top of page
mainLong-1.png
  • Facebook

Erfðafræði birkis

3 minutes ago
18 min read

Við erum það sem við erum vegna þess hvernig umhverfið mótar okkur og hvaða gen við erfðum frá foreldrum okkar. Þannig er það hjá öllum fjölfruma lífverum og þar með talið hjá trjánum. Í kjarna frumna er þráðlaga frumulíffæri sem kallast litningar (krómósóm). Þeir koma í ljós við frumuskiptingu og eru gerðir úr prótínum og kjarnsýru sem kallast deoxyribonucleic acid og við þekkjum sem DNA. Í sumum eldri bókum er það íslenskað og kallað DKS sem stendur fyrir deoxýríbósakjarnsýra. Í þessu frumulíffæri er erfðaefnið geymt. Í því eru upplýsingar um allt sem þarf til að búa til lífveru og halda henni gangandi. Með nokkurri einföldun má kalla þessa upplýsingageymslu gen.

Beint og fallegt ilmbirki, Betula pubescens, vex upp úr garðamaríustakk, Alchemilla mollis, á umferðareyju á Akureyri. Mynd: Sig.A.
Beint og fallegt ilmbirki, Betula pubescens, vex upp úr garðamaríustakk, Alchemilla mollis, á umferðareyju á Akureyri. Mynd: Sig.A.

Með örfáum undantekningum eru 46 litningarnir í kjarna hverrar mannsfrumu sem geymdir eru í 23 pörum. Í báðum foreldrum okkar urðu til kynfrumur með svokallaðri rýriskiptingu. Kynfrumur hafa 23 litninga ef allt er eðlilegt á meðan aðrar frumur, sem verða til við jafnskiptingu, hafa 23 pör litninga. Þarna liggur munurinn á rýriskiptingu og jafnskiptingu. Við getnað renna kynfrumurnar saman þannig að þessir 46 litningar sameinast í 23 litningapör. Við það verður til okfruma þar sem helmingur litninganna er frá líffræðilegum föður og hinn helmingurinn frá líffræðilegri móður. Í megindráttum má segja að svona sé þetta hjá öllum fjölfruma, tvílitna lífverum en litningarnir og þar með litningapörin eru misjafnlega mörg eftir tegundum lífvera. Við skutum þarna inn orðinu tvílitna. Við erum tvílitna og það merkir að við, líkt og önnur spendýr, erum með tvö pör litninga í kjarna hverrar einustu kjarnafrumu líkamans sem orðið hefur til við jafnskiptingu.

Sauðfé á beit í birkikjarri sem ber merki þess að vera með mikið erfðaefni fjalldrapa í erfðamengi sínu. Mynd: Sig.A.
Sauðfé á beit í birkikjarri sem ber merki þess að vera með mikið erfðaefni fjalldrapa í erfðamengi sínu. Mynd: Sig.A.

Þegar horft er til litninga má segja að eitt mikilvægt atriði hafi þróast á annan hátt hjá mörgum plöntum en hjá dýrategundinni sem af meðfæddu lítillæti kallar sig vitiborna. Spendýr, eins og maðurinn, eru alltaf tvílitna. Það er alls ekki þannig hjá öllum plöntum. Þær geta verið fjöllitna. Það merkir að pörin í hverju sæti eru fleiri en tvö. Hjá tvílitna tegundum getur fjöldi para verið hvort heldur sem er slétt tala eða oddatala en þar sem ekki er hægt að skipta oddatölum jafnt er fjöldi litningaparanna alltaf táknaður með sléttri tölu í fjöllitna tegundum nema í blendingstegundum. Hjá þeim geta litningar orðið út undan við æxlun og eiga ekki möguleika á að parast við aðra litninga. Það getur leitt til erfðagalla eða ófrjósemi.

Birki á Eiðsvelli er ilmbirki, Betula pubescens, með slútandi greinar. Hugsanlega bendir það til erfðaflæðis frá hengibirki, B. pendula. Mynd: Sig.A.
Birki á Eiðsvelli er ilmbirki, Betula pubescens, með slútandi greinar. Hugsanlega bendir það til erfðaflæðis frá hengibirki, B. pendula. Mynd: Sig.A.

Í þessum pistli skoðum við litningana hjá birkiættkvíslinni, Betula, og tökum hana sem dæmi um hvernig þetta getur verið hjá trjám og öðrum plöntum. Birkið hefur grunnlitningatöluna fjórtán en til eru bæði tvílitna tegundir sem hafa 28 litninga og fjöllitna tegundir. Þær hafa allar fjölda litninga sem eru margfeldi af grunnlitningatölunni fjórtán. Þetta er hluti af pistlaröð um birki sem við birtum smám saman.

Efnileg ilmbjörk, Betula pubescens, í Krossanesborgum við Akureyri. Þetta birki er ferlitna tegund (tetraploid) og hefur 56 litninga í hverri frumu. Myndir: Sig.A.

Af hverju birki?

