Notkun og mikilvægi hafþyrnis
Hafþyrnir hefur nokkuð sérstakt útlit og er auðþekktur. Honum má planta í sumarbústaðalönd, skógarjaðra og víðar þar sem jarðvegur og önnur skilyrði henta og hann er reyndar ljómandi góð landgræðsluplanta. Að auki ber hann holl og næringarrík ber sem nýta má til manneldis. Einnig mætti nota hafþyrni meira í garðrækt en nú er gert þar sem hann vekur athygli fyrir sitt sérkennilega útlit. Þrátt fyrir þessa upptalningu er runninn ekki mikið ræktaður hér á landi og við verðum að hafa í huga að runninn er þyrnóttur og getur víða skotið rótum. Það hugnast ekki öllum og því er full ástæða til að nota hann varlega. Samt teljum við að nýta mætti tegundina töluvert meira en nú er gert.

Hér birtist þriðji pistill okkar um hafþyrni. Í fyrsta pistlinum lýstum við tegundinni og sögðum frá helstu einkennum hennar. Í pistli númer tvö sögðum við frá berjunum og ræktun þeirra. Í lokapistlinum, sem nú birtist, förum við yfir notkun hafþyrnis á Íslandi. Þar ber hæst að tegundina má nota til landgræðslu þar sem hún hefur jarðvegsbætandi áhrif. Ekki veitir af í okkar nitursnauða landi enda þrífst hafþyrnir við skilyrði sem henta fáum tegundum. Ekki veitir af í okkar nitursnauða landi enda þrífst hafþyrnir við skilyrði sem henta fáum tegundum. Öll notkun hafþyrnis á Íslandi á sér samsvörun í öðrum löndum. Í pistlinum höfum við einnig stuttan ættfræðikafla og segjum frá þeim undirtegundum sem til eru í Evrópu. Við segjum líka frá mikilvægi niturs sem tegundin getur bundið öllu vistkerfinu til heilla.

Ættfræði og undirtegundir
Hafþyrnir, Hippophaë rhamnoides L., er af silfurblaðsætt, Elaeagnaceae. Bæði fræðiheiti ættarinnar og íslenska heitið vísar í tegundir af silfurblaðsættkvíslinni, Elaeagnus. Ef til vill fjöllum við síðar um hana.
Tegundir innan ættarinnar eiga sitthvað sameiginlegt. Silfurblað, Elaeagnus commutata, á það sameiginlegt með hafþyrninum að þrífast prýðilega í rýru landi á Íslandi. Báðar eru tegundirnar þekktar fyrir að lifa í sambýli við gerla af ættkvíslinni Frankia sem eru duglegir við að vinna nitur beint úr andrúmslofti og miðla því til tegundanna. Því geta þær báðar þrifist vel í rýru landi og hentað sem landgræðsluplöntur. Lauflitur og vöxtur er einnig nokkuð áþekkur en lögun laufblaða er gjörólík. Báðar tegundirnar eru sérstakar í útliti og henta til garðræktar. Allar tegundir ættarinnar hafa sérbýli. Það merkir að hver planta ber annað hvort karlkyns eða kvenkyns æxlunarfæri.

Það var Linnæus hinn sænski sem gaf ættkvíslinni nafn um leið og hann lýsti tegund vikunnar. Samkvæmt vefsíðunni World Flora Online (WFO 2025) eru sjö tegundir innan ættkvíslarinnar auk einnar þekktrar blendingstegundar.
Eins og títt er um tegundir sem eiga sér víðfeðmt útbreiðslusvæði eru plöntur sömu tegundar hreint ekki steyptar í sama mót. Skilgreindar hafa verið átta eða níu undirtegundir af hafþyrni sem eru mismunandi að stærð og lögun, hafa ólíka þyrna, blaðlögun og hæringu, ólík ber hvað varðar lit, lögun og C-vítamíninnihald og þrífast best í mismunandi vist (Li & Schroeder 1996).
Tvær myndir úr Lystigarðinum á Akureyri af tveimur hafþyrniplöntum. Myndir: Sig.A. 2. september 2026.
Af þessum skilgreindu undirtegundum vaxa þrjár eða fjórar villtar í Evrópu. Fyrst ber að nefna Hippophaë rhamnoides ssp. carpatica sem vex í Mið- og Austur-Evrópu. Hún vex þar í opnu skóglendi og í rjóðrum.
H. rhamnoides ssp. caucasica er í álfunni austanverðri. Hún er kennd við Kákasus og vex í samnefndum fjallgarði en einnig í Úkraínu, Tyrklandi og Rúmeníu. Þessi undirtegund er töluvert ræktuð í Rússlandi.
H. rhamnoides ssp. fluviatilis vex í Ölpunum og suður til Spánar. Þessi undirtegund vex gjarnan í möl og sandi við ár sem reglulega flæða yfir bakka sína. Hún er þekkt fyrir að hafa færri þyrna en hinar undirtegundirnar. Þess vegna er hún gjarnan notuð til kynbóta í berjarækt til að auðvelda berjatínsluna. Á vef Wold Flora Online hefur þessi undirtegund verