top of page
mainLong-1.png
  • Facebook

Ber í skógi

11 minutes ago
7 min read

Dagur nakta garðyrkjumannsins er haldinn árlega fyrsta laugardag í maí. Enn á eftir að ákveða hvenær dagar nakta skógræktarmannsins og nakta skógargestsins eru haldnir. Þrátt fyrir heiti pistilsins viljum við flest vera sæmilega til fara í skóginum eða að minnsta kosti með tilhlýðanlegan fjölda flíka á kroppnum nema ef til vil í undantekningartilfellum. Þess vegna verður ekki frekar fjallað um fatnað, eða skort á honum, í þessum pistli. Hann fjallar um ber í skógi en ekki um að vera ber í skógi.

Við sem hrífumst af skógum njótum þeirra með ýmsu móti. Eitt sem mörg okkar sækjast eftir er að tína ber, sveppi og annað matarkyns sem finna má í skóglendi. Í þessum pistli skoðum við berin sérstaklega. Einkum þau sem hæf eru til manneldis.

Gróskumikill skógarbotn í Kjarnaskógi. Ætli það sé ekki eitthvað ætilegt þarna? Mynd: Sig.A.
Gróskumikill skógarbotn í Kjarnaskógi. Ætli það sé ekki eitthvað ætilegt þarna? Mynd: Sig.A.

Böl eða blessun

Stundum er því haldið fram að skóglendi sé til mikillar bölvunar fyrir þá sem sækjast eftir því að tína ber í náttúru Íslands. Það er vissulega rétt að sumar tegundir berjalyngs, einkum krækiber, Empetrum nigrum, þrífast ekki í miklum skugga. Aðrar tegundir, svo sem, bláber, Vaccinium uliginosum, aðalbláber, V. myrtillus, hrútaber, Rubus saxatilis, jarðarber, Fragaria spp., og margar rifstegundir, Ribes spp., ásamt ýmsum öðrum tegundum geta vaxið prýðilega í skógum sem ekki eru of þéttir og varpa því ekki of miklum skugga. Þar geta þessar tegundir myndað gómsæt ber. Þetta þekkja mörg okkar sem séð hafa ber í erlendum skógum jafnt sem á Íslandi.

Allar ofangreindar tegundir má finna í íslenskum skógum. Enn eru ónefndar tegundir eins og reynir, Sorbus spp., yllir, Sambucus spp., rósir, Rosa spp. og misplar, Cotoneaster spp., sem vissulega geta vaxið í skógum og myndað ber. Þau ber metta þó frekar fugla en menn þótt á því séu undantekningar. Það má eiginlega segja að hægt sé að borða öll ber í íslenskum skógum en sum bara einu sinni. Þau teljast óæt. Raunin er sú að fjöldi berjategunda vex í skógum og tegundum fer fjölgandi en stundum þarf að hjálpa þeim að nema land.

Í Hjallaskógi ofan Neskaupstaðar eru þéttar breiður af aðalbláberjalyngi undir nokkuð þéttum, ógrisjuðum skermi af stafafuru. Innan um lyngið vex meðal annars blágresi og reyniviður. Aðalbláberjalyngið er mun þéttara og gróskumeira undir furunni en á berangri í kring. Mynd og upplýsingar: Aðalsteinn Sigurgeirsson.

Um ber í skógi

Þetta er þriðji pistill okkar þar sem við beinum sjónum okkar fyrst og fremst að skógarbotninum en hér má lesa fyrri pistla okkar um hann. Ef og þegar við birtum fleiri pistla um efnið má sjá þá á sama stað. Þetta er jafnframt fyrsti pistillinn sem fjallar sérstaklega um ber í skógarbotninum en við lofum að þeir verða fleiri ef áhugi er fyrir hendi. Hann metum við út frá því hversu oft pistillinn er opnaður af lesendum okkar.

Við getum upplýst að við vorum í dálitlum vandræðum með það hvernig best væri að skrifa þessa pistla um berjaskóga því efnið er víðfemt. Niðurstaðan varð sú að skipta efninu fyrst og fremst eftir ættum eða ættkvíslum svo hver pistill verði ekki of langur. Þessi pistill er eins konar inngangspistill en næst skoðum við lyngættina sérstaklega og þau ber sem hún myndar og þrifist geta í skógum. Seinna fjöllum við um annars konar ber ef þetta fellur í kramið hjá lesendum okkar.

Þar sem þetta er fyrsti pistillinn um ber í skógi byrjum við á að skoða hvaða forsendur þurfa að vera fyrir hendi til að ber fái þrifist í skóglendi.

