Hið næstum heimsfræga hjóltré
Við vitum að þið, lesendur góðir, eruð almennt vel að ykkur um hin aðskiljanlegustu efni. Þess vegna gerum við ráð fyrir að þið hafið heyrt eða lesið um hjól tímans, lukkuhjól, hjólbarða og fleira í þeim dúr. Samt ekki ánægð hjól. Bara reiðhjól. En fáir hafa heyrt um hjóltré. Hvað veldur því að tré fær svona einkennilegt nafn? Er auðvelt að sveigja við hjóltrjáa þannig að heppilegt sé að smíða úr þeim hjól? Vaxa þau í hring þannig að lag stofnsins minni á hjól? Var fyrsta reiðhjól heimsins smíðað úr svona tré? Getur þetta nafn vísað í eitthvað sem gerir tegundina næstum því heimsfræga? Eða er ástæða þessa nafns einhver allt önnur og ómerkilegri? Hjóltré hefur einkennilega frumstæðar leiðir til vatnsflutninga. Það flytur vatn um tréð á annan hátt en aðrir dulfrævingar. Getur verið að tegundin sé einhvers konar millistig á milli dulfrævinga (eins og lauftrjáa) og berfrævinga (eins og barrtrjáa)? Þessir vatnsflutningar hafa haldið vöku fyrir grasafræðingum í um eina og hálfa öld. Geta þeir gert þetta tré heimsfrægt? Er þetta tré tákn fyrir hjól tímans? Í þessum pistli segjum við frá þessari tegund, Trochodendron aralioides Sieb. & Zucc., sem kallast hjóltré á nær öllum tungumálum. Það hefur verið til á jörðinni í um áttatíu milljónir ára og hefur gert tvær atlögur að heimsfrægð. Því miður hefur heimsfrægðin látið bíða eftir sér. Hún virðist ekki hjóla í þetta tré. Í þessum pistli skoðum við hjóltré og notum það sem dæmi um hvernig tré og annar gróður getur brugðist við loftslagsbreytingum. Einnig segjum við stuttlega frá muninum á dulfrævingum (Angiospermae) og berfrævingum (Gymnospermae).

Lýsing
Hjóltré er stór, sígrænn runni eða tré sem við bestu aðstæður getur náð allt að 20 til 25 metra hæð (Bronckaers 2022). Algengara er þó að tréð myndi stóra runna (Clapp & Crowson 2026) og sumar heimildir segja að hjóltré verði varla hærra en um 16 metrar (Berry 2026). Tegundin hefur tilhneigingu til að mynda marga stofna en í ræktun eru hjóltré gjarnan klippt þannig að til verða einstofna tré. Það er alveg óþekkt að stofnarnir vaxi í hringi sem líkja megi við hjól. Tréð er ekki þannig vaxið að auðvelt sé að beygja stofnana og mynda úr þeim hjól. Stofninn er ekkert sérstaklega sterkur og satt best að segja alveg ómögulegur í tréhjól. Ástæðan fyrir nafninu er önnur og veldur ekki heimsfrægð.

Börkurinn er gráleitur eða brúnn og vekur ekki mikla athygli. Laufblöðin eru sígræn, gljáandi, þykk og leðurkennd. Ef tegundin er ekki í blóma er einna auðveldast að þekkja hana á laufunum að sögn Clapp & Crowson (2026). Þau eru kransstæð í blaðstæðinu og vaxa út úr greinunum í eins konar spíralmynstri. Þau eru áberandi breiðust ofan við miðju. Svona blaðlögun er sögð öfuglensulaga.

Blóm
Meðal trjáa og annarra blómjurta sem treysta á að skordýr eða önnur dýr sjái um frævunina er algengast að blómin beri áberandi krónublöð. Þeirra hlutverk er að laða að frævara. Ef þau vantar þekkist að bikarblöð gegni sama hlutverki en vanalega eru þau græn og lítt áberandi. Ef krónublöð og bikarblöð skortir bendir það oftast til þess að tegundirnar treysti á að vindurinn sjái um frævun. Hjóltréð hagar sér ekki svona. Blóm hjóltrésins skortir bæði krónublöð og bikarblöð þótt þau treysti á skordýr sem frævara. Það er ekki einsdæmi en hitt er algengara. Blóm hjóltrésins eru oftast tvíkynja og regluleg. Þau eru gulgræn og hvert blóm er um einn til tveir cm í þvermál. Þau birtast á uppréttum stönglum og saman mynda þau sveipi sem geta verið tíu til tuttugu cm breiðir. Stundum myndar tréð einnig sérstök karlblóm auk tvíkynja blóma en ekki er þekkt að það myndi sérstök kvenblóm. Fræflar standa í allar áttir eins og pílárar á tréhjólum.
Þessi blóm eru vissulega snotur og óvenjuleg en því fer fjarri að þau dugi til að gera tegundina heimsfræga.

