top of page
Search


Gráelri frá Evrópu - Annar hluti
Undanfarin misseri höfum við reglulega birt pistla um elri og elritegundir sem sjá má hér . Þar sem við erum sannfærð um að elritegundir séu vannýttar í skógrækt, garðrækt og landgræðslu ætlum við að halda þessari umfjöllun áfram. Fyrir nokkrum vikum birtum við fyrsta pistil okkar um evrópskt gráelri . Við vinnslu hans kom í ljós að okkur liggur mikið á hjarta um þessa elritegund sem hefur verið lengur í ræktun á Íslandi en annað elri. Því má líta á þennan pistil sem framhald
Sigurður Arnarson
Apr 115 min read


Tré ölrakóngsins. Fyrri hluti
Ungur drengur ríður í fangi föður síns gegnum myrkt skógarþykkni í mýrlendi. Barnið heyrir þá í hinum illa ölrakóngi og sér bæði svip hans og dóttur hans sem er alveg jafnógnvekjandi. Konungurinn reynir að villa feðgunum sýn og lokka þá til sín. Litli drengurinn er hræddur, varar föður sinn við og deilir með honum áhyggjum sínum. Faðirinn dregur úr þessu öllu og trúir ekki varnaðarorðum sonar síns. Hann segir drenginn aðeins heyra skrjáfið í laufinu og sjá hvernig tunglsljósi
Sigurður Arnarson
Mar 1816 min read


Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti
Eftir langa og snjóþunga vetur vorar loksins í háfjöllum Evrópu. Veðrið fer hlýnandi og sólin skín, nema ef hlýindunum fylgja rigningar eins og stundum gerist. Hvort heldur sem er bráðnar snjórinn hratt og vatnið safnast saman í læki sem fossa niður hlíðarnar og geta jafnvel brotið nokkurt land og borið í burtu dýrmæta mold með þeirri næringu sem í henni kann að vera. Þarna í fjöllunum renna lækirnir saman í straumharðar ár sem á vorin geta flætt yfir bakka sína og fært umhve
Sigurður Arnarson
Feb 2512 min read


Runnkennt elri til landgræðslu - Seinni hluti: Tegundir
Í norðurhluta Evrópu, Ameríku, Asíu og í fjöllum sunnar í sömu álfum vex elri sem oftast myndar kjarr frekar en skóg. Nú er mest af því flokkað sem ein safntegund. Þetta runnkennda elri vex gjarnan við skógarmörk og getur lifað og vaxið við skilyrði sem reynast öðrum tegundum trjáa og runna strembin. Um þetta fjölluðum við í fyrri hluta þessa pistils sem lesa má hér . Í þeim pistli lofuðum við að fjalla nánar um mismunandi hópa þessa elris. Hér kemur sú umfjöllun. Myndarlegt
Sigurður Arnarson
Jan 1420 min read


Runnkennt elri til landgræðslu - Fyrri hluti: Almennt
Víða er þörf á að græða upp land á Íslandi. Stundum er talið að hástig landgræðslu sé fólgið í því að búa til skóg eða akra úr örfoka landi. Þar sem þessi pistill er hluti af pistlaröð um tré, skóga og tengd málefni geymum við akrana í þetta skiptið en höldum okkur við ræktun skóga og kjarrs. Stundum, þegar illa farið land er tekið til ræktunar, er byrjað á því að reyna að koma lífi í landið , til dæmis með notkun belgjurta eða endurtekinni áb urðargjöf sem í sumum tilfell
Sigurður Arnarson
Jan 716 min read


Helstu elritegundir
Á Íslandi vaxa nokkrar tegundir af ættkvíslinni Alnus sem á íslensku kallast elriættkvísl. Í fyrri pistlum okkar um ættkvíslina sögðum við frá því að elri og birki er af sömu ætt og tilheyra mjög skyldum ættkvíslum. Jafnvel svo mjög að elrið er talið hafa þróast frá einni grein birkiættkvíslarinnar. Í þeim pistlum sögðum við frá hinu og þessu um elriættkvíslina en í þessum þriðja pistli okkar um elri reynum við að setja fram yfirlit yfir helstu tegundir og hópa innan ættkvís
Sigurður Arnarson
Dec 3, 202516 min read


