Tegundir birkiættkvíslarinnar
Á Íslandi vaxa tvær tegundir villtar af birkiættkvíslinni. Þær heita birki eða ilmbjörk, Betula pubescens og fjalldrapi, B. nana. Að auki hafa nokkrar tegundir verið reyndar á landinu þótt árangurinn sé býsna misjafn. Erlendis má sjá hinar og þessar tegundir birkis og í þessum pistli fjöllum við um sumar þeirra og helstu tegundir sem reyndar hafa verið hér á landi. Rétt er að taka það strax fram að fræðingar eru hreint ekki sammála um hvernig flokka beri tegundir ættkvíslarinnar. Reyndar er ekki einu sinni eining um hvort eða hvernig skilgreina skuli ólíka erfðahópa sem tegundir innan ættkvíslarinnar eða hvar mörk erfðahópanna liggja. Í mörgum tilfellum væri það meira í anda hefðbundinnar líffræði að tala um staðbrigði (ecotyp) en tegundir þar sem mismunandi erfðahópar geta tímgast og eignast saman frjóa afkomendur. Á meðal þeirra sem bent hafa á þennan möguleika er Þorsteinn Tómasson (2026) sem gert hefur tilraunir til að kynbæta íslenskt birki.

Flokkun birkis í tegundir hefur lengi verið á reiki. Útilokað er að við tökum að okkur að lýsa öllum tegundum ættkvíslarinnar enda getum við hvorki fullyrt hversu margar þær eru eða hvort þær eru beinlínis til. Þegar farið er of djúpt í þessi fræði eykst ruglingurinn. Hann getur orðið svo mikill að hætt er við að mennirnir í hvítu sloppunum nái í mann þegar allt er komið í óleysanlegan hnút. Þess í stað skoðum við hvernig reynt hefur verið að flokka ættkvíslina niður í deildir og í framhaldinu í ólíkar tegundir. Í pistlinum kemur fram að alltaf eru örlitlar breytingar. Þær byggjast gjarnan á nýjum upplýsingum eða mismunandi sjónarhornum. Líta má á þennan pistil sem framhald af síðasta birkipistli okkar þar sem við sögðum frá nánustu fjölskyldu birkisins.

Tegundir
Um tíma vildu margir grasafræðingar skipta ilmbirkinu, Betula pubescens, í nokkrar tegundir. Stundum voru slíkir fræðingar kallaðir hártogarar (e. splitters). Í flestum tilfellum hefur verið fallið frá því af grasafræðingum sem kallaðir eru hrúgarar (e. lumpers). Auðvitað mælum við ekki með slíkum háðsyrðum og tökum þau aðeins í munn í uppfræðslutilgangi. Þetta, ásamt fleiri sambærilegum æfingum grasa- og flokkunarfræðinga, hefur leitt til þess að fjöldi tegunda er nokkuð á reiki. Því er það þannig að heimildum ber hreint ekki saman um fjölda þeirra innan ættkvíslarinnar. Stundum liggur ekki fyrir hvar mörk tegunda og undirtegunda (sem stundum eru flokkaðar sem sérstakar tegundir) liggja og hvað skuli telja til sjálfstæðra tegunda og staðbrigða sömu tegundar. Þetta ósamræmi getur hleypt fjöldanum nokkuð upp á við og útskýrir að hluta þennan mikla mun á fjölda tegunda sem sjá má í mismunandi heimildum. Svo verður því varla neitað að margir grasafræðingar hafa metnað til að skilgreina nýjar tegundir og fá nafn sitt birt í alþjóðlegum fræðiritum fyrir vikið. Stundum seilast menn af öllum kynjum nokkuð langt til að uppfylla þann metnað.

