Deildir og hlyntegundir heimsins
Í pistli okkar um ættkvísl hlyna, Acer, sögðum við frá því að mjög margar og mismunandi tegundir eru til innan ættkvíslarinnar. Því miður eru fræðimenn ekki á einu máli um fjöldann eins og þar kom fram. Í þessum pistli ætlum við að segja aðeins meira frá þessum tegundum og vonandi verðum við ekki átakanlega glapyrt en lítil reynsla er af mörgum tegundum ættkvíslarinnar hér á landi. Eins og vænta má með svo stóra og fjölbreytta ættkvísl eru tegundir innan hennar misjafnlega skyldar innbyrðis. Því hefur ættkvíslinni verið skipt upp í fjölmargar deildir eftir einkennum og skyldleika. Það flögrar ekki að okkur að segja frá öllum tegundunum en við getum sagt nánar frá helstu deildum ættkvíslarinnar og helstu tegundum innan hverrar deildar.

Deildir
Krosssaumur þróunarinnar gerir það að verkum að tegundir í hverri deild (enska: Section, latína: Sectio) eiga sitthvað sameiginlegt sem ekki er endilega að finna hjá öðrum tegundum ættkvíslarinnar. Deildirnar eru misjafnlega stórar. Í sumum er aðeins ein tegund en stærri deildum er gjarnan skipt í smærri hópa. Við sleppum þeirri skiptingu í bili.
Skiptingin grundvallast fyrst og fremst á blómum og kynfrumum tegundanna. Það er mjög í anda Linné hins sænska. Stökkbreytingar þekkjast í flestum gerðum frumna. Ef breytingin verður of mikil eða of hröð hjá kynfrumum þá passa þær ekki lengur inn í kerfið og ekkert verður úr frekari fjölgun. Þannig er það ekki með aðrar stökkbreytingar. Þær koma ekki í veg fyrir æxlun. Þetta hefur leitt til þess að kynfrumur breytast hægar vegna stökkbreytinga en flestar aðrar frumur. Þess vegna er mjög heppilegt að nota kynfrumurnar til að meta skyldleika. Þótt gerð og stærð blóma, ásamt fjölda og staðsetningu fræfla, sé það sem helst er notað til að flokka tegundir í deildir fylgir margt annað með. Þannig má horfa á útlit bruma og fjölda brumhlífapara. Að auki er stærð og útlit laufblaða oft notað sem greiningaratriði ásamt fleiri þáttum en kynfrumurnar eru alltaf aðalmálið. Stóra dóminn fá plönturnar þegar erfðafræðin er tekin með í reikninginn. Tegundir í hverri deild geta í mörgum tilfellum verið það skyldar að þær geta myndað saman frjótt fræ þegar þær eru ræktaðar saman þótt það sé ekki algilt. Þannig er það til dæmis með næfurhlyn, Acer griseum, og skyldar tegundir sem tilheyra deild sem kallast Trifoliata. Aftur á móti er það fágætt ef ekki óþekkt á milli deilda. Hið sama á við um nöfn ættkvísla og deilda, að samkvæmt alþjóðlegum reglum ber að rita þau með skáletri sé þess nokkur kostur. Í fyrri pistlum okkar um hlyntegundir höfum við sagt nánar frá sumum þessara deilda og ef til vill verður það þannig áfram þegar við birtum pistla um einstakar tegundir.

Heimildum ber ekki endilega saman um fjölda deilda, hversu stórar þær séu eða hvaða tegundir tilheyra hverri. Hér að neðan förum við fyrst og fremst eftir grein sem birt var á vef The Maple Society í kjölfarið á sjöttu alþjóðlegu hlynráðstefnunni í Roscoff, Frakklandi árið 2017. Greinin er eftir E. Davis (2021) sem gefur upp 161 nafn auk fjölmargra undirtegunda. Þetta er ekki verri tala en hver önnur. Í sumum heimildum eru undirtegundirnar flokkaðar sem sérstakar tegundir og eins og við höfum áður greint frá er heildarfjöldinn nokkuð á reiki. Við verjum ekki miklu plássi í það að lýsa hverri deild en vísum í greinina fyrir þá sem vilja kynna sér frekar hinn grasafræðilega mun þeirra. Við styðjumst einnig við vef Trees and Shrubs Online. Þar eru fjölbreyttar upplýsingar og góð grein eftir Crowley (2020).