Saga elris
Fyrir fáeinum vikum birtum við pistil um hina ágætu elriættkvísl. Tegundir af þeirri ættkvísl eru gagnlegar í skógrækt, garðyrkju, landgræðslu og sem götutré. Nú höldum við áfram að segja frá þessari ættkvísl sem rækta mætti mun meira en nú er gert. Í þessum pistli fjöllum við um ættina og ættkvíslina sem elrið tilheyrir og segjum aðeins frá náttúrusögu ættkvíslarinnar. Við segjum einnig frá erfðaflæði innan ættkvíslarinnar og frá ýmsu smálegu. Flestar elritegundir, eins og þ
Sigurður Arnarson
Oct 1, 202517 min read


Elri. Hjálplegt, gagnlegt og fallegt
Elri eða Alnus Mill. myndar fögur tré í skógum og görðum landsmanna sem halda grænum laufum sínum langt fram á haust. Elriættkvíslin er einnig ein af þeim ættkvíslum sem til greina koma til varanlegra landbóta á Íslandi. Þegar það er ræktað í skógum eða til landgræðslu bætir það jarðveginn fyrir annan gróður. Það tilheyrði flóru landsins stærstan hluta síðustu ísaldar en dó að lokum út og sást ekki aftur fyrr en menn fóru að planta því aftur í litlum í byrjun 20. aldar ( Si
Sigurður Arnarson
Aug 27, 202519 min read


Blóm gráelris
Gráelri eða gráölur er lauftré af birkiætt (Betulaceae) og líkist birkinu nokkuð. Einn helsti kostir elriættkvíslarinnar ( Alnus ) sem gráelrið tilheyrir er að plönturnar lifa í sambýli við örverur af ættkvíslinni Frankia sem vinna nitur beint úr andrúmsloftinu. Því hefur elrið jákvæð áhrif á frjósemi þess vistkerfis sem það lifir í. Það er sjálfri sér nægt um nitur og miðlar því til svarðnauta sinna. Elri er #TrévikunnarSE. Elrið, líkt og frænkur þess bjarkirnar ( Betula ),

Sigurður Arnarson
Mar 23, 20212 min read


Elri að vetri til
Ein af þeim ættkvíslum lauftrjáa sem tiltölulega auðvelt er að þekkja í vetrarbúningi er ættkvísl elritrjáa ( Alnus ). Því er elri #TrévikunnarSE að þessu sinni. Til eru fjölmargar tegundir elris í heiminum og hafa margar þeirra verið reyndar hér á landi og gefist ágætlega. Elrið er af sömu ætt og birki ( Betula ) en hefur á rótum sínum sambýli við gerla sem eru svo elskulegir að vinna nitur beint úr andrúmsloftinu. Elrið getur því haft jákvæð áhrif á frjósemi vistkerfa. Til

Sigurður Arnarson
Jan 27, 20211 min read


Frjókorn elris
Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands, ni.is, kemur fram að byrjað er að mæla frjókorn á Akureyri þetta vorið. Daglegar niðurstöður verða birtar frá og með 1. maí. Einkum eru það súrur, grös og birki sem framleiða frjókorn sem valda ofnæmi hjá Íslendingum. Frjókorn eru farin að mælast á Akureyri og eru það frjókorn elritrjáa og -runna. Elri er af sömu ætt og birki en annarri ættkvísl ( Alnus á fræðimáli) og hér á landi er tæpur tugur ræktaður af Alnusættkvíslinni. Algengasta e

Sigurður Arnarson
Apr 25, 20201 min read
bottom of page
