top of page
Search


Öspin við Þingvallastræti 28
#TrévikunnarSE hefur borist bréf þar sem athygli okkar er vakin á áhugaverðu tré sem stendur fyrir framan Þingvallastræti 36 á Akureyri. Þessi ábending þarf ekki að koma á óvart enda er þarna um að ræða mikilfenglegt tré sem erfitt er að missa af þegar farið er um Þingvallastrætið. Tréð sem hér um ræðir er alaskaösp. Ekki er vitað um hvaða klón er að ræða en þó gæti þetta verið klónn sem kallaður hefur verið ̀'Dimma' eftir frekar dökkum lit á laufi. Ef þetta er Dimma þá eru

Bergsveinn Þórsson
Aug 28, 20192 min read


Hrossakastanía
Lengi vel vildu menn ekki trúa því að hægt væri að rækta hrossakastaníu (Aesculus hippocastanum) á Íslandi og enn síður á norðanverðu...
Sigurður Arnarson
Aug 21, 20191 min read


Rauðgreni
#TrévikunnarSE þessa vikuna er rauðgreni, Picea abies . Rauðgreni er vinsælt jólatré enda lyktar það vel og er fallegt við góð skilyrði. Það vex í öllum landshlutum en bestum þroska nær það inn til landsins í hlýrri sveitum. Að jafnaði er það heldur hitakærara en aðrar tegundir grenis sem hér eru ræktaðar og vex hægar. Þessir eiginleikar gera það að heppilegu garðtré í stærri görðum. Það er auðþekkt frá öðru greni á töluvert ljósari lit. Rauðgreni í Austurríki. Náttúruleg út
Sigurður Arnarson
Aug 15, 20191 min read


Meyjarrós - Stórasta tré í heimi 😉
Í síðasta trjápistli var fjallað um Grasvíði og vakti fyrirsögnin "Minnsta trjátegund landsins" nokkra athygli. Leiddu flestir,og jafnvel höfundurinn sjálfur, líkur að því að senniilega er smjörlaufinu góða ekki heimilt að kalla sig tré þótt trjákennt sé. Áður en við byrjum aftur að fjalla um "réttborin tré" ætlum við að vekja athygli á öðrum runna, heldur stórgerðari, þe Meyjarrós. Hún blómstraði snemma hér norðanlands, hefur verið áberandi undanfarnar vikur og er enn að.

Ingólfur Jóhannsson
Jul 31, 20192 min read


Minnsta trjátegund landsins?
Á Íslandi teljast fjórar víðitegundir innlendar. Að auki finnast hér slæðingar sem sá sér auðveldlega í náttúrunnu s.s. alaskavíðir, jörfavíðir, viðja, selja o.fl. Af þessum fjórum íslensku víðitegundum er aðeins eitt sem stundum getur gert kröfu til að teljast tré. Það er gulvíðir. Oftast er hann þó runni. Hinar þrjár tegundirnar eru loðvíðir, fjallavíðir (einnig nefndur grávíðir) og smjörlauf eða grasvíðir. Sú síðast talda er að jafnaði minnst þessara tegunda. Það er jafnve

Sigurður Arnarson
Jul 24, 20192 min read


Degli við Bjarmastíg
Degli við Bjarmastíg á Akureyri er #trévikunnarSE . Þetta er einstakt tré á Akureyri og eiginlega á landinu öllu. Tegundin hefur líka verið kölluð douglasgreni og döglingsviður. Fræðiheitið er Pseudotsuga menziesii. Almenningur kannast líklega betur við heitið á timbrinu úr þessari tegund, Oregon pine. Það er sérlega góður smíðaviður, endingargóður og heldur sér vel, vinst lítið og því tilvalinn í t.d. glugga. Degli er ættingi lerkis og þrífst vel í jarðvegi sem lerki hefur

Pétur Halldórsson
Jul 17, 20191 min read


Kergi
#TrévikunnarSE í þetta skiptið er af sömu ætt og tré síðustu viku. Það kallast kergi eða garðakergi og er einnig nefnt síberískt baunatré. Fræðiheitið er Caragana arborescens . Til eru um 50-80 tegundir af þessari ættkvísl og hafa sumar þeirra verið reyndar hér á landi en engin þeirra er mikið ræktuð. Mest er þó ræktað af garðakerginu. Það hefur meiri útbreiðslu á heimsvísu en aðrar tegundir ættkvíslarinnar og er breytilegra upp af fræi. Það er að auki hávaxnasta tegundin in

Sigurður Arnarson
Jul 10, 20192 min read


Gullregn
#TrévikunnarSE að þessu sinni er gullregn ( Laburnum sp .). Af gullregni eru til tvær skilgreindar tegundir auk blendinga og afbrigða. Tegundirnar heita strandgullregn ( L. anagyroides ) og fjallagullregn (L. alpinum ). Aðeins sú síðarnefnda vex hér á landi. Fjallagullregn þrífst best í sendnum jarðvegi og getur orðið toginleitt ef það vex í of frjóu landi. Blómin eru í löngum klösum, gul að lit. Fjallagullregn myndar frjótt fræ á Íslandi og getur sáð sér út. Fræin eru dálít