Þegar genarannsóknir á dýrum hófust skipti bananaflugan eða ávaxtaflugan, Drosophila melanogaster, miklu máli. Hún hefur fáa litninga, kynslóðabilið er stutt og hver fluga eignast mörg afkvæmi. Hún hentar því mjög vel til að veita grundvöll til að skilja erfðafræði. Þetta draumadýr erfðafræðinga gæti vel verið mest rannsakaða lífvera í heimi, þökk sé þrotlausri vinnu þolinmóðra erfðafræðinga í áratugi. Ætla má að um það bil tugur fræðinga hafi engið Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á þessu 2,5 mm langa dýri. Þeir geta þakkað það þessari þolinmæði sinni.

Birki á sér fjölbreytt form á Íslandi og skipar stóran sess í íslenskri vist. Hér er það við Hraunfossa í Borgarfirði. Mynd: Sig.A.
Birki á sér fjölbreytt form á Íslandi og skipar stóran sess í íslenskri vist. Hér er það við Hraunfossa í Borgarfirði. Mynd: Sig.A.

Þorsteinn Tómasson (2026) hefur bent á að birkið geti hjálpað okkur að skilja erfðir trjáa og hvernig stuðla má að kynbótum þeirra. Að hans sögn gegnir birkið í rannsóknum á trjám ekki ósvipuðu hlutverki og bananaflugan í almennum genarannsóknum. Samt hefur enginn hlotið Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á birki.

Það hjálpar birkinu að skipa þennan sess að það myndar fræ á ungaaldri þannig að kynslóðabilið er stutt og hvert tré getur eignast mörg afkvæmi. Auðvelt er að ná í frjó og fræva kvenblóm með ólíku frjói. Það er meira að segja hægt að bera frjó af mörgum trjám á eitt birkitré. Þannig er til dæmis hægt að láta hverja grein fá erfðaefni frá einu tré og bera saman afkomendurna. Svo hjálpar einnig að ilmbirki, Betula pubescens, sem er aðalbirkitegundin í Evrópu og eina tegundin sem myndað hefur samfellda skóga á Íslandi, vex víða og er einstaklega léttlynd og fjölbreytt tegund sem myndar auðveldlega alls konar blendinga. Þess vegna, segir Þorsteinn (2026), má líta á birkið sem eins konar módeltegund fyrir tré og runna. Því má segja að birkið sé bananafluga trjárannsókna.

Frjóreklar birkis. Birki getur myndað mikið frjó sem berst víða. Birki getur einnig myndað mikið fræ þegar allt gengur upp. Mynd: Sig.A.
Frjóreklar birkis. Birki getur myndað mikið frjó sem berst víða. Birki getur einnig myndað mikið fræ þegar allt gengur upp. Mynd: Sig.A.

Litningar birkiættkvíslarinnar

Grunnlitningafjöldi allra birkitegunda samanstendur af fjórtán litningapörum eða 28 litningum. Það má skrifa svona: 2n=2x=28. Þetta merkir að frá hvoru foreldri (2n) kemur samtals tvöfaldur litningafjöldi (2x) sem gefur okkur 28 litninga. Þeir eru vitanlega geymdir í fjórtán pörum. Hjá birkiplöntum sem eru tvílitna (diploid) er þetta svona. Frá hvoru foreldri koma þá fjórtán litningar sem passa við fjórtán litninga frá hinu foreldrinu. Til samanburðar má segja að hjá okkar tegund megi tákna þetta svona: 2n=2x=46. Eins og áður segir erum við með 23 litningapör þannig að samtals erum við með 46 litninga. Til eru fjöllitna tegundir birkis. Þær hafa alltaf sama grunnlitningafjölda og tvílitna tegundir en margfeldið er annað. Þannig eru til þrílitna tegundir (triploid) sem eru blendingstegundir. Það má skrá svona: 2n=3x=42 (14+28). Af þessu má sjá að foreldrarnir gefa samtals þrefaldan litningafjölda (3x) sem jafngildir þrisvar sinnum fjórtán litningum. Þetta getur aðeins gerst ef frá öðru foreldrinu koma fjórtán litningar (tvílitna tegund) en frá hinu koma 28 litningar (ferlitna tegund). Almennt er talið að svona blendingar séu oftast ófrjóir enda verða til afgangslitningar sem ekki geta parast. Komið hefur í ljós að blendingar fjalldrapa (sem er tvílitna) og birkis (sem er ferlitna) geta verið frjóir þrátt fyrir að vera þrílitna. Það sama á við um fleiri blendinga innan birkiættkvíslarinnar. Ekki liggur fyrir hversu frjóir slíkir blendingar eru miðað við foreldrana. Þar er ágætt tækifæri fyrir glöggan líffræðinema með áhuga á tölfræði.

Hin asíska tegund snæbirki eða himalajabirki, Betula utilis, sem hér vex í Skotlandi er ferlitna tegund og hefur því 56 litninga í hverri frumu eins og ilmbirki, B. pubescens. Mynd: Sig.A.
Hin asíska tegund snæbirki eða himalajabirki, Betula utilis, sem hér vex í Skotlandi er ferlitna tegund og hefur því 56 litninga í hverri frumu eins og ilmbirki, B. pubescens. Mynd: Sig.A.

Ferlitna tegundir (tetraploid) eru skráðar 2n=4x=56. Þetta merkir að samtals hafa trén fjórfaldan grunnlitningafjölda, enda er 4x14=56. Þannig má halda áfram. Fimmlitna birki (pentaploid) eru blendingar 2n=5x=70 (42+28). Sex litna tegundir (hexaploid) 2n=6x=84. Áttlitna tegundir (octoploid) 2n=8x=112. Tílitna tegundir (decaploid) 2n=10x=140.

