Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá
Þann áttunda október á því herrans ári 2026 átti ég leið í Vaglaskóg. Veðrið var bjart og fagurt og hver einasta birkihrísla í skóginum hafði fellt laufið.
Á heimleiðinni fékk ég hugboð. Því hefur verið fleygt að hið glæsilega staka birkitré í Trjáræktarstöðinni, sem í dag heitir Minjasafnsgarður, sé ættað frá Vöglum. Skyldi svo vera? hugsaði ég. Þá væri það búið að fella laufið. Þá lá leiðin í Trjáræktarstöðina (sem sagt Minjasafnsgarðinn) og þar við hliðið stóð stærðarinnar allaufguð björk. Með öðrum orðum: Þetta tré er ekki ættað úr Vaglaskógi og það sem meira er, líklega ekki einu sinni frá Íslandi.

Heimildavinna
Í Ársriti Ræktunarfélags Norðurlands (R.N.) árið 1916 er grein eftir Jakob H. Líndal framkvæmdastjóra. Greinin heitir Um trjárækt. Þessari grein gerðum við nokkur skil í þessum pistli þar sem fjallað var um skógrækt fyrir 100 árum.
Í greininni er þrisvar sinnum minnst á norskt birki. Fyrsta tilvísunin er svona:
„Þarna í suðvestur horninu stendur stór birkirunni. Hann er þroskamestur og hæstur af öllu birki í trjáræktarstöðinni, 4,10 mt. að hæð og 25 cm. að stofn-ummáli alin frá jörð. Hefi ég það fyrir satt að Sigurður Sigurðsson skólastjóri hafi haft fræið út með sér frá Noregi í vestisvasa sínum, en þar tók hann það á risavaxinni björk, er felld var á landbúnaðarskólanum á Steini. Mætti þetta benda til þess að trjáplöntum kippir ekki síður í kyn, en mönnum og málleysingjum“.
Næsta tilvísun er á þessa leið:
„Ilmbjörk (Betula odorata) . . . Alin upp nær því árlega, bæði af íslensku og norsku fræi. Hefi ekki getað gert uppá milli hvort vex betur“.
Næst er talað um birkitegund þá sem yfirleitt er kölluð hengibjörk, Betula pendula, í dag.
„Skógarbjörk (Betula verrucosa) . . . Hefir reynst vandfýsnari með vaxtarstaði en ilmbjörkin. Toppkal enn meir. Skýtur þó löngum sprotum af og til, er best lætur í ári.“
Í Ársriti Ræktunarfélagsins 1919–20 er skýrsla eftir Guðr. Þ. Björnsdóttur frá Veðramóti. Þar er tafla yfir ársvöxt sumarið 1919:
Íslenskt birki: Mest 33 cm. Meðaltal 19 cm.
Norskt birki: Mest 45 cm. Meðaltal 36 cm.
Í Ævisögu Sigurðar Sigurðssonar er þessa klausu að finna um upphaf Trjáræktarstöðvarinnar (Minjasafnsgarðsins):
„Til gróðursetningar og fræsáningar valdi hann meðal annars tré og fræ úr Vaglaskógi. Ennfremur hafði hann með sér heim fræ úr Þrændarlögum í Norvegi.“

Um innflutning á fræi í byrjun tuttugustu aldar
Það liggur beinast við í hugum ræktunarafólks að safna reynifræi og birkifræi í okkar nágrenni og svo hefur það verið lengi. En í upphafi tuttugustu aldarinnar hafa menn ekki verið ragir að panta þetta frá útlöndum. Því til sönnunar eru eftirfarandi línur:
Ársrit Rætunarfélags Norðurlands 1917–1918.
„ . . . fræ af vanalegum reyni var ekki mögulegt að fá og er það slæmt, því eftir engu trje er hér meiri eftirspurn en reyni.“
Þetta orðalag bendir til þess að fræið hafi verið pantað en ekki tínt hér heima.
Í ársriti R.N. 1919–1920 segir í grein eftir Guðr. Þ. Björnsdóttur frá Veðramóti.
„ . . . Engu trjáfræi hefir verið sáð í sumar af þeim ástæðum að ekki hefir verið hægt að útvega það.“

Af hverju var ekki innlendu reynifræi eða birkifræi sáð? Var orðin lenska að panta það að utan með lerki, furu og alls konar öðru fræi?
Loks skulum við líta á hvernig innflutningi á reyni var háttað á Hallormsstað á árunum 1903–1932. Í kverinu Innfluttar trjátegundir í Hallormsstaðaskógi, eftir Sigurð Blöndal, segir svo:
„Samkvæmt yfirliti Guttorms Pálssonar (1954) var sáð í gróðrarstöðinni hvorki meira né minna en 140 kg af „erlendu“ reynifræi á árunum 1903–1932. Víst má telja, að langmest af því hafi verið ilmreynir“.
Af þessum heimildum má sjá að menn hafa ekki veigrað sér við að flytja inn erlent fræ af íslenskum tegundum.
Er gamalt birki á Norðurlandi, sem stendur grænt fram í október, norskt?
Hvert er svarið við því? Getur það birki ekki eins verið ættað að sunnan? Úr Skaftafelli eða Bæjarstaðaskógi? Eftir nokkurt grúsk hefur undirritaður ekki fundið neinar heimildir um notkun birkifræs frá Suðurlandi fyrr en í fyrsta lagi á fjórða áratugnum. Trúlega hefur verið miklu auðveldara fyrir Eyfirðinga að senda bréf til Noregs og biðja um fræ þar sem fræ var að fá en að senda einhvern eftir því í Bæjarstaðaskóg.
Með öðrum orðum má telja afar sennilegt að rekist menn á 100 ára birkitré á Norðurlandi, sem stendur grænt fram í október, sé það norskt.

Að lokum
Ég vil nota tækifærið og þakka ritstjóranum, Sigurði Arnarsyni, fyrir að setja þetta allt saman upp, velja myndir og færa textann til betri vegar. Svo las Pétur Halldórsson handritið yfir og lagaði það sem þurfti að laga. Fyrir það á hann skilið þakkir. Helgi Þórsson, Kristnesi.





Comments