Sigurður Arnarson
Jul 3, 20191 min read


Koparreynir
Að þessu sinni er koparreynir #TrévikunnarSE . Koparreynir stendur nú í blóma hér og þar í bænum. Blómin eru í hvítum sveip og síðar koma ber sem einnig eru hvít. Lengi vel virtust þrestir og aðrar berjaætur ekki átta sig á því á Íslandi að hvít ber eru líka æt. Þá stóðu ber koparreynis oft á runnunum langt fram eftir vetri. Hin síðari ár hefur þetta breyst og þrestir éta berin með bestu lyst. Koparreynir fær gjarnan fallega koparlitaða haustliti og ber af því nafn sitt. Það

Sigurður Arnarson
Jun 26, 20192 min read


Alaskaösp
Um miðja 20. öldina fór skógræktarfólk á Íslandi að að horfa mjög stíft í kringum sig í leit að trjátegundum sem gætu lifað og vaxið hér á landi #TrévikunnarSE . Menn sáu að veðurfar á suður strönd Alaska er með svipuðu móti og hér og því voru menn sendir þangað til að sækja fræ og græðlinga, sem í þá tíð voru kallaðir stiklingar. Það orð verður notað hér á eftir. Árið 1944 fór Hákon Bjarnason, þáverandi Skógræktarstjóri, til Alaska og kom m.a. með 30 stiklinga af alaskaösp (

Bergsveinn Þórsson
Jun 19, 20193 min read


Döðlupálmi
Að þessu sinni er tré vikunnar alls ekki íslenskt og engar líkur á því að það geti vaxið hér utandyra. Okkur þykir þetta hinsvegar ákaflega merkilegt tré með merkilega sögu. #TrévikunnarSE er döðlupálmi frá Júdeu sem á fræðimáli kallast Phoenix dactylifera . Þetta var algengt tré (ef pálmatré teljast til trjáa) í Mið-Austurlöndum fyrir þúsundum ára eða þar til Rómverjar lögðu undir sig Jerúsalem og nálæg landsvæði um árið 70. Plantan var ákaflega mikilvæg. Döðlurnar voru part

Sigurður Arnarson
Jun 12, 20192 min read


Skógarfura
#TrévikunnarSE er skógarfura, Pinus sylvestris , við Spítalaveg á Akureyri. Miklar vonir voru bundnar við skógarfuru í skógrækt hérlendis og hún var mikið gróðursett á 6. áratug síðustu aldar. Furulús ( Pineus pini ) grandaði henni að mestu og var ræktun hennar nánast hætt með öllu. Þó lifði stöku tré áfram og sum jafnvel nokkuð vel. Nú eru hins vegar vísbendingar um að furulúsin drepi ekki lengur ungar skógarfurur þótt hún leggist stundum á þær. Líklega hefur borist hingað s

Pétur Halldórsson
Jun 5, 20191 min read


Heggur
Trjátegundir eru misjafnlega áberandi eftir árstímum. Sumar fara í fagra haustliti en eru e.t.v. ekki áberandi á öðrum árstímum. Sama á við um tegundir sem blómgast fallega í fremur stuttan tíma. Ein þeirra tegunda sem hefur verið hvað mest áberandi síðustu vikuna er ein af þeim sem fyllir seinni hópinn. Það er heggur, Prunus padus, og er hann #TrévikunnarSE. Heggur er lauffellandi tré eða runni sem hefur lengi verið í garðrækt á Íslandi. Hann má einnig sjá sem skraut í jöðru

Sigurður Arnarson
May 29, 20192 min read


Sjálfsánar stafafurur
Ein af þeim tegundum sem hafa í auknum mæli náð að sá sé út í íslenskri náttúru er stafafura. Sumir gleðjast yfir því en aðrir óttast að hún kunni að verða framandi, ágeng tegund. Oftast nær sáir hún sér ekki mjög langt frá móðurplöntunni og þá oft í miklu magni. Til eru mörg dæmi um að hún hafi sáð sér ótrúlega langt en þá eru það að jafnaði aðeins ein og ein planta. Furan sáir sér fyrst og fremst í rofið eða rýrt land en mun síður í gróskumikla náttúru. Þessa brautryð

Sigurður Arnarson
May 22, 20191 min read


Selja
Selja ( Salix caprea ) er tré af víðiætt og er #TrévikunnarSE . Eins og margar aðrar víðitegundir blómgast hún áður en hún laufgast og eru þá sérstaklega glæsileg. Allar víðitegundir eru einkynja. Það merkir að annað hvort eru einstaklingarnir karlkyns eða kvenkyns. Karlplönturnar bera rekla sem eru hlaðnir gulu frjói en kvenplönturnar hafa ekki eins litskrúðuga rekla. Því þykja karlplöntur að jafnaði fallegri þegar þær blómgast. Hrímaðar seljur ber í menningarhúsið Hof. Megn

Sigurður Arnarson
May 1, 20191 min read
bottom of page