Tólflitna tegundir (dodecaploid) 2n=12x=168. Eins og sjá má er ekki vitað til þess að birki myndi blendinga með hærri oddatölum en fimm en blendingar geta auðveldlega myndast milli skyldra tegunda með sama litningafjölda burtséð frá því hversu margir þeir eru. Þeir halda þá áfram að vera með sama litningafjölda nema til komi óvænt stökkbreyting.

Tegundir birkiættkvíslarinnar, Betula

Fjöldi litninga

alnoides, ashburneri, calcicola, chichibuensis, cordifolia, corylifolia, costata, glandulosa, humilis, lenta, luminifera, michauxii, nana, nigra, occidentalis, pendula, populifolia, potaninii, schmidtii.

Tvílitna, diploid

2n=2x=28

pendula x pubescens, nana x pubescens, lenta x pumila

Þrílitna, triploid

2n=3x=42 (14 + 28)

bomiensis, celtiberica, cylindrostachya, ermanii, fruticosa, glandulosa (Goos Bay), gmelinii, microphylla, pubescens, pumila, skvortsovii, tianshanica, utilis, (papyrifera x cordifolia/populifolia/fontinalis)

Ferlitna, tetraploid

2n=4x=56

papyrifera x pumila, papyrifera x (papyrifera x cordifolia/populifolia/fontinalis)

Fimmlitna, pentaploid 2n=5x=70 (42 + 28)

alleghaniensis, chinensis 6x, dahurica 6x, delavayi, papyrifera, raddeana.

Sexlitna, hexaploid

2n=6x=84

chinensis 8x, dahurica, 8x, murrayana

Áttlitna, octoploid

2n=8x=112

fargesii, globispica, insignis, medwediewii

Tílitna, decaploid

2n=10x=140

megrelica

Tólflitna, dodecaploid

2n=13x=168.

gynoterminalis

Óþekkt

Tafla sem unnin er upp úr bók Ashburner & McAllister (2013) yfir allar helstu birkitegundir í heiminum. Aðeins fáar þeirra eiga íslensk heiti og því notum við fræðiheitin. Í töflunni má sjá að fjalldrapi, Betula nana, og hengibjörk, B. pendula, ásamt 17 öðrum tegundum, eru tvílitna. Íslenska ilmbjörkin, B. pubescens, steinbjörk, B. ermanii, og snæbirki, B. utilis, eru ferlitna. Hið ameríska næfurbirki, B. papyrifera, er sexlitna. Vakin skal athygli á að  kirtilbirki, B. glandulosa, er að jafnaði tvílitna en við Gæsaflóa við Nýfundnaland (Goose Bay) er sama tegund ferlitna eins og sjá má í töflunni.

Fjalldrapi, Betula nana, er dvergvaxin tegund af birkiættkvíslinni og vex meðal annars í heiðanna ró en þessi mynd er tekin í Lystigarðinum á Akureyri. Fjalldrapi er tvílitna (diploid) og hefur því 28 litninga í hverri frumu. Það sama má segja um hið líka, ameríska kirtilbirki, B. glandulosa, sem einnig er runni. Mynd: Sig.A.

Hvað er tegund?

Hefðbundin líffræði gerir ráð fyrir að hugtakið tegund nái yfir hóp lífvera sem getur myndað saman frjó afkvæmi. Þannig eru til dæmis öll hundakyn talin til einnar og sömu tegundar. Hún heitir hundur, Canis lupus familiaris. Reyndar geta úlfar, Canis lupus lupus, einnig eignast frjó afkvæmi með hundum og teljast því, strangt til tekið, til sömu dýrategundar. Það sést á fræðiheitinu. Hestar, Equus caballus, og asnar, E. asinus, eru af sömu ættkvísl og geta eignast saman afkvæmi. Hestar hafa 64 litninga en asnar 62. Afkvæmin, sem kallast múlasnar ef móðirin er asna en múldýr ef móðirin er hryssa, hafa 63 litninga. Þau eru að jafnaði ófrjó þótt það þekkist að hryssurnar geti verið frjóar. Þess vegna eru hestar og asnar ekki taldir til sömu tegundar.

Íslenskt birki, Betula pubescens, austan Eyjafjarðar ofan við bæinn Eyrarland. Sjá má að stofninn er dökkur, sennilega vegna erfðablöndunar við fjalldrapa, B. nana. Að auki er það með hangandi greinar. Það gæti verið vegna erfðaflæðis frá hengibirki, B. pendula. Úlfur Óskarsson hefur nefnt, án ábyrgðar, að þetta mætti kalla hengiskógviðarbróður. Mynd: Pétur Halldórsson í júní 2026.