Við getum sagt að tegundirnar eru að minnsta kosti á bilinu 30 til 60. Nefna má að í alfræðiritinu Britannica (2026) eru tegundirnar sagðar vera 40 en á vef Trees and Shrubs Online eru þær sagðar miklu fleiri og sama er að segja um vefinn The World Flora Online.
Til að taka dæmi um mun heimilda birtum við hér að neðan lista sem grasafræðingurinn Ágúst H. Bjarnason (2026) birti á samskiptamiðli yfir helstu birkitegundir á norðurhveli. Nöfnin á listanum berum við saman við nöfn sem Ashburner & McAllister (2013) gefa upp í sinni bók. Þá sést smávægilegur munur. Þetta sýnir ágætlega að enn eru ekki öll kurl til grafar komin.
Fræðinafn, B = Betula | Höfundur heitis | Íslenskt heiti og vöxtur | Heiti Ashburner & McAllister | Heimkynni |
B. divaricata | Ledeb. | Runnabirki. Lágvaxinn runni. | B. divaricata | Austur-Asía. |
B. fruticosa | Pall. | Fellahrís. Lágvaxinn runni. | B. fruticosa | Síbería. |
B. glandulosa | Muchx. | Kirtilbirki. Lágvaxinn runni. | B. glandulosa | Norður-Ameríka. |
B. kenaica | W. H. Evans | Alaskabirki. Hávaxið tré. | B. kenaica | Alaska og Kenaiskaga. |
B. minor | (Tuck.) Fernald | Lágvaxinn runni. | B. x minor óþekktur blendingur. | Norður-Ameríka. |
B. nana | L. | Fjalldrapi. Lágvaxinn eða jarðlægur runni. | B. nana | Í norðlægum freðmýrum og sunnar í fjöllum. |
B. nana ssp. exilis | (Sukaczev) Hulten | Bogahrís. Dvergvaxinn. | B. nana ssp. exilis | Norður-Ameríka. |
B. nana L. ssp. nana |
| Fjalldrapi. Lágvaxinn eða jarðlægur runni. | B. nana L. ssp. nana | Frá Grænlandi til Skotlands og norðurhluta Vestur-Asía og sunnar í fjöllum. |
B. nana var. tundrarum | (Perfil.) Elven comb. | Lágvaxinn runni. | (B. tundrarum) | Ekki viðurkenndur. |
B. neoalaskana | Sarg. | Alaskahvítbirki.Hávaxið tré. | B. papyrifera ssp. mandshurica | Alaska. |
B. papyrifera | Marshall | Næfurbirki. Stórvaxið tré. | B. papyrifera | Norður-Ameríka milli heimshafanna. |
B. pendula | Roth | Hengibirki. Stórvaxið tré. | B. pendula | Evrasíu og vestast í N-Ameríku. |
B. pendula var. lapponica | (Lindq.) Hämet-Ahti | Hávaxið tré. | B. pendula var. lapponica | Evrópa (ekki bara í Lapplandi). |
B. platyphylla | Sukaczev | Mansjúríubirki. | B. pendula ssp. mandshurica | Austast í Asíu og í Alaska. |
B. pubescens | Ehrh. | Birki/ilmbirki. Hávaxið tré eða runni. | B. pubescens | Evrópa og Vestur-Asía. Einnig á Grænlandi og Nýfundnalandi. |
B. pubescens ssp. pubescens |
| Birk/ilmbirki. Hávaxið tré. | B. pubescens ssp. pubescens | Evrópa og Vestur-Asía. |
B. pubescens ssp. tortuosa | (Ledeb.) Nyman | Kræklubirki. Runni, allt að fjögra metra hár. | B. pubescens var. pumila | Norður_Evrópa,Norður Asía. Einnig á Grænlandi og Nýfundnalandi. |
B. pumila | L. | Kræðubirki/ kræklubirki. Runni, allt að fjögra metra hár. | B. pumila | Norður-Ameríka frá Nýfundnalandi og austurúr. Sjaldgæfur í Alaska. |
Listi sem Ágúst H. Bjarnason setti saman yfir helstu birkitegundir á norðurhveli. Íslensku heitin eru byggð á upplýsingum úr íðorðabanka Árnastofnunar en öllum bjarkaheitum er breytt í birkiheiti. Ástæðu þess má lesa í þessum pistli okkar. Listanum ber ekki að fullu saman við Ashburner og McAllister (2013). Þess vegan er fjórði dálkurinn settur inn. Fimmti dálkurinn byggir einnig að mestu á þeirri heimild en í bókinni er enginn sambærilegur listi. Listinn sýnir vel að alltaf er smávægilegur munur milli heimilda.