Aldin
Sumum þykja aldinin enn flottari en blómin þótt aldinin gefi trénu ekki nafn. Þau mynda eins konar trénaða, harða stjörnu.

Nafnið
Þá erum við komin að því sem margir lesendur hafa eflaust beðið eftir. Af hverju heitir þetta tré hjóltré?
Eins og fram hefur komið er fræðiheiti þessa trés Trochodendron aralioides. Ættkvíslarheitið, Trochodendron, er úr grísku þar sem Trocho (Τροχό eins og Grikkir skrifa það) merkir hjól. Seinni helmingurinn, dendron (δένδρων) er vel þekkt innan grasafræðinnar og merkir tré. Orðið Trochodendron merkir því einfaldlega hjól+tré.
Í flestum tungumálum hefur fræðiheiti ættkvíslarinnar einfaldlega verið þýtt og þar með kallast tréð hjóltré. Það segir samt ekki til um hvernig á þessu nafni stendur.
Því miður hefur viðurinn ekkert með hjól að gera. Það er ekki svo að auðvelt sé að beygja og sveigja viðinn og mynda úr honum hjól og reiðhjól hafa ekki verið smíðuð úr svona tré svo vitað sé. Hjóltré vex ekki í sveigjum og beygjum þannig að lögunin minni á hjól, þótt það sé heillandi hugmynd. Rétt eins og flest önnur tré vex það helst upp á við.
Ástæða nafngiftarinnar er allt önnur og kemur fram hér ofar. Hún vísar til blómanna á trjánum. Þau þykja minna á pílára fornra tréhjóla. Það gerir tréð ekki heimsfrægt.

Aðlögun, flótti eða dauði
Þar sem tréð hefur vaxið á jörðinni ákaflega lengi hefur það þurft að lifa af náttúrulegar loftslagsbreytingar í gegnum breytileg jarðsögutímabil. Eins og aðrar lífverur hefur hjóltréð þurft að bregðast við breytingunum. Gróður hefur oftast um tvær leiðir að velja. Annaðhvort getur uppstokkun erfðaefnisins orðið til þess að tegundirnar á hverju svæði aðlagast breyttum skilyrðum eða tegundirnar þurfa, með aðstoð fræja, að fara eitthvert annað þar sem skilyrði henta. Takist þetta ekki deyr tegundin út á viðkomandi svæði. Stundum hafa svona breytingar orðið til þess að heilu tegundirnar hafa horfið af jörðinni. Skilgreindar hafa verið sjö tegundir ættkvíslarinnar. Svo virðist sem hjóltré hafi ekki verið sérlega dugleg við að aðlagast breytingum. Tré vikunnar hefur ekki breyst að ráði í nokkrar milljónir ára ef marka má steingervinga en nú er svo komið að það er eina tréð innan ættkvíslar sinnar, Trochodendron. Aðrar tegundir ættkvíslarinnar hafa allar dáið út. Áður fyrr uxu tegundirnar á mun stærra svæði og leifar útdauðra tegunda hafa fundist víða í Asíu en einnig vestanvert í Norður-Ameríku. Grasafræðingar hafa sett ættkvíslina Tetracentron í sömu ætt og kallast hún Trochodendraceae. Í þeirri ættkvísl er aðeins ein lifandi tegund en nokkrar útdauðar, rétt eins og í ættkvísl hjóltrésins. Því eru aðeins tvær tegundir innan ættarinnar og tilheyra þær sín hvorri ættkvíslinni. Þessi tré hafa ekki breyst að ráði þótt umhverfi þeirra hafi breyst. Þess í stað hafa þau reynt að færast úr stað með fræjum sínum. Þessi áætlun hefur ekki gengið nægilega vel eftir. Hjóltré og önnur tré innan ættkvíslarinnar, sem áður uxu víða í tempraða beltinu, er nú aðeins að finna villt í Japan, Suður-Kóreu og Tævan (Berry 2026). Aftur á móti hefur þeim víða verið plantað til skrauts. Það var þó varla partur af áætluninni.