Svona einfalt er þetta ekki hjá plöntum. Má nefna að allar lerkitegundir, Larix spp., sem reyndar hafa verið á Íslandi, virðast ekki eiga í minnsta vanda með að mynda frjóa blendinga. Samkvæmt hefðbundinni líffræði mætti telja þær allar til sömu tegundar. Þetta sýnir okkur að það er mannanna verk hvernig við skilgreinum tegundir. Dýrum og plöntum er alveg sama. Ef til vill væri réttara, að minnsta kosti í sumum tilfellum, að tala um staðbrigði (ecotypes eða ecospecie) frekar en afmarkaðar tegundir þegar ólíkir erfðahópar geta eignast saman frjó afkvæmi. Með hugtakinu er átt við lífverur sem tilheyra sömu tegund en hafa mismunandi svipgerðir sem grundvallast á aðlögun að ýmsum umhverfisþáttum, svo sem hæð yfir sjávarmáli, afráni eða loftslagi, svo eitthvað sé nefnt.

Nálægt toppi af einum af tindum Sjö systra (norska: De syv søstre) í Alstahaug í Nordland vex þetta kræklótta ilmbirki.  Sjö systur er fjallgarður á nánast sömu breiddargráðu og Akureyri. Mynd: Hafdís Bjarnadóttir 3. júní 2026.

Í eina tíð var í tísku að skipta birki í fjölmargar tegundir. Á undanförnum misserum hafa grasafræðingar, með aðstoð erfðafræðinnar, sameinað þessa hópa. Við það hefur tegundum fækkað stórlega. Grundvöllur þeirrar sameiningar er sá að skyldir erfðahópar, sem vaxa á sama svæði og hafa sama litningafjölda, geta auðveldlega myndað frjó afkvæmi og því er munurinn hverfandi milli plöntuhópa sem vaxa nálægt hver öðrum. Þessi meginregla hefur orðið til þess að líkir erfðahópar með sama litningafjölda eru nú almennt taldir til sömu tegunda þótt áður hafi það ekki endilega verið svo. Í stað þess að hver hópur teljist til sérstakra tegunda er nú í mörgum tilfellum frekar talað um undirtegundir eða afbrigði (Ashburner & McAllister 2013). Um muninn á hugtökunum tegund, undirtegund og afbrigði má lesa hér.

Vel má kalla suma erfðahópana staðbrigði frekar en afbrigði eins og Þorsteinn Tómasson (2026) hefur ámálgað. Öll er þessi flokkun mannanna verk og hreint engin eining um hvaða hugtök skuli notuð í hverju tilfelli.

Rauðir haustlitir í birki, eins og hjá þessu tré sem vex í Dimmuborgum, gætu bent til erfðablöndunar við fjalldrapa. Mynd: Sig.A.
Rauðir haustlitir í birki, eins og hjá þessu tré sem vex í Dimmuborgum, gætu bent til erfðablöndunar við fjalldrapa. Mynd: Sig.A.

Frjóir blendingar

Í grasafræðinni er almennt álitið að skyldar tegundir, sem að auki hafa sama litningafjölda, eigi tiltölulega auðvelt með að mynda frjóa blendinga. Aftur á móti er talið að tegundir sem hafa ólíkan litningafjölda myndi sjaldan frjóa blendinga. Breytir þá engu hvort þær teljast skyldar eða ekki (Ashburner & McAllister 2013). Á þessu eru þó mikilvægar undantekningar. Þessi meginregla veldur því að oftast er það þannig að á hverjum afmörkuðum stað er aðeins eina tegund að finna með tiltekinn litningafjölda. Skyldar, jafnvel náskyldar tegundir, hafa að jafnaði ólíkan litningafjölda á hverju svæði sem dregur úr líkum eða kemur jafnvel alveg í veg fyrir að tegundirnar geti blandast að sögn þeirra Ashburner & McAllister (2013). Þeir bæta við að ef skyldar tegundir með sama litningafjölda vaxa á landfræðilega afmörkuðu svæði hljóti eitthvað að koma í veg fyrir að þær blandist svo úr verði ein tegund. Ef það er tilfellið stafar það nánast alltaf af því að tegundirnar þrífist best við ólík skilyrði eða í ólíkri vist. Það getur komið í veg fyrir genaflæði á milli tegundanna því blendingarnir eru illa aðlagaðir þeirri vist sem er í boði nema á röskuðu landi. Það þekkist að til dæmis fjalldrapi og hengibirki, sem hafa sama fjölda litninga, geti myndað blendinga ef tegundirnar vaxa nærri hvor annarri. Plássið fyrir þá blendinga í óröskuðum vistkerfum er mjög takmarkað því tegundirnar velja sér ólíka vist eða þrífast í ólíkum búsvæðum.

Sætbirki eða gullbirki, Betula lenta, er tvílitna tegund. Í villtri náttúru getur hún myndað þrílitna blendinga með fjórlitna tegund sem heitir kræðubirki, B. pumila. Myndin var tekin í Edinborg árið 2025. Mynd: Sig.A.

Í þessu sambandi má minna á að margar víðitegundir geta blandast saman. Samt segja rússneskir og kanadískir plöntufræðingar að í þeirra löndum sé mjög fátítt að rekast á víðiblendinga. Ástæðan er sögð sú að þar er ekki pláss fyrir blendingana. Þar er engin vist sem hentar þeim jafnvel og móðurtegundunum (Jóhann 1997). Ætla má að þetta eigi ekkert síður við um birkiættkvíslina.