Í Fannardal í Norðfirði er uppvaxandi eikarskógur. Í honum má meðal annars finna eini í tilvonandi skógarbotni. Ber einis má nota sem krydd eins og þekkt er. Þarna er líka bláberjalyng að taka á sig haustliti. Bláber geta vel vaxið í skógum. Mynd: Einar Gunnarsson.

Birta

Til að ber geti þrifist í skógi þurfa ákveðnar forsendur að vera fyrir hendi. Fyrst og fremst þarf aðgengi að birtu að vera sæmilegt. Þar skilur á milli berja og sveppa. Sveppir ljóstillífa ekki og eru því ekki háðir birtu á sama hátt og grænar plöntur. Margar tegundir runna og annarra æðplantna geta vel vaxið í nokkuð skuggsælum skógum en sumar þeirra blómstra lítið og mynda ekki ber nema þar sem birta er næg.

Í þéttum skógum getur samkeppni um pláss fyrir rætur einnig dregið úr vexti botngróðurs en þar sem það fer vanalega saman við skort á birtu skoðum við það ekki frekar í þessum pistli.

Birta í skógum getur verið með ýmsu móti. Sjálfsagt er að hafa það í huga þegar skógar eru skipulagðir og grisjaðir. Það getur aukið á dulúð þeirra að sums staðar séu trén það þétt að fáar plöntur þrífist undir þeim. Á slíkum stöðum er ekki hægt að ætlast til að mikið sé um ber. Annars staðar í skóginum eru aðrar tegundir trjáa eða þéttleikinn minni. Þar kemst meiri birta í botninn. Svo má eflaust finna rjóður og jaðra, til dæmis meðfram stígum, þar sem mikil birta kemst til jarðar. Í skógi getur berjatíminn orðið lengri enda er birtan miklu fjölbreyttari í skógi en utan hans.

Undir skermi stafafuru sem hefur verið grisjuð og uppkvistuð, í sunnanverðu Ölfusi,vaxa tvær tegundir af ættkvíslinni Rubus. Það eru hrútaber, R. saxatilis, og hindber, R. idaeus og gefa þær báðar ljómandi uppskeru. Þar sem hálfskugganum sleppir taka aðrar tegundir, svo sem mjaðjurt, Filipendula ulmaria, við. Mjaðjurt getur lifað í björtum skógum en myndar engin ber eins og kunnugt er. Upplýsingar og mynd 26. september 2026: Aðalsteinn Sigurgeirsson.

Samkvæmt bókinni Elements of Ecology (2015) kemst 70-80% af sólarljósi, sem nær niður í skógarbotninn, niður um svokallaðar ljósopnur í laufkrónunni. Allt skapar þetta mismunandi vist og á hverjum stað geta verið mismunandi berjaplöntur. Því meiri birta, þeim mun fyrr myndast berin í skógarskjólinu. Þetta getur leitt til þess að plöntur af sömu tegund þroski ber á mismunandi tíma í skóglendi. Það lengir uppskerutímann eins og við nefndum í lok síðasta kafla. Það getur meðal annars glatt yngri kynslóð gesta í skóglendi. Þeir geta tínt upp í sig ber yfir lengra tímabil en ella. Aftur á móti getur þetta líka orðið til þess að sums staðar þroskist berin mjög seint eða jafnvel ekki.

Mynd úr bókinni Elements of Ecology frá 2015 sem sýnir hversu lítill hluti sólarljóssins kemst niður í skógarbotninn í þéttum skógum. Stærsti hluti þessa ljóss sem þangað kemur kemst niður um svokallaðar ljósopnur eða sunflecks sem ekki eru á myndinni. Því getur verið nokkuð mikil birta á afmörkuðum svæðum. Þar geta berjarunnar myndað ber.

Skógarbotn í greniskógi í Guðmundarlundi í Kópavogi. Ljósið nær til botns í gegnum ljósopnur og úr jaðrinum. Mynd: Sig.A.
Skógarbotn í greniskógi í Guðmundarlundi í Kópavogi. Ljósið nær til botns í gegnum ljósopnur og úr jaðrinum. Mynd: Sig.A.

Aðrar forsendur

Annað skiptir einnig töluverðu máli í fjölbreyttum skógum. Jarðvegur er ekki alls staðar eins. Mismunandi rakastig og frjósemi getur einkennt fjölbreytta skóga. Að vísu er það þannig að smám saman eykst frjósemin í skógum, lífríkinu til heilla. Mismunandi þættir umhverfisins kalla á mismunandi tegundir runna og trjáa og er sjálfsagt að nýta það til að fjölga tegundum berja í skóginum. Sýrustig jarðvegs getur einnig haft áhrif en miðað við reynslu á Íslandi virðast áhrif þess minni en ætla mætti.

