top of page
Search


Ber í skógi
Dagur nakta garðyrkjumannsins er haldinn árlega fyrsta laugardag í maí. Enn á eftir að ákveða hvenær dagar nakta skógræktarmannsins og nakta skógargestsins eru haldnir. Þrátt fyrir heiti pistilsins viljum við flest vera sæmilega til fara í skóginum eða að minnsta kosti með tilhlýðanlegan fjölda flíka á kroppnum nema ef til vil í undantekningartilfellum. Þess vegna verður ekki frekar fjallað um fatnað, eða skort á honum, í þessum pistli. Hann fjallar um ber í skógi en ekki um
Sigurður Arnarson
1 day ago7 min read


Skógarbotnsplöntur
Þar sem tvö tré koma saman, þar er skógur. Aðstæður fyrir annan gróður en tré eru gjörólíkar í og utan við skóga. Sérstaklega ef trén eru fleiri en tvö. Þess vegna er farið dálítið frjálslega með sannleikann í þessari tilvitnun hér í byrjun og sennilega á það sinn þátt í að gera hana svona eftirminnilega. Allar grænar plöntur ljóstillífa. Því er birta og sólarljós þeim alger nauðsyn. Þar sem í skóginum vaxa að jafnaði mörg tré verður meiri birta utan við skóginn en víðast hva
Sigurður Arnarson
Jun 1013 min read


Þróun skógarbotnsins
Víðast hvar á Íslandi ber landið glögg merki þess að hér hefur fólk búið í meira en ellefu hundruð ár án þess að gera sér að fullu grein fyrir því hvað landið þyldi. Fólkið kom að skógivöxnu landi og hóf þegar að höggva trén í ýmsum tilgangi. Það gat nýtt timbrið á fjölbreyttan hátt, til dæmis til smíða og kolagerðar, en einnig þurfti að rýma fyrir ræktun gróðurs og búfjár. Sjálfsagt hafa landnemarnir talið að af nægu væri að taka enda telja fræðingar að þá hafi um 25-40% lan
Sigurður Arnarson
Mar 421 min read
bottom of page