Samkvæmt erlendum bókum geta hengibjarkir vaxið á þurrara landi en ilmbjörk og fjalldrapi. Á Íslandi hefur ekki tekist að sannreyna þessa staðhæfingu. Hér vex hengibjörk í garði í skoska bænum Glenfarg. Mynd: Sig.A.

Til að stokka upp erfðaefni trjáa þarf frjó af karlblómi á einu tré að berast á fræni í kvenblómi á öðru tré. Kallast það frævun sem er undanfari frjóvgunar. Frjó getur borist ótrúlega langar vegalengdir og oft er það svo að birkifrjó berst í frjógildrur á Íslandi áður en íslenskt birki blómgast. Slíkt frjó hlýtur að koma frá útlöndum. Ef blómgun íslenska birkisins fer saman við blómgun í útlöndum og frjóið lifir af ferðina yfir hafið getur það hitt fyrir kvenblóm á Íslandi og stuðlað að komu nýrra eiginleika í genamengi íslensks birkis. Fræ birkisins geta einnig borist mjög langt þótt ólíklegra sé að það berist til Íslands frá útlöndum en frjóið. Hæfileiki birkisins til að láta frjó og fræ berast langar leiðir dregur mjög úr möguleikum þess að á afmörkuðu svæði séu fleiri en ein tegund með sama fjölda litninga (Ashburner & McAllister 2013).

Birki getur framleitt mikið fræ. Hér hefur það litað snjóskafl brúndröfnóttan. Mynd: Sig.A.
Birki getur framleitt mikið fræ. Hér hefur það litað snjóskafl brúndröfnóttan. Mynd: Sig.A.

Fjöllitna erfðahópar innan sömu tegundar

Hjá sumum tegundum plantna er þekkt að til séu stofnar með mismunandi litningafjölda þótt þeir tilheyri sömu tegund. Þetta er vel þekkt meðal trjáa og runna. Oft er það þannig að fjöllitna plönturnar vaxa hraðar en tvílitna plönturnar þótt það sé ekki algilt. Meðal þekktra dæma um fjöllitna tegundir á Íslandi má nefna fjallavíði, Salix arctica. Grunnlitningafjöldinn er 19 eins og hjá nánast öllum víðitegundum þannig að tvílitna tegundir hafa 38 litninga. Jóhann Pálsson (1997) segir frá því að sennilegast sé að mismunandi stofnar fjallavíðis hafi mismunandi fjölda litninga. Hann segir að sést hafi plöntur sem eru allt frá því að vera ferlitna (2n=4x=76) til tílitna (2n=10x=190).

Svona mikinn fjölbreytileika fjöllitna hópa sjáum við ekki hjá birkinu. Með einni undantekningu er ekkert dæmi þekkt og staðfest innan sömu birkitegunda um mismunandi litningafjölda fyrr en komið er upp í sex- og áttfaldan litningafjölda og þá er ekki einu sinni víst að rétt sé talið (Ashburner & McAllister 2013). Tvær kínverskar tegundir sem kallast drekabirki, Betula dahurica, og kínabirki, B. chinensis, eru sexlitna tegundir en sagnir herma að fundist hafi áttlitna einstaklingar innan þeirra og er það sýnt í töflunni hér að ofan. Í henni sést að það er kirtilbirki, B. glandulosa, sem er undantekningin. Vel er hugsanlegt að til séu fleiri undantekningar þótt ekki hafi verið sýnt fram á það.

Breytileiki í útliti íslensks birkis er gríðarlegur. Svona einstaklingur á ekki mikla möguleika í vöxtulegum birkiskógi en í illa förnu landi getur hann komið erfðum sínum áfram. Mynd: Sig.A.
Breytileiki í útliti íslensks birkis er gríðarlegur. Svona einstaklingur á ekki mikla möguleika í vöxtulegum birkiskógi en í illa förnu landi getur hann komið erfðum sínum áfram. Mynd: Sig.A.

Litningafjöldi í íslensku birki og fjalldrapa

Árið 2012 skrifuðu Kesara Anamthawat-Jónsson og Ægir Þór Þórsson grein og sögðu frá því að þau hefðu skoðað litninga birkis víða af landinu. Þau skoðuðu litninga úr 461 plöntu úr fjórtán stöðum í skóglendi. Eins og kemur fram hér ofar er ilmbirkið ferlitna (2n=4x=56) en fjalldrapi tvílitna (2n=2x=28). Blendingur þessara tegunda hefur stundum verið nefndur skógviðarbróðir og hann er þrílitna (2n=3x=42). Með því að telja litninga má fá fulla vissu fyrir því hvort um fjalldrapa, skógviðarbróður eða birki sé að ræða. Samkvæmt talningum þeirra Keseru og Ægis voru af þessum 461 plöntu 176 (38,2%) með 28 litninga í hverri kjarnfrumu, 44 (9,5%) með 42 litninga og 241 (52,3%) með 56 litninga. Þessar tölur staðfesta að þrílitna blendingar eru miklu fágætari (innan við 10%) en bæði tvílitna fjalldrapi og ferlitna birki.

Gulur, grænn og rauður. Fjölbreytileiki íslenska birkisins sést meðal annars á haustlitunum. Fjalldrapinn, sem þarna er í sverðinum, kann að hafa þar áhrif. Mynd: Sig.A.
Gulur, grænn og rauður. Fjölbreytileiki íslenska birkisins sést meðal annars á haustlitunum. Fjalldrapinn, sem þarna er í sverðinum, kann að hafa þar áhrif. Mynd: Sig.A.