Undirættkvíslir og deildir
Í bók sinni um birki segja þeir félagar Ashburner & McAllister (2013) að birki megi flokka í fjórar undirættkvíslir (subgenus). Algengara er að þýða orðið subgenus sem undirætt en það á tæpast við í þessu tilfelli. Allt birki er af sömu ættkvísl og henni má skipta niður í fjórar undirættkvíslir. Þær kallast Nipponobetula, Aspera, Acuminatae og Betula. Með tilliti til grasafræðilegra atriði sem við eltumst ekki við í bili, svo sem útlit frærekla og fleira, er undirættkvíslunum svo skipti í erfðahópa sem við köllum deildir (section). Innan síðasttöldu undirættkvíslarinnar, Betula, er allt það birki sem við þekkjum best. Henni er skipt í fjórar deildir. Þá lendir okkar birki, Betula pubescens, í hópi með hengibirki, B. pendula, blæbirki, B, populifolia, lindabirki, B. fontinalis og næfurbirki, B. papyrifera ásamt B. celtiberica og B. cordifolia sem ekki hafa nein íslensk heiti. Þetta eru þær tegundir sem skyldastar eru íslenska birkinu. Við studdumst við íslensk nöfn sem við fundum í íðorðabanka Árnastofnunar.

Nokkrar myndir af snæbirki, Betula utilis, í Edinborg árið 2019. Sennilega er þetta algengasta asíska birkitegundin í Skotlandi. Það tilheyrir sömu undirættkvísl og íslenska birkið en sömu deild og steinbirkið. Stundum hefur tegundin verið reynd á Íslandi en árangurinn hefur verið misjafn. Myndir: Sig.A.
Einföldun
Til einföldunar má gróflega skipta birki í þrjá flokka eins og þeir Ashburner og McAllister (2013) gera í sinni bók. Í fyrsta lagi er það birki sem hefur að jafnaði brúna stofna og myndar þrjár undirættkvíslir en til einföldunar má setja þær allar í einn hóp. Í töflunni hér að ofan eru það undirættkvíslir Nipponobetula, Aspera og Acuminatae.
Svo er það fjórða undirættkvíslin, Betula, sem má skipta í tvo hópa. Í þeim fyrri eru þrjár deildir sem heita Dahuricae, Costata og Betula. Í þeim öllum eru tré með ljósa stofna. Lokahópurinn er deildin Apterocaryon. Í henni eru runnar sem hafa mjög dökka stofna og að jafnaði minni lauf en trén. Þeir vaxa við erfið skilyrði svo sem á túndrum og ofan við trjálínu. Í hópnum er meðal annars fjalldrapi sem getur myndað blendinga með ljósu trjánum um norðanverða Evrópu enda eru þessir hópar töluvert skyldir og tilheyra sömu undirættkvísl. Þess vegna þekkist að birki á Íslandi hafi dökka stofna.

Rétt er að minna á að sum tré sem tilheyra ljósa birkinu geta haft dökka stofna og öfugt. Svo getur hvert tré haft nokkuð mismunandi liti ef út í það er farið. Til að flækja málið enn frekar þekkjast allskonar blendingar sem erfitt er að ættfæra. Til að einfalda málið getum við haft þetta svona:

Þessi skipting er mjög praktísk fyrir ræktendur í kaldtempruðu umhverfi eins og ríkir um norðanverða Evrópu. Tré innan hópanna með ljósu stofnana og runnanna eru yngri í þróunarsögunni og virðast eiga mun auðveldara með að mynda blendinga en tegundir með brúnu stofnana sem eru fjarskyldari hver annarri. Dökku trén eru töluvert ólík innbyrðis enda hafa þau haft lengri tíma til að þróast í mismunandi áttir (Ashburner & McAllister 2013).