Acer
Fyrst nefnum við megindeildina. Rétt eins og sjálf ættkvíslin heitir hún Acer. Í henni eru 24 tegundir og fjölmargar undirtegundir. Hana mynda tré og runnar af öllum stærðum og gerðum en blöðin eru vanalega þrí- eða fimmflipótt og mjög dæmigerð fyrir ættkvíslina. Frævængirnir mynda nokkuð gleitt horn.
Innan deildarinnar er meðal annars krítarhlynur, A. sempervirens, sem er kenndur við eyjuna Krít en vex einnig í suðurhluta Grikklands, Tyrklandi og á eyjum Eyjahafs. Þessa tegund hafa íslenskir sóldýrkendur án efa séð. Seinna fræðiheiti tegundarinnar, sempervirens, vísar í að hún er sígræn. Það á við þar sem eilíft sumar ríkir. Hátt uppi í fjöllum fellir krítarhlynur samt laufið á haustin.

Í austurhluta Norður-Ameríku vex sykurhlynur, A. saccharum. Um hann höfum við fjallað í sérstökum pistli. Svo er í þessari deild garðahlynur, A. pseudoplatanus. Hann er algengasta hlyntegundin í ræktun á Íslandi en hann vex villt í miðhluta Evrópu. Garðahlynur getur myndað blendinga með öðrum tegundum deildarinnar. Í vinnslu eru pistlar um tegundina sem bíða birtingar.

Arguta
Í deildinni Arguta eru aðeins fjórar tegundir en ein þeirra skiptist í tvær undirtegundir. Þessi deild þekkist á brumunum sem hafa aðeins þrjú brumhlífarpör. Laufblöðin eru ekki endilega mjög dæmigerð þótt sumar tegundirnar hafi flipótt blöð eins og algengast er.

Aðeins ein tegund deildarinnar hefur verið reynd hér á landi svo við vitum til og þrífst prýðilega í Lystigarðinum en vex hægt. Það er drekahlynur eða A. barbinerve frá austurhluta Asíu.
Tvær myndir af drekahlyn, A. barbinerve, í haustlitum í Lystigarðinum á Akureyri. Plöntunni var plantað árið 1982. Myndir: Sig.A.
Lithocarpa
Næst er það Lithocarpa. Innan hennar er tugur asískra tegunda en engin þeirra þekkist á Íslandi svo okkur sé kunnugt. Tvær tegundanna eru bundnar við Japan en hinar vaxa allar í Kína. Sumar þeirra teygja sig til nágrannaríkjanna og vaxa í Himalæjafjöllum og víðar.

Macrantha
Þá erum við komin að deild sem kallast Macrantha. Henni gáfum við nafn í þessum pistli og köllum hana brönduhlyni vegna þess að börkurinn er bröndóttur eða röndóttur hjá öllum tegundum. Stofnar verða tíðum röndóttir og geta jafnvel minnt á búninga ýmissa íþróttaliða. Hið sama á við um eldri greinar. Annars vísar fræðiheitið í að blómin séu stærri innan deildarinnar en hjá öðrum hlynum.

Nokkrar tegundir innan deildarinnar hafa verið reyndar hér á landi og líklegt er að einhverjar gætu þrifist hér á góðum stöðum þótt hingað til hafi ræktun þeirra ekki gengið nægilega vel. Það kann að breytast í kjölfar aukinnar garðræktar með tilheyrandi skjóli og breytinga á hitastigi.