Þetta segir þó ekki alla söguna. Þau Kesara og Ægir telja að skógviðarbróðir geti bakvíxlast við bæði fjalldrapa og birki. Þrátt fyrir að blendingarnir séu þrílitna eru þeir að jafnaði frjóir. Þannig kemst erfðaefni fjalldrapa inn í erfðamengi birkisins og hefur áhrif á útlit þess og eiginleika. Þegar þrílitna skógviðarbróðir bakvíxlast við birki verða til ferlitna plöntur. Það stafar af því að litningarnir sem skógviðarbróðirinn inniheldur eru 14 frá fjalldrapa og 28 frá birkinu. Við rýriskiptingu geta því orðið til kynfrumur með annaðhvort 14 eða 28 litninga. Ef þær hafa 28 litninga geta þær auðveldlega parast við kynfrumur venjulegs birkis með sama litningafjölda. Kynfrumur með 14 litninga ættu að geta parast við fjalldrapa. Ef fjöldi litninga í kynfrumum er annar (sem vel má hugsa sér) tekur fyrir frekari blöndun. Ef kynfrumur hefðu 21 litning, sem er helmingurinn af 42, gæti hún hvorki parast við fjalldrapa né birki.

Ilmbirki og fjalldrapi geta myndað saman frjóa blendinga þrátt fyrir ólíkan litningafjölda. Myndin sýnir fjalldrapa og sjá má frærekla. Takið eftir að laufin eru ekki odddregin. Það er einkenni fjalldrapa. Mynd: Sig.A.

Bent hefur verið á að fjölbreytileiki í birki er mun meiri en hjá fjalldrapa sem oftast er mjög einsleitur. Það kann að stafa af því að sjaldgæfara sé að bakvíxlunin verði í átt að fjalldrapa en birki.

Þegar Freydís Kristjáns Bersadóttir var í berjamó í Hvestudal í Arnarfirði rakst hún á þessa plöntu sem er gróskumeiri en fjalldrapinn sem þarna vex. Sjá má að laufblöðin eru odddregin en laufið á fjalldrapanum á myndinni hér fyrir ofan er ekki þannig. Einnig sést að sprotarnir eru ljósari og hærðari en algengast er hjá fjalldrapa. Ef til vill er hér komið dæmi um bakvíxlun skógviðarbróður við fjalldrapa. Mynd: Freydís Kristjáns Bersadóttir.

Í grein Þorsteins Tómassonar frá 1994 segir að líklegast sé að „mikill breytileiki í runnkenndu birkiskóglendi eigi uppruna sinn í víxlfrjóvgun skógviðarbróður við birki og því til marks um, að erfðaflæði milli þessara tegunda sé mikilvirkt afl í þróun og útlitsgerð íslenska birkisins“. Að auki segir hann að allan breytileika á birkinu væri hægt að útskýra með erfðaflæði frá fjalldrapa. Því telur hann óþarfi að flokka íslenskt birki sem sérstakt afbrigði. Ashburner & McAllister (2013) eru einnig sannfærðir um erfðaflæði milli þessara tegunda. Aftur á móti draga þeir þá ályktun að einmitt vegna þess sé rétt að flokka íslenskt birki sem sérstakt afbrigði. Það kalla þeir Betula pubescens var. pumilla. Sama afbrigði er til til fjalla og nærri opnu hafi víða á Norðurlöndum, Grænlandi og Kólaskaga að sögn þeirra félaga. Hér ofar er mynd af svona birki í Noregi sem Hafdís Bjarnadóttir tók.

Rétt er að geta þess að þeir Ashburner og McAllister nota ekki hugtakið staðbrigði eða ecotype sem nefnt er hér ofar. Einu sinni var þetta kræklótta birki talið sérstök tegund og kallað kræklubirki eða fjallabirki. Nú hefur erfðafræðin kennt okkur að svo er ekki. Enn eiga grasa- og flokkunarfræðingar eftir að komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig flokka beri birki á Íslandi. Má nefna að í okkar nýjustu heimild greinir Ágúst H. Bjarnason (2026) í sundur tvær undirtegundir á landinu. Annars vegar segir hann að hér vaxi Betula pubescens ssp. pubescens. Það er megintegund birkisins eins og sést á fræðiheitinu. Hins vegar segir Ágúst að hér sé undirtegundin B. pubescens ssp. czerepanovii. Af þessu sést að enn eru fræðingar ekki sammála um hvort hér séu undirtegundir eða afbrigði af ilmbirki.

Þessi mynd er tekin í íslenska hluta Lystigarðsins á Akureyri. Í forgrunni er fjalldrapi en fyrir miðri mynd er lágvaxið birkitré. Það er merkt sem Betula nana x pubescens, skógviðarbróðir. Sennilega er það rétt en til að fá það staðfest þyrfti að telja litningana. Þetta gæti einnig verið birki sem orðið hefur til við bakvíxlun skógviðarbróður við birki.  Þá er litningafjöldinn sá sami og í öðru ilmbirki. Rétt er að geta þess að Ágúst H. Bjarnason (2026) kallar skógviðarbróður Betula x intermedia. Mynd: Sig.A.