Dökku trén eru sunnar á hnettinum eða neðar í fjalllendi (til dæmis í vesturhluta Kína, í Himalæjafjöllum og í Japan) og geta myndað allt að 30 metra há tré. Þau eru ekki eins eindregin frumherjatré og ljósu trén sem vaxa norðar eða hærra í fjöllum. Ljósu trén vaxa vanalega hraðar og eru á allan hátt nettari. Þau eru skammlífari og þola minni skugga en dökku trén. Hvað þessi atriði varðar eru runnarnir mun nær ljósu trjánum en þeim dökku enda tilheyra þeir sömu undirættkvísl. Dökka hópnum má skipta í þrjár undirættkvíslir eins og nefnt er að ofan.
Betula grossa tilheyrir undirættkvíslinni Asperae og deildinni Lentae ef marka má Ashburner & McAllister (2013). Þetta tré vex í Branklin Garden í Perth í Skotlandi. Myndir í ágúst 2025: Sig.A
Sum trén innan dökka hópsins hafa laufblöð sem eru líkari laufum á öðrum trjám innan ættarinnar en laufi á birki eins og við þekkjum það. Því eru margar tegundir nokkuð framandi í útliti. Þær hafa til dæmis að jafnaði mun fleiri æðar í blaðholdinu en ljósa birkið (Ashburner & McAllister 2013). Trén sem tilheyra hópnum með brún eða dökk tré þurfa mun hlýrri sumur en vanalega er hægt að bjóða þeim upp á hér hjá okkur. Þau vaxa í tempruðu eða heittempruðu loftslagi en síður í kaldtempruðu. Sum trén vaxa nánast í hitabeltisloftslagi. Samt er það svo að sum þeirra harðgerðustu þrífast til dæmis í Skotlandi og gætu ef til vill þrifist hér á landi á skjólgóðum, hlýjum stöðum.

Tegundir á Íslandi
Ilmbjörk og fjalldrapi vaxa villt á Íslandi. Ilmbirkið er mest plantaða tegund landsins og eina innlenda tegundin sem myndar samfellda skóga. Auðvitað munum við segja nánar frá þessum tveimur tegundum síðar.
Nú skoðum við hvaða aðrar tegundir hafa helst verið reyndar á landinu án þess að verja of löngum tíma í að lýsa hverri og einni. Ef til vill birtum við sérstaka pistla um sumar þeirra í fyllingu tímans.
Íslenskt birki, Betula pubescens, er býsna fjölbreytt í útliti eins og sjá má. Þess vegna hefur stundum verið reynt að skipta því í nokkrar tegundir eða að minnsta kosti undirtegundir. Myndir: Sig.A.
Algengasta erlenda birkitegundin á Íslandi er án efa hengibirki, B. pendula sem einnig er kallað vörtubirki, B. verrucosa. Sum af glæsilegustu trjám Eyjafjarðar eru af þessari tegund og sama má segja um Héraðið og fleiri staði sem bjóða upp á svipað loftslag. Sums staðar hefur ræktunin ekki gengið eins vel. Sérstaklega ef loftslagið er of hafrænt. Hingað til hefur að mestu verið plantað norðlægum kvæmum. Það hefur leitt til þess að trén ljúka vexti fyrr en nauðsyn krefur. Því fara trén snemma í haustliti og nýta ekki allt sumarið til vaxtar. Nýlega hafa suðlægari kvæmi borist hingað og þau virðast vaxa enn betur en þau kvæmi sem fyrir eru í landinu.
Þessi tegund lifir víða villt í Evrópu og á það til að skiptast á erfðaefni við ilmbirki og fjalldrapa eins og við sögðum frá í síðasta birkipistli okkar.