Logstlagsbreytingar sem við nú stöndum frammi fyrir stafa af athöfnum einnar dýrategundar og ganga mun hraðar fyrir sig en flestar fyrri breytingar. Því stendur þetta tré frammi fyrir miklum vanda og hið sama á við um stóran hluta þeirra lífvera sem byggja þessa jörð. Breytingarnar nú eru svo örar að óvíst er að lífverur geti brugðist við í tíma. Þær geta hvorki aðlagast tímanlega né flutt sig um set. Þess vegna stöndum við nú á barmi sjöttu fjöldaútrýmingu tegunda á jörðinni eins og við sögðum frá í þessum pistli.

Afbrigði
Þrátt fyrir að tegundin hafi frekar flúið en þróast til að lifa af loftslagsbreytingar fyrri tíma merkir það ekki að tréð stokki ekki upp erfðaefnið við fræmyndun. Nú er svo komið að til eru nokkur afbrigði af tegundinni sem hafa ákveðin einkenni. Helst er það blaðlögun og mismunandi grænir tónar sem hafa smám saman þróast á ólíkum stöðum (Clapp & Crowson 2026). Þar sem öll afbrigði eru framandi á Íslandi eltumst við ekki frekar við þetta atriði.

Heimkynni
Þar sem tréð vex villt myndar það vanalega undirgróður í laufskógum og blandskógum lauf- og barrtrjáa. Eins og títt er um slíkar tegundir á hjóltréð það til að byrja líf sitt sem margstofna runni en ef tækifæri gefst til að vaxa upp í meiri birtu og mynda tré þá notar runninn tækifærið. Það getur til dæmis gerst ef eitt tré í skóginum fellur þannig að rjóður myndast. Þar sem tegundina er að finna í náttúrunni á hún það til að vaxa sem ásæta á öðrum trjám.

Millistig milli dulfrævinga og berfrævinga?
Talið er víst að dulfrævingar (yfirgnæfandi meirihluti lauftrjáa) séu komnir af berfrævingum (nær öll barrtré). Frá þessu sögðum við í þessum pistli. Heitin dulfrævingur og berfrævingur vísa til kynhirslna og blóma tegundanna en algengara er að tala um lauftré og barrtré. Það er ekki eins nákvæmt því til eru tré í báðum hópum sem hafa lauf (eða barr) sem er líkara því sem gerist í hinum hópnum. Berfrævingar mynda engin blóm heldur fræ í könglum en það er ekkert sem umlykur fræið. Þaðan kemur nafnið. Í stað blóma er talað um kynhirslur. Dulfrævingar mynda blóm og fræið myndast í lokuðu egglegi sem við þroskun verður að aldini (Ágúst 2026).
Það eru samt ekki bara æxlunarfærin sem eru ólík. Það er grundvallarmunur á því hvernig dulfrævingar og berfrævingar flytja vatn um stofninn. Æðakerfi dulfrævinga er allt annað en hjá berfrævingum. Dulfrævingar mynda viðaræðar sem flytja vatn upp eftir stofninum. Þær geta verið býsna langar en þær skortir hjá berfrævingum. Í stað þeirra eru miklu minni og grennri leiðsluvefir. Þetta á örugglega sinn þátt í því að dulfrævingar hafa víðast hvar orðið ofan á og rutt berfrævingum úr vegi. Vissulega eru til undantekningar á því eins og við sjáum í gjörvöllu barrskógarbeltinu en Ágúst H. Bjarnason (2026) segir að um 80% af öllum grænum plöntum tilheyri dulfrævingum. Þessi munur hefur líka áhrif á að almennt er nokkur munur á viði dul- og berfrævinga.
Í um eina og hálfa öld hafa grasafræðingar og aðrir vísindamenn hugsað með sér að ef þeir gætu fundið dulfræving með nokkuð hefðbundin blóm, sem þó mættu gjarnan vera frumstæð, en hefði ekki hinar dæmigerðu viðaræðar sem einkenna hópinn, væru þeir komnir með eins konar millistig milli þessara ólíku hópa. Þar kemur hjóltréð sterkt inn. Það er án efa dulfrævingur en það hefur engar viðaræðar. Til að styrkja tilgátuna er ekki verra að steingervingar tegundarinnar hafa víða fundist í eldgömlum jarðlögum eins og áður getur. Að auki eru blómin án krónublaða og bikarblaða sem gæti bent til þess að þau séu frumstæð.