Í Selskógi í Skorradal er mikið af aðalbláberjalyngi. Þar kann að skipta máli að berggrunnurinn í skóginum er súr. Mynd og upplýsingar: Narfi Hjartarson.
Í Selskógi í Skorradal er mikið af aðalbláberjalyngi. Þar kann að skipta máli að berggrunnurinn í skóginum er súr. Mynd og upplýsingar: Narfi Hjartarson.

Enn er ónefnt að plöntur sem skartað geta berjum eru af mismunandi hæð. Hætt er við að ef gróskan er mikil í skógarbotninum geti lágvaxnari plöntur lent í vandræðum í samkeppninni við hærri plöntur. Í vel þroskuðum skógarvistkerfum er að jafnaði að finna svokallað runnalag og margir berjarunnar tilheyra auðvitað því lagi. Þar fyrir neðan er talað um graslag. Í því finnast einnig blómplöntur og lyng. Sumir runnar eru það lágvaxnir að vafamál er hvort rétt sé að flokka þá með runnalaginu eða graslaginu. Nefna má að flestar tegundir lyngættarinnar, Ericaceae, tilheyra frekar graslaginu en runnalaginu enda mynda tegundir ættarinnar fyrst og fremst smárunna sem við köllum lyng eins og nafn ættarinnar bendir til. Það eru aðeins innfluttar tegundir af þeirri ætt sem teljast til runnalagsins.

Það sem sagt er hér að ofan miðar fyrst og fremst við skóga en hið sama á auðvitað einnig við um aðra trjáreiti svo sem sumarbústaðalönd og jafnvel stóra garða. Víða er hægt að rækta berjaplöntur.

Brynjudalsskógur í Hvalfirði er dálítið sérstakur því þar hefur barrskógur verið grisjaður hægt og rólega til að fá jólatré. Að auki hefur verið grisjað til að rækta jólatré undir skermi. Í meira en þrjá áratugi hefur berjalyng, einkum aðalbláberjalyng og hrútaberjalyng, breiðs út um allan skóg. Auk þess er þar góð sveppauppskera. Á myndinni má sjá nokkrar lyngtegundir og þar á meðal er krækilyng sem er enn í skóginum. Mynd og upplýsingar: Einar Gunnarsson.

Að lokum

Líta ber á þennan pistil sem stuttan inngangspistil um berjaskóga. Öll þekkjum við berjamó en berjaskógar eru alveg sambærilegir. Með auknum þroska skóga má gera ráð fyrir meiri og meiri berjauppskeru í þeim og miklu fjölbreyttari berjategundum en finna má utan skóganna. Í næsta pistli segjum frá nokkrum lyngtegundum sem finna má í skógum og mynda ber sem falla mörgum vel í geð. Svo má vel vera að við skrifum síðar pistla þar sem við nefnum tegundir af öðrum ættum og ættkvíslum en sjálfsagt gleymum við einhverju mikilvægu. Nú þegar höfum við sagt frá hafþyrni í þremur pistlum. Það er mjög ljóselsk tegund sem getur vaxið vel í skógarjöðrum og gisnum skógum og myndar holl ber. Lokapistilinn um hann má sjá hér. Í honum eru krækjur í hina pistlana um tegundina en pistill númer tvö var sérstaklega um berin.

Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem sýna skógræktarfélögum á landinu umhyggju og ganga vel um skóga þegar þeir, þær eða þau tína ber og sveppi eða nýta skógana á annan hátt. Við þökkum einnig þeim sem lánuðu okkur myndir og veittu okkur upplýsingar. Sérstakar þakkir fær Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir fyrir að lesa yfir handritið og færa margt til betri vegar.

Berjalyng undir barrtrjám í Heiðmörk. Mynd: Einar Gunnarsson.
Berjalyng undir barrtrjám í Heiðmörk. Mynd: Einar Gunnarsson.

Heimild:

Thomas M. Smith & Robert Leo Smith (2015): Elements of Ecology, 4. kafli. Person Education Limited. Edinburgh Gate, Exis, England.

Vísað er til ljósmyndara sem veittu okkur upplýsingar undir viðkomandi myndum.

Comments

Heimilisfang:

Skógræktarfélag Eyfirðinga

Kjarnaskógi

600 Akureyri

Netfang: ingi@kjarnaskogur.is

bottom of page