Sums staðar má einnig finna steinbirki, B. ermanii, í ræktun. Einkum á það við hjá söfnurum. Til eru ljómandi falleg eintök af steinbjörkum inn til landsins á Íslandi. Svo virðist sem birkismugur eins og birkikemba og birkiþéla, séu ekki eins sólgnar í steinbirki eins og sumar aðrar tegundir birkis. Gerir það tegundina sérlega áhugaverða.
Steinbirki hefur sama litningafjölda og ilmbirki en er talin fjarskyldari því en bæði fjalldrapi og hengibirki. Sami litningafjöldi gerir það að verkum að tegundirnar geta æxlast saman. Þannig hefur steinbirki á Tumastöðum, sem sagt er frá Sjakalíneyju, iðulega borið fræ og ef því er sáð má sjá að upp spretta blendingar.
Steinbirki er ættað frá Austur-Asíu og hefur að mestu borist hingað frá Shjakalíneyju, Magadan og Kamtsjatka. Þar getur tréð oðið að minnsta kosti 20 metra hátt. Greinar hafa bæði vörtur, eins og hengibirkið, og hár, eins og ilmbirkið. Þó er hæringin ekki eins mikil og hjá ilmbirkinu og stundum sést hún ekki. Blaðstilkar eru hærðir og hvert lauf hefur átta til tólf pör æða. Stofnarnir eru oftast ljósir. Þeir geta verið gráhvítir eða næstum kremhvítir á litinn (Ashburner & McAllister 2013).

Sums staðar á útbreiðslusvæði tegundarinnar vex hún við skógarmörk og á öðrum hrjóstrugum stöðum. Það gerir tegundina áhugaverða fyrir íslenskar aðstæður.
Fyrir næstum hálfri öld fékk Gunnlaugur Jónsson frá Skeiðháholti fræ sent frá eyjunni Iturup í Kúrileyjaklasanum. Var því að mestu sáð hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Eyjan er mjög hrjóstrug og það sem til er af þessum efnivið hefur frekar myndað runna en tré.

Sjaldgæfari í ræktun er hið ameríska næfurbirki, B. papyrifera. Sennilega er næfurbirki líkust ilmbjörkinni af þeim tegundum sem finna má í ræktun á Íslandi enda tilheyra tegundirnar sömu deild. Þrátt fyrir líkindin er næfurbirki sexlitna tegund á meðan íslenska birkið er ferlitna. Það gæti dregið úr líkum á að tegundirnar myndi frjóa blendinga. Um litninga birkis fjöllum við nánar í sérstökum pistli. Ashburner & McAllister (2013) benda á að ameríska tegundin er með stærri lauf sem hafa fleiri æðstrengi en íslenska birkið. Næfurbriki hefur að jafnaði sjö til níu pör æðstrengja á meðan ilmbjörkin hefur sjaldan fleiri en sex pör æðstrengja og oft færri en það. Að auki eru blöð næfurbjarka heldur mattari en á íslensku birki.
Af því birki sem hingað hefur borist undir þessu heiti hafa aðeins fáar lifað og vaxið. Þegar þessar lifandi plöntur eru skoðaðar betur hefur komið í ljós, að minnsta kosti í sumum tilfellum, að trén tilheyra hengibirki, B. pendula eða mansjúríubirki B. pendula ssp. mandshurica. Þeir Ashburner & McAllister (2013) telja að sú tegund finnist í Alaska en einnig gæti hafa orðið einhver ruglingur á fræjum hér heima.
Þar sem birki, sem sannarlega er næfurbirki, hefur verið plantað hefur árangurinn verið misjafn og oftast frekar lítill. Þar gæti skipt máli að ljóslotan hér er önnur en á heimaslóðum þessarar tegundar. Næfurbirki virðist vera viðkvæmara fyrir því en til dæmis hengibirki. Hér hefur verið plantað næfurbirki frá Alaska, Leifsbúðum á Nýfundnalandi og sjálfsagt víðar. Best gengur í skjólgóðu og frjóu landi.