Negundo
Innan deildarinnar Negundo eru þrjár tegundir. Þær þekkjast frá öðrum hlynum á laufunum því þau eru fjöðruð eða því sem næst.
Þekktasta tegundin er askhlynur, A. negundo, en til er eintak af henni í Lystigarðinum á Akureyri. Því miður er nokkuð þrengt að hlyninum svo hann nýtur sín ekki nægilega vel. Askhlynur er amerískur en hinar tvær tegundirnar vaxa villtar í Japan.
Sumt af laufblöðum askhlyns hefur aðeins eitt par smáblaða auk endablaðs en önnur hafa tvö pör. Segja má að þau séu fjöðruð og þau minna á laufblöð asks. Af því fær tegundin nafn á íslensku. Almennt má segja að ræktun hans hér á landi hafi ekki gengið vel en á því eru skemmtilegar undantekningar ef hann er á góðum og vel skýldum stað. Innan askhlyna eru nokkrar undirtegundir og afbrigði og vel má vera að til séu erfðahópar sem gætu þrifist vel á Íslandi.

Palmata
Þá erum við komin að stærstu deildinni í gjörvallri ættkvíslinni. Hún er nefnd eftir japanshlyn, A. palmatum. Í deildinni eru meira en fjórir tugir fjölbreyttra tegunda. Laufin geta verið einföld eða flipótt. Fliparnir geta verið allt frá þremur og upp í þrettán. Því er óhætt að segja að laufin komi ekki upp um deildina heldur eru það blómin sem eru grundvöllurinn að flokkuninni eins og vera ber. Þau sjáum við sjaldan á Íslandi.
Japanshlynur, Acer palmatum, í Skotlandi í október 2021. Mynd: Sig.A.
Þar sem blómin sjást sjaldan á íslenskum plöntum þreytum við ekki lesendur á lýsingum á hvar fræflana er að finna eða hvað þeir eru margir en bendum á þessa grein í staðinn. Við verðum þó að nefna að innan deildarinnar eru til tegundir sem bera ekki gulgræn blóm heldur purpuralit. Frægust þeirra tegunda er skjaldhlynur, A. circinatum. Frævængir tegundarinnar geta einnig verið rauðir.
Stundum er deildinni skipt í þrjá eða fjóra hópa en E. Davis (2021) sameinar suma þeirra í sínu riti.

Dan Crowley (2020) segir að innan deildarinnar séu einna merkilegustu tegundirnar út frá grasafræði auk þess sem vinsælustu tegundirnar á heimsvísu tilheyri deildinni. Einkum eru það japönsku tegundirnar A. amoenum og japanshlynurinn A. palmatum. Í báðum tilfellum er ræktaður mikill fjöldi af yrkjum með mismunandi vöxt, blaðlögun og blaðliti.
Japanshlynur hefur verið ræktaður í nokkrar aldir svo ekki þarf að koma á óvart að fjölmörg mismunandi yrki séu ræktuð af tegundinni.
Tveir ólíkir japanshlynir í Branklyn Garden í Perth í Skotlandi í ágúst 2025. Myndir: Sig.A.
Parviflora
Tegundirnar í þessari deild eru náskyldar tegundum í Palmata og lýsingarnar eru keimlíkar. Innan deildarinnar eru tvær japanskar tegundir sem settar eru hvor í sinn hópinn. Það mætti halda að þessar tvær tegundir eigi það helst sameiginlegt að passa ekki nægilega vel í fyrrnefndu deildina en báðar eiga það sameiginlegt að bera mikinn fjölda blóma og brumin eru áþekk. Önnur tegundin er kennd við Japan á fræðimálinu og heitir Acer nipponicum. Hún er með lauf sem eru þrí- eða fimmflipótt. Hin tegundin, A. distylum, er með heil blöð. Sagt er að þetta séu áhugaverðar tegundir sem ættu skilið að vera meira ræktaðar (Crowley 2020). Það væri mikill fengur að þeim ef þær gætu þrifist hér á landi.

Pentaphylla
Í pentaphylla-deildinni eru þrettán eða fjórtán tegundir. Einni þeirra, A. buergerianum, er skipt í að minnsta kosti fimm afbrigði. Tegundirnar vaxa villtar í austur- og suðausturhluta Asíu og er ólíklegt að þær gætu þrifist hér á landi. Deildin er kennd við A. pentaphyllu sem er frá Suðaustur-Kína. Mikið verk er óunnið í skoðun deildarinnar (Davis 2021) og einni tegund, A. yui, var ekki lýst fyrr en árið 2005. Sagt er frá henni á vef Trees and Shrubs Online. Vel má vera að fleiri tegundir finnist í framtíðinni sem tilheyra þessari deild.

