top of page
Search


Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá
Þann áttunda október á því herrans ári 2026 átti ég leið í Vaglaskóg. Veðrið var bjart og fagurt og hver einasta birkihrísla í skóginum hafði fellt laufið. Á heimleiðinni fékk ég hugboð. Því hefur verið fleygt að hið glæsilega staka birkitré í Trjáræktarstöðinni, sem í dag heitir Minjasafnsgarður, sé ættað frá Vöglum. Skyldi svo vera? hugsaði ég. Þá væri það búið að fella laufið. Þá lá leiðin í Trjáræktarstöðina (sem sagt Minjasafnsgarðinn) og þar við hliðið stóð stærðarinnar

Helgi Þórsson
Nov 44 min read


Tegundir birkiættkvíslarinnar
Á Íslandi vaxa tvær tegundir villtar af birkiættkvíslinni. Þær heita birki eða ilmbjörk, Betula pubescens og fjalldrapi, B. nana. Að auki hafa nokkrar tegundir verið reyndar á landinu þótt árangurinn sé býsna misjafn. Erlendis má sjá hinar og þessar tegundir birkis og í þessum pistli fjöllum við um sumar þeirra og helstu tegundir sem reyndar hafa verið hér á landi. Rétt er að taka það strax fram að fræðingar eru hreint ekki sammála um hvernig flokka beri tegundir ættkvíslarin
Sigurður Arnarson
Oct 713 min read


Nánasta fjölskylda birkis
Undanfarnar vikur höfum við í pistlum okkar beint kastljósinu að birkinu sem er algengasta trjátegund landsins og skipar mikilvægan sess í íslenskri vist. Oftast nær höfum við sett inn einn og einn pistil og sagt frá ýmsu öðru þess á milli. Nú ætlum við að birta tvo pistla um skyld málefni sem tengjast birkinu. Í þessum pistli fjöllum við um nánustu fjölskyldu birkisins en í þeim næsta, sem við birtum eftir viku, segjum við frá helstu tegundum ættkvíslarinnar og hvernig hún e
Sigurður Arnarson
Sep 306 min read


Ilmbirki heima og erlendis
Þegar norrænir landnámsmenn komu til Íslands seint á 9. öld okkar tímatals komu þeir að skógivöxnu landi. Aðeins ein tegund myndaði þá samfellda skóga á landinu. Það var birki eða Betula pubescens. Aðrar tegundir, sem mynduðu tré á Íslandi á þessum tíma, voru reynir, Sorbus aucuparia, gulvíðir, Salix phylicifolia og blæösp, Populus tremula. Engin þeirra er talin hafa myndað stóra, samfellda skóga en allar voru þær hluti af birkivistkerfinu. Allar þessar tegundir þekktu landne
Sigurður Arnarson
Sep 917 min read


Birkiættkvíslin - einkenni og þróun
Eina trjátegundin sem myndað hefur stóra, samfellda skóga á Íslandi frá því að ísöld lauk er birki, Betula pubescens Ehrh. Birkið tilheyrir birkiættkvíslinni ásamt fjalldrapa, B. nana L., sem einnig vex villtur á Íslandi. Sumar af norðlægum tegundum ættkvíslarinnar hafa verið reyndar á Íslandi en aðeins tvær tilheyra náttúrulegri flóru Íslands. Um norðurhluta norðurhvels jarðar eru ýmsar birkitegundir býsna algengar og skipta vistkerfin miklu máli. Sunnar á hnettinum má einni
Sigurður Arnarson
Aug 515 min read


Skógarbeit
Það er kunnara en frá þurfi að segja að þegar landnemar Íslands komu hingað fyrir meira en ellefu öldum var landið betur gróið en nú er. Talið er að þá hafi birkiskóga verið að finna á um 25% til 40% landsins eftir því hvaða forsendur vísindamenn hafa gefið sér. Á undraskömmum tíma tókst landnemunum að gjöreyða stærstum hluta þessara skóga. Þar skiptir miklu máli að landnemarnir þekktu ekki hina viðkvæmu náttúru og beit búpenings kom í veg fyrir endurnýjun birkiskógana. Þar s
Sigurður Arnarson
Jun 2415 min read


Birki og beit
Af þeim löndum sem við helst miðum okkur við er Ísland meðal þeirra sem hafa einna minnstu skógarþekju, enda er landið með skógarsnauðustu löndum í heimi. Aðeins um 2% landsins er vaxið skógi eða kjarri. Þar af vex birki á 1,5% landsins. Í þeirri tölu eru bæði birkiskógar og birkikjarr sem er það lágvaxið að það telst ekki til skóga samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum. Rétt er að nefna að birki er sú trjátegund sem mest er plantað af á Íslandi þessi misserin. Því er bæði plantað þa
Sigurður Arnarson
Apr 821 min read


Fræ eru ferðalangar
Flest vitum við að tré stunda ekki göngutúra. Hvert og eitt á í vandræðum með að færa sig úr stað, enda eru tré rótföst. Samt er það svo...
Sigurður Arnarson
Jun 8, 202216 min read
bottom of page