Fleiri blendingar birkis á Norðurlöndum

Nú er talið að á Norðurlöndum vaxi þrjár villtar tegundir birkis. Það eru fjalldrapi, Betula nana, sem er tvílitna, hengibirki, B. pendula (eða B. verrucosa), sem er einnig tvílitna og svo ilmbirki, B. pubescens. Síðasttalda tegundin er ferlitna og sumir hafa fært fyrir því rök að hún hafi upphaflega orðið til við blöndun eða samruna hinna tveggja tegundanna og stökkbreyting séð til þess að blendingurinn varð ferlitna. Við förum ekki djúpt í þau fræði hér en við nefndum í þessum pistli að þetta kunni að vera ástæða þess hversu auðveldlega ilmbirkið myndar blendinga með bæði hengibirki og fjalldrapa þótt það séu tvílitna tegundir. Einnig má nefna að kjörlendi ilmbirkisins er nokkurn veginn á milli fjalldrapa og hengibirkis. Ef til vill var einmitt pláss fyrir birkið vegna þess.

Birki vex upp úr fjalldrapa í Dimmuborgum. Þarna eru öll skilyrði til að mynda blendinga. Mynd: Sig.A.
Birki vex upp úr fjalldrapa í Dimmuborgum. Þarna eru öll skilyrði til að mynda blendinga. Mynd: Sig.A.

Í bók sinni frá 1974 segir Johannes Lid frá blendingi ilmbirkis og fjalldrapa í Noregi og Svíþjóð. Hann segir einnig að fjalldrapi og hengibjörk geti myndað blendinga sem þarf ekki að koma á óvart enda hafa þær sama litningafjölda. Þeir blendingar eru þó fátíðir því tegundirnar vaxa sjaldan nálægt hvor annarri enda eiga þær sér ólíkt kjörlendi. Hengibirki vex ekki villt á Íslandi en ef til vill getur það gerst að frjó þess berist til Íslands og frævi fjalldrapa. Þannig gæti fjalldrapi virkað sem eins konar genabrú milli birkis og hengibjarka og borið gen úr síðarnefndu tegundinni til þeirrar fyrrnefndu.

Við Sniðgötu á Akureyri stendur þetta birki sem flokkað er sem ilmbirki. Engu að síður hefur það hangandi greinar eins og hengibirki. Öll önnur einkenni benda til ilmbirkis. Við sögðum frá þessu tré í þessum pistli. Árið 1998 útnefndi Skógræktarfélag Íslands það sem tré ársins. Mynd: Sig.A.

Lid (1974) segir einnig frá því að ilmbirki geti myndað blendinga með hengibjörkum. Því þarf hengibirkið ekki að nota fjalldrapa sem genabrú þótt það geti hugsanlega gerst.

Í pistli okkar um efnilegt birki í Oddeyrargötunni sögðum við frá því að það tré bæri einkenni bæði hengibjarkar og ilmbjarkar. Því miður hefur okkur ekki tekist að staðfesta að tréð myndi frjó eða fræ. Ef til vill er það ófrjótt eins og títt er um blendinga annarra tegunda.

Glæsileg, beinvaxin björk sem hefur einkenni ilmbjarkar og hengibjarkar. Trúlegast er það blendingur og mætti skrá hann sem Betula pendula x pubescens. Mynd: Sig.A.
Glæsileg, beinvaxin björk sem hefur einkenni ilmbjarkar og hengibjarkar. Trúlegast er það blendingur og mætti skrá hann sem Betula pendula x pubescens. Mynd: Sig.A.

Til eru fleiri tré á Akureyri sem bera einkenni sem hugsanlega má rekja til hengibjarka þótt svo þurfi ekki endilega að vera. Margar hengibjarkir bera hangandi greinar og fræðiheitið, Betula pendula, vísar í þær. Stundum hefur ilmbjörkin svona slútandi greinar. Þá telja sumir að þær hljóti að vera hengibjarkir en önnur einkenni benda ekki til þess að svo sé. Við höfum sagt frá nokkrum slíkum trjám í pistlum okkar. Má nefna Sniðgötubirkið en mynd er af því hér ofar. Einnig er glæsilegt tré í Minjasafnsgarðinum ágætt dæmi. Við höfum stundum kallað svona birki slútbirki. Það er þá ekki tegundarheiti heldur vísar það í sérstakt vaxtarlag sem sjá má hjá stöku ilmbjörkum. Ekki er loku fyrir það skotið að erfðaefni hengibirkis eigi þarna hlut að máli en ef til vill er þetta hliðstæð þróun.

Glæsilegt birki með slútandi greinar í Minjasafnsgarðinum á Akureyri. Nýjar upplýsingar um þetta tré munu birtast fljótlega í pistli eftir Helga Þórsson. Mynd: Sig.A.
Glæsilegt birki með slútandi greinar í Minjasafnsgarðinum á Akureyri. Nýjar upplýsingar um þetta tré munu birtast fljótlega í pistli eftir Helga Þórsson. Mynd: Sig.A.