Platanoidea
Nú erum við komin að einni deild sem hefur fáeinar vel þekktar tegundir og fjölmargar minna þekktar. Hún er nefnd eftir broddhlyni, A. platanoides. Í deildinni eru um tveir tugir tegunda. Einni þeirra, A. pictum, er skipt í tólf undirtegundir sem sumir vilja sjálfsagt skilgreina sem sjálfstæðar tegundir. Má nefna að á vef íðorðabanka Árnastofnunar segir að Acer pictum ssp. mono, sem nefndur er skífuhlynur, sé af sumum kallaður A. mono.
Þess má geta að þótt af broddhlyn séu til fjölmörg yrki með mismunandi blaðlit er tegundinni ekki skipt í undirtegundir. Á skjólgóðum stöðum á Íslandi má vel rækta tegundina.

Broddhlynur er ekki eina vel þekkta tegund deildarinnar. Innan hennar er einnig hagahlynur, A. campestre, sem vex í Evrópu og nyrst í Afríku. Hann er af flestum talin eina náttúrulega hlyntegund Bretlandseyja. Hagahlynur myndar sjaldan stæðileg tré en má stundum finna í skjólbeltum og sem fremur lágvaxið og nett götutré. Tegundin á sér systurtegund í Japan, A. miyabei, og aðra í Kína, A. miaotaiense. Ef til vill kemur að því að þær verði sameinaðar í eina tegund. Hagahlynur hefur verið reyndur á Íslandi án þess að vekja mikla athygli. Til er einn slíkur í Lystigarðinum á Akureyri og þar er líka systurtegundin A. miyabei. Hvorug tegundin er til mikillar prýði í garðinum.
Hagahlynur myndar oft lítil tré eins og sjá má á fyrri myndinni. Seinni myndin sýnir lauf og fræ. Myndir: Björgvin Steindórsson.
Tegundir deildarinnar er að finna allt frá Evrópu (eins og broddhlyn, hagahlyn og hina ítölsku tegund, A. lobelii) til Japans. Af asísku tegundunum eru fáar í almennri ræktun í heiminum nema A. amplum og A. longipes (Crowley 2020).

Pubescentia
Í þessari deild eru tvær tegundir sem mynda fremur lágvaxin tré með þríflipótt eða þrífingruð lauf. A. pentapomicum vex í um 2.000 til 2.800 metra hæð í Afganistan, Pakistan, Mið-Asíu og vesturhluta Himalæjafjalla. Hin tegundin er kínversk og heitir A. pilosum. Hvorug tegundin hefur verið ræktuð svo neinu nemi utan heimkynna sinna.

Rubra
Rubra-deildin er vel þekkt með sínar fjórar tegundir. Hún heitir eftir hinum ameríska rauðhlyn, A. rubrum. Það eru ekki bara hinir glæsilegu rauðu haustlitir sem gefa tegundinni þetta nafn því greinarnar eru líka nokkuð rauðar og stundum eru blaðstilkarnir það líka.

Í deildinni er einnig silfurhlynur, A. saccharinum, sem ekki má rugla saman við sykurhlyn, A. saccharum, sem tilheyrir megindeildinni Acer. Allar þessar þrjár tegundir vaxa austan við slétturnar miklu í Bandaríkjunum og einnig norðan landamæranna í Kanada. Þær eiga allar sinn þátt í hinum stórkostlegu haustlitum sem sjá má á þessum slóðum. Silfurhlyn má oft sjá í ræktun í austurhluta Evrópu, svo sem í Póllandi og Ungverjalandi.

Í þessari deild er einnig suðlægasta hlyntegund heimsins. Mætti kalla hana lárhlyn til samræmis við fræðiheitið A. laurinum. Þetta er sígræn tegund með heil blöð. Tegundin á sér víðfeðmt útbreiðslusvæði því hana er að finna í Myanmar, Kambódíu, Indlandi, Laos, Nepal, Filippseyjum, suðurhluta Kína og alla leið suður til Indónesíu. Þar er hún suðlægasta hlyntegund í heimi og sú eina sem finna má sunnan miðbaugs (Grimshaw & félagar 2021).
Fjórða tegundin innan deildarinnar er A. pycnanthum frá Japan. Því má segja að þótt tegundirnar séu aðeins fjórar þá er þær víða að finna.

