top of page
Search


Erfðafræði birkis
Við erum það sem við erum vegna þess hvernig umhverfið mótar okkur og hvaða gen við erfðum frá foreldrum okkar. Þannig er það hjá öllum fjölfruma lífverum og þar með talið hjá trjánum. Í kjarna frumna er þráðlaga frumulíffæri sem kallast litningar (krómósóm). Þeir koma í ljós við frumuskiptingu og eru gerðir úr prótínum og kjarnsýru sem kallast deoxyribonucleic acid og við þekkjum sem DNA. Í sumum eldri bókum er það íslenskað og kallað DKS sem stendur fyrir deoxýríbósakjarnsý
Sigurður Arnarson
6 days ago18 min read


Hið næstum heimsfræga hjóltré
Við vitum að þið, lesendur góðir, eruð almennt vel að ykkur um hin aðskiljanlegustu efni. Þess vegna gerum við ráð fyrir að þið hafið heyrt eða lesið um hjól tímans, lukkuhjól, hjólbarða og fleira í þeim dúr. Samt ekki ánægð hjól. Bara reiðhjól. En fáir hafa heyrt um hjóltré. Hvað veldur því að tré fær svona einkennilegt nafn? Er auðvelt að sveigja við hjóltrjáa þannig að heppilegt sé að smíða úr þeim hjól? Vaxa þau í hring þannig að lag stofnsins minni á hjól? Var fyrsta rei
Sigurður Arnarson
Nov 1110 min read


Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá
Þann áttunda október á því herrans ári 2026 átti ég leið í Vaglaskóg. Veðrið var bjart og fagurt og hver einasta birkihrísla í skóginum hafði fellt laufið. Á heimleiðinni fékk ég hugboð. Því hefur verið fleygt að hið glæsilega staka birkitré í Trjáræktarstöðinni, sem í dag heitir Minjasafnsgarður, sé ættað frá Vöglum. Skyldi svo vera? hugsaði ég. Þá væri það búið að fella laufið. Þá lá leiðin í Trjáræktarstöðina (sem sagt Minjasafnsgarðinn) og þar við hliðið stóð stærðarinnar

Helgi Þórsson
Nov 44 min read


Ættkvísl hlyntrjáa
Sen-no-Rikyu var þjóðþekktur temeistari í Japan á sextándu öld. Þá tíðkaðist ekki að fá sér eitthvert skyndite heldur var allt gert eftir ströngum hefðum og siðum. Þannig er það enn á betri heimilum Japans. Eitt haustkvöld þegar Sen-no-Rikyu hafði sópað garðinn samkvæmt sgildandi siðvenjum og gert allt hreint og fágað fyrir tedrykkju kvöldsins leit hann yfir svæðið og sá að svona fínpússað var umhverfið óspennandi og of gelt fyrir fróma tedrykkju. Því náði hann í tvö eða þrjú
Sigurður Arnarson
Sep 1616 min read


Birkiættkvíslin - einkenni og þróun
Eina trjátegundin sem myndað hefur stóra, samfellda skóga á Íslandi frá því að ísöld lauk er birki, Betula pubescens Ehrh. Birkið tilheyrir birkiættkvíslinni ásamt fjalldrapa, B. nana L., sem einnig vex villtur á Íslandi. Sumar af norðlægum tegundum ættkvíslarinnar hafa verið reyndar á Íslandi en aðeins tvær tilheyra náttúrulegri flóru Íslands. Um norðurhluta norðurhvels jarðar eru ýmsar birkitegundir býsna algengar og skipta vistkerfin miklu máli. Sunnar á hnettinum má einni
Sigurður Arnarson
Aug 515 min read


Fræ eru ferðalangar
Flest vitum við að tré stunda ekki göngutúra. Hvert og eitt á í vandræðum með að færa sig úr stað, enda eru tré rótföst. Samt er það svo...
Sigurður Arnarson
Jun 8, 202216 min read


Gullregn í vetrarbúningi
Í þættinum Tré vikunnar höfum við í vetur annað veifið fjallað um hvernig þekkja má tré að vetri til. Í dag er síðasti vetrardagur og því er við hæfi að þetta verði lokapistillinn um það efni í bili. #TrévikunnarSE er gullregn í vetrarbúningi. Áður hefur verið fjallað um gullregn sem tré vikunnar og má sjá þá umfjöllun hér Eins og kemur fram í eldri umfjöllun eru til tvær tegundir af gullregni. Strandgullregn ( Laburnum anagyroides ) og fjallagullregn ( L. alpinum ). Aðeins
Sigurður Arnarson
Apr 21, 20211 min read


Aspamæður
Sum tré eru tvíkynja. Það merkir að hvert tré er bæði með karl- og kvenkyns æxlunarfæri. Þetta á við um reyni og birki svo dæmi séu nefnd. Önnur tré eru einkynja. Það merkir að hvert tré er annað hvort karlkyns eða kvenkyns. Þannig er því til dæmis farið hjá víðiættinni, en til hennar heyra bæði víðir og aspir. Nú er einmitt sá tími þegar alaskaaspir eru að henda fræjum sínum. Það er nánast eins og það snjói á þurrum dögum og fræin þekja stór svæði og fara víða. Þetta er tilr
Sigurður Arnarson
Jul 30, 20202 min read
bottom of page