Birki og beit

Í þessum pistli sögðum við frá því að talið er að við landnám hafi birkiskógar Íslands víða verið mun vöxtulegri en þeir eru í dag. Það sést meðal annars í Drumbabót í Fljótshlíð þar sem sjá má leifar vöxtulegs birkis. Þar sem fjalldrapi er ekki eins bragðgóður í munni sauðfjár og birki þá bítur féð frekar birki en fjalldrapa. Með ofbeit og annarri ósjálfbærri landnýtingu hefur því skapast pláss fyrir blendinga fjalldrapa og birkis sem aftur og aftur hafa bakvíxlast við birkið. Í hvert skipti kemur meira erfðaefni fjalldrapa í genamengi birkisins og þar með verður það ekki eins bragðgott. Það eykur álagið á arfhreinna birkið sem frekar er étið. Þannig á beitin stóran þátt í að búa til það birki sem nú einkennir landið. Á sömu sveif hefur lagst að þegar ná þurfti í smíðavið voru bestu trén auðvitað höggvin niður. Beitin kom svo í veg fyrir endurnýjun birkisins eins og sjá má víða um land enn í dag. Til frekari fróðleiks bendum við á pistilinn sem vísað er í fremst í þessum kafla.

Sjá má að neðstu greinarnar vantar á þetta birki. Þær eru étnar af sauðfé um leið og þær myndast. Beitin kemur einnig í veg fyrir að birkið endurnýi sig. Eftir því sem meira er af erfðaefni fjalldrapa í birkinu því betur þolir það beitina. Sjá má á sinumyndun að beitin er ekki talin þung á þessu svæði þótt hún komi í veg fyrir endurnýjun birkisins. Mynd: Sig.A.

Svona land má víða sjá á Íslandi. Í rofinni fjallshlíð má sjá raskað vistkerfi þar sem vex ilmbirki, Betula pubescens, og fjalldrapi, B. nana. Athygli vekur að birkitréð á myndinni er með hvítan stofn. Annað birki er þarna runnkennt. Það gætu sem best verið blendingar birkis og fjalldrapa eða ungt birki sem á eftir að verða að trjám. Í hinu rofna landi er pláss fyrir blendinga en beit dregur úr eða kemur í veg fyrir uppgræðslu. Mynd: Sig.A.

Að lokum

Í þessum pistli höfum við greint stuttlega frá erfðum og litningum birkiættkvíslarinnar. Í forgrunni er íslenska birkið. Allt bendir til að útlit birkis á Íslandi megi rekja til blöndunar við fjalldrapa. Sennilega hefur ósjálfbær landnýting, allt til vorra daga, átt sinn þátt í þeirri þróun. Með kynbótum má stuðla að bötun birkisins og stefna að því að fá að nýju glæsilegar bjarkir til að mynda skóga á Íslandi. Í framhaldinu munum við birta fleiri pistla um birki, notkun þess og einkenni. Svo má vel vera að við skoðum aðeins kynbætur á birki í fyllingu tímans. Að lokum viljum við þakka Þorsteini Tómassyni fyrir ánægjulegt spjall og þarfar ábendingar sem nýttust við gerð pistilsins. Einnig þökkum við þeim Freydísi Kristjáns Bersadóttur fyrir mynd af stórvöxnum fjalldrapa og Hafdísi Bjarnadóttur fyrir að mynda fyrir okkur fjallabirki í Noregi. Pétur Halldórsson fær þakkir fyrir þarfan og vandaðan yfirlestur handrits og gagnlegar ábendingar. Allar rangfærslur, sem alveg örugglega má finna í pistlinum, skrifast á höfund sem á það til að vera glapyrtur.

Borgfirskt birki sem greinilega hefur í sér töluvert erfðaefni frá fjalldrapa. Mynd: Sig.A.
Borgfirskt birki sem greinilega hefur í sér töluvert erfðaefni frá fjalldrapa. Mynd: Sig.A.

Helstu heimildir

Kenneth Ashburner & Hugh A. McAllister (2013): The Genus Betula. A Taxonomic Revision of Birches. Kew Publishing. Royal Botanic Gardens, Kew.

Ágúst H. Bjarnason (2026): Flórulyklar. Greiningarbók háplantna á Íslandi. Gefið út á kostnað höfundar.

Jóhann Pálsson (1997): Víðir og víðiræktun á Íslandi. Skógræktarritið 1997, bls. 5-36. Skógræktarfélag Íslands. Reykjavík.

Kesara Anamthawat-Jónsson og Ægir Þór Þórsson (2012): Bæjarstaðarbirki. Skógræktarritið 2012, 1. tbl., bls. 16-21. Skógræktarfélag Íslands. Reykjavík.

Johannes Lid (1974): Norsk og Svensk Flora. Det Norske Samlaget, Oslo.

Þorsteinn Tómasson (1994): Af ástum fjalldrapa og bjarkar – áhrif þeirra á útlit og breytileika íslenska birkisins. Skógræktarritið 1994 Bls. 35-47. Ársrit Skógræktarfélags Íslands. Reykjavík.

Þorsteinn Tómasson (2026): Munnlegar upplýsingar og ánægjulegt, fróðlegt spjall.

Comments

Heimilisfang:

Skógræktarfélag Eyfirðinga

Kjarnaskógi

600 Akureyri

Netfang: ingi@kjarnaskogur.is

bottom of page