Spicata
Hér er komin lítil deild með aðeins þremur tegundum. Deildin er nefnd eftir fjallahlyn, A. spicatum, sem vex norðarlega í Norður-Ameríku og gjarnan við fjallalæki. Í deildinni eru líka asísku tegundirnar A. caudatum úr Himalæjafjöllum og A. ukurunduense sem er austast á meginlandinu og í Japan. Blóm allra tegundanna standa í uppréttum skúfum en hanga ekki eins og algengast er. Ekki er fullreynt með tegundir deildarinnar á Íslandi.

Trifoliata
Við sögðum lítillega frá þessari deild í pistli um næfurhlyn, A. griseum, sem einmitt tilheyrir deildinni. Hann er töluvert ræktaður í heiminum en í útrýmingarhættu í náttúrunni. Allar tegundir deildarinnar hafa þrískipt lauf sem eru ólík laufum annarra tegunda. Þau eru þrífingruð frekar en þríflipótt. Að auki mynda allar tegundirnar áberandi næfur. Innan deildarinnar eru fimm tegundir og hafa sumar þeirra verið reyndar á Íslandi en hingað til hefur ræktunin gengið frekar illa. Tegundirnar eru: Acer sutchuenense, A. maximowiczianum, A. triflorum, A. mandshuricum, sem heitir roðahlynur á íslensku, og A. griseum sem heitir næfurhlynur og við höfum áður sagt frá. Í ræktun blandast þessar tegundir auðveldlega saman.

Litlu deildirnar
Að lokum nefnum við nokkrar deildir sem hver um sig hefur aðeins eina tegund. Sumar þeirra hafa þó nokkrar undirtegundir og ekki kemur á óvart að í öðrum heimildum eru sumar þeirra taldar sérstakar tegundir. Fyrst nefnum við deildina Ginnala. Í okkar helstu heimild, sem hér er stuðst við, er tegundinni skipt í þrjár undirtegundir. Aðrar heimildir, til dæmis Trees and Schrubs Online, segja undirtegundirnar vera sex. Þessi eina tegund er berghlynur, Acer tataricum.

Innan þessarar deildar er ágætt dæmi um tré sem stundum er talið sérstök tegund en stundum aðeins undirtegund. Það er Acer tataricum ssp. ginnala sem í sumum heimildum er flokkuð sem A. ginnala. Þannig skráði Björgvin Steindórsson tegundina í sínum gögnum þegar hann stýrði Lystigarðinum á Akureyri og þannig er tegundin skráð í íðorðabanka Árnastofnunar. Þar kemur fram að þessi tegund, eða undirtegund, kallist síberíuhlynur. Sú tegund er til hjá söfnurum á Íslandi. Í Lystigarðinum er nú til önnur undirtegund þessarar tegundar. Það er A. tataricum ssp. aidzuense. Deildin hefur væntanlega hlotið nafn þegar A. ginnala var talin sérstök tegund. Nú er þetta eina deildin sem nefnd er eftir undirtegund.