Næstum heimsfrægð
Lengi vel töldu grasafræðingar að þessi gamla ættkvísl væri ein sú allra elsta meðal dulfrævinga. Þar sem hjóltré skortir nær alveg allar æðar en hafa vísi að þeim töldu vísindamenn næsta víst að það væri leifar af einhvers konar formóður dulfrævinga. Nú hafa vísindamenn fallið frá þessari tilgátu. Þegar grannt er skoðað má vissulega finna það sem lítur út eins og vísir að þessum æðum en nú er talið að þetta séu frekar leifar þeirra. Þetta er því sambærilegt við botnlanga sem afar takmarkað gagn er af. Það lítur út fyrir að þessi tiltekna ætt hafi gefist upp á að hafa hefðbundnar viðaræðar eins og finna má í flestum lauftrjám. Því er þetta ekki formóðir núverandi trjáa, heldur hliðarþróun eða leifar af einni af tilraunum náttúrunnar. Hún sló ekki beinlínis í gegn og nú eru aðeins tvær tegundir til, sem báðar tilheyra þessari ætt, sem hafa leifar af viðaræðum en ekki vísi að þeim eins og áður var talið. Á meðan grasafræðingar töldu þessar æðar mjög fornar og mitt á milli berfrævinga og dulfrævinga mátti jafnvel líta á þessa tegund sem eins konar millistig milli þessara ólíku hópa. Þá var tegundin býsna fræg í hópi náttúrufræðinga. Þegar kom í ljós að öll önnur einkenni voru dæmigerð fyrir dulfrævinga og að æðakerfið var ekki neitt millistig, heldur fremur misheppnuð tilraun náttúrunnar, dró mjög úr frægð þessa trés.
Ekki hefur tekist að benda á nein þróunarfræðileg rök sem skýrt gætu af hverju tréð hætti að vera með hinar dæmigerðu æðar dulfrævinga. Æðarnar eru án efa hluti af þeirri þróun sem hefur fært dulfrævingum ákveðið forskot fram yfir berfrævinga en þessi ætt fór í aðra átt. Árangurinn varð ekki til að hrópa húrra fyrir.

Misheppnuð heimsfrægð
Það liggur því fyrir að ætla mætti að þetta tré hafi gert að minnsta kosti tvær atrennur að heimsfrægð. Ef til vill er þó réttara að segja að náttúrufræðingar hafi staðið fyrir þessum atrennum fyrir hönd tegundarinnar. Auðvitað er tréð sjálft almennt ómeðvitað um heimsfrægð. Fyrri tilraunin er fólgin í nafninu en það á sér ómerkilega skýringu. Hin tilraunin byggðist á að vera millistig dulfrævinga og berfrævinga. Það reyndist ekki rétt. Þótt tréð sé snoturt, sígrænt og með merkileg blóm verður það sennilega aldrei heimsfrægt.

Þakkir
Að lokum viljum við færa Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur okkar bestu þakkir fyrir að lesa yfir handritið og benda á það sem betur mátti fara. Það gerir pistilinn mun læsilegri.
Heimildir og frekari lestur
Ágúst H. Bjarnason (2026): Flórulyklar. Greiningarbók háplantna á Íslandi. Gefin út á kostnað höfundar.
Sven Bronckaers (2022): Trochodendron aralioides Af vefsíðunni Trees and Shrubs Online. Sjá: Trochodendron aralioides - Trees and Shrubs Online. Sótt 20. mars 2026.
Casey Clapp & Alex Crowson (2026): Reinventing the (Wheel Tree)
Hlaðvarpsþáttur úr þáttaröðinni: Completely Arbortrary frá 19. febrúar 2026. Sjá: REINVENTING THE (WHEEL TREE) — Completely Arbortrary.
Paul E. Berry (2026): Trochodendrales. Britannica. Sótt á vef Britannicu 26. apríl 2026. Sjá: Trochodendrales | Rare, Ancient Plant Order | Britannica.




Comments