinni Completely Arbortrary frá febrúar 2023 Sjá: MID SUCCESSION (RED ALDER) — Completely Arbortrary.
Kevin Krajick (1998): Green Farming by the Incas? Grein á veftímaritinu Science frá 17. júlí 1998. Sjá: Green Farming by the Incas? | Science Sótt 15. apríl 2026. Greinina má einnig finna á Vol 281, Issue 5375 bls. 322.
Sandra Lawrenee (2023): Witch’s Forest. Trees in magic, folklore and traditional remedies. Royal Botanic Gardens Kew. Welbeck.
Thomas Spade (2021): The Alder. 18. hlaðvarpsþáttur úr þáttaröðinni My Favorite Trees frá 23. mars 2021. Sjá:
Ep. 18-The Alder • My Favorite Trees. Sótt 13.04.2026.
Simon Wills (2018): A History of Trees. Pen & Sword Whie Owl. Barnsley, South Yorkshire, England.
Diana Wells (2010): Lives of the Trees. An Uncommon History. Algonquin Books of Chapel Hill. Chapel Hill, North Carolina. Í sumar netheimildir er aðeins vísað með krækjum þar sem við á.




Comments