Næst nefnum við deildina Glabra. Í henni er einnig bara ein tegund sem skiptist í fáeinar undirtegundir. Tegundin gljáhlynur, Acer glabrum var. douglasii, hefur verið ræktuð á Íslandi síðan Aðalsteinn Sigurgeirsson safnaði fræi af honum í Alaska árið 1984 sem sáð var í Fossvogsstöðinni (Aðalsteinn 2026). Ári seinna safnaði Óli Valur Hansson þessari tegund í Alaska. Sum þeirra trjáa sem upp spruttu af fræi frá þessum tíma eru enn á lífi þegar þetta er skrifað. Þess má geta að þetta er eina hlyntegundin sem vex villt í Alaska samkvæmt Viereck og Little (1972). Hugsanlega hefur tegundin borist víðar að til landsins því misjafnt er hversu snemma tegundin myndar haustliti á Íslandi. Það gæti tengst því hversu langt sumarið var þar sem tréð er upprunnið. Tegundin myndar frjótt fræ hér á landi og því má finna hana til sölu í garðyrkjustöðvum af íslensku fræi.
Gljáhlynur getur myndað bæði blóm og fræ á Íslandi. Sums staðar hefur ræktun hans ekki gengið nægilega vel, sérstaklega þar sem skjólið er ekki nægilegt. Annars staðar hefur gljáhlynur lifað í marga áratugi án vandræða. Myndir: Björgvin Steindórsson.
Tvær myndir af gljáhlyn í Lystigarðinum á Akureyri. Á þeirri fyrri stendur Samson Bjarnar Harðarson undir stæðilegum runna. Seinni myndin sýnir lauf sem eru að fá haustliti og á þeirri mynd má sjá fræ. Myndirnar teknar 23. nóvember 2026. Myndir: Sig.A.
Gljáhlynur þrífst vel á skýldum stöðum og mætti rækta hann meira en nú er gert. Má nefna sem dæmi að mjög lagleg eintök eru í Lystigarðinum á Akureyri og á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu.

Innan deildarinnar Indivisa er einnig bara ein tegund. Það er Acer carpinifolium sem er ein af fjölmörgum japönskum hlyntegundum. Hún er ekki til á Íslandi.
Deildin Macrophylla inniheldur einnig aðeins eina tegund. Heitir hún ilmhlynur, A. macrophyllum, og vex villt í Norður-Ameríku. Crowley (2020) segir að þessi deild sé systurdeild Platanoidea sem broddhlynur tilheyrir. Ilmhlynur hefur verið reyndur á landinu en árangurinn hefur látið á sér standa. Hann virðist aðeins lifa hér af í gróðurhúsum enn sem komið er.

Að lokum er það Wardiana. Í henni er tegundin A. wardii sem er sjaldgæf tegund í fjallendi Kína. Hún vex í 2.400–3.600 m hæð yfir sjávarmáli og myndar runna eða lítil tré. Tegundin er til í ræktun á Bretlandseyjum og gæti ef til vill þrifist á Íslandi.

Að lokum
Í þessum pistli höfum við reynt að fara vítt og breitt yfir hina stóru ættkvísl hlyna með því að segja stuttlega frá deildum ættkvíslarinnar og sýna myndir af nokkrum lykiltegundum. Við erum ekki hætt að fjalla um hlyni því við ætlum að skrifa pistla um einstakar tegundir eins og við höfum gert áður. Sjá má alla þá pistla hér um leið og þeir birtast. Við gerð þessa pistils nutum við aðstoðar mætra manna. Meðlimir í Trjáræktarklúbbnum veittu okkur upplýsingar á Facebook-hópi klúbbsins um hvernig til hefur tekist við að rækta framandi hlyntegundir. Sjá má þá umræðu hér. Sumir lánuðu okkur einnig myndir. Við viljum færa þeim öllum okkar bestu þakkir. Sérstakar þakkir fær Anna Rebekka Hermannsdóttir fyrir að veita okkur aðgang að myndasafni Björgvins Steindórssonar sem lengi stýrði Lystigarðinum á Akureyri. Sjá má margar þeirra í þessum pistli. Einnig viljum við þakka Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur fyrir vandaðan yfirlestur handrits.

Helstu heimildir:
Aðalsteinn Sigurgeirsson (2026): Upplýsingar í gegnum samskiptamiðla.
E. Davis (2021): Systematic Classification of Acer. A Survey of the genus in accordance with The Maple Society Accepted Species Names. The Maple Society Open Science Initiative, mars 2021. Sjá: classificationAcerMarch2021-vf2.pdf
Dan Crowley (2020): Acer L. Grein á vef Tress and Shrubs Online. Sjá: Acer - Trees and Shrubs Online.
John Grimshaw, Ross Bayton & Dan Crowley (2021): Acer laurinum Hassk. á vef Trees and Shrubs Onlie. Sjá: Acer laurinum - Trees and Shrubs Online.
Leslie A. Viereck & Elbert L. Little, Jr. (1972): Alaska Trees and Shrubs. Agriculture Handbook No. 410. Forest Service. United States Department of Agriculture. Washingron D.C.




Comments