Aðrar tegundir ættkvíslarinnar eru mjög sjaldgæfar á Íslandi en margt hefur verið reynt. Má nefna gulbirki, B. alleghaniensis, sem lifði í garði Sigurðar Þórðarsonar (2026) í Garðabæ í um 15 ár og náði tveggja metra hæð. Valur Þór Norðdahl (2026) hefur einnig reynt við þessa tegund en árangurinn orðið lítill utandyra þótt plönturnar lifi vel í gróðurhúsauppeldinu. Aftur á móti hafa nýlega borist fréttir af gullbirki sem sáð var í gróðrarstöðinni Þöll fyrir rúmum 15 árum og dreift nokkuð víða. Eitthvað af þeim lifir enn (Steinar Björgvinsson 2026). Ekki er fullreynt með þessa tegund og er vitað að hún er í uppeldi á nokkrum stöðum.

Einnig má nefna tegundir eins og B. raddeana. Það hefur meðal annars lifað í nokkur ár í Eyjafirði (Helgi Þórsson 2026). Tegundin er án íslensks heitis en stungið hefur verið uppá nöfnum eins og flosbirki og kákasusbirki. Svo má nefna svartbirki, B. nigra, sem sennilega er til hjá söfnurum á nokkrum stöðum.
Steinbjörk á Mógilsá sem barst til landsins sem fræ árið 1974 frá Sovétríkjunum sálugu. Ilmbjörk frá Bæjarstað vex miklu betur á sama stað. Undanfarin ár hefur þetta birki þó fengið ákveðið forskot því birkikemba virðist forðast það. Það sama verður hvorki sagt um ilmbirki, mansjúríubirki né hengibirki. Myndir og upplýsingar: Aðalsteinn Sigurbergsson 21. júní 2016.
Þessa upptalningu endum við á að nefna snæbirki, B. utilis frá Asíu. Það vex vel í sumum nágrannalanda okkar og er þar vinsælt. Fjöldi undirtegunda er mikill svo það er langt því frá fullreynt með þá tegund. Tegundin hefur meðal annars verið reynd í Grasagarðinum í Laugardal og vex þar ágætlega. Annars staðar hefur ekki alltaf gengið eins vel. Til dæmist drapst tegundin í Meltungu í Kópavogi þrátt fyrir að þar séu aðstæður til fyrirmyndar.

Samantekt
Í þessum pistli höfum við farið lítillega yfir birkiættkvíslina og helstu tegundir sem reyndar hafa verið á Íslandi. Við sleppum því að ræða um runnakennt birki sem hingað hefur borist nema sömu tegundir geti einnig myndað tré. Við höfum sagt frá því að ættkvíslinni er stundum skipt í hópa eftir einkennum og skyldleika og hvernig hægt er að flokka ættkvíslina í undirættkvíslir og deildir. Við höfum ekki alveg lokið við að segja frá þessari ættkvísl. Í smíðum er pistill um erfðafræði ættkvíslarinnar þar sem við skoðum litningafjölda og fleira skemmtilegt. Seinna segjum við frá ilmbirkinu og einkennum þess.
Þessi pistill á það sameiginlegt með mörgum öðrum að verða ekki til í tómarúmi. Því er sérstök ástæða til að þakka öllum þeim sem veitt hafa okkur upplýsingar og lánað okkur myndir.

Heimildir
Ágúst H. Bjarnason (2026): Upplýsingar í gegnum samskiptamiðla í júlí 2026.
Kenneth Ashburner & Hugh A. McAllister (2013): The Genus Betula. A Taxonomix Revision of Birches. Kew Publishing. Royal Botanic Gardens, Kew.
Britannica, ritsjórn (2026) Betulaceae. Britannica. Sjá: Forest | Definition, Ecology, Types, Trees, Examples, & Facts | Britannica. Sótt 6. apríl 2026.
Helgi Þórsson (2026): Allskonar upplýsingar og ábendingar.
Sigurður Þórðarson (2026): Upplýsingar í gegnum samskiptamiðla 14. júní 2026.
Steinar Björgvinsson (2026): Upplýsingar í gegnum samskiptamiðla 29. septembar 2026.
Valur Þór Norðdahl (2026): Upplýsingar í gegnum samskiptamiðla 14. júní 2026.
Þorsteinn Tómasson (2026): Munnlegar upplýsingar í júlí og ágúst 2026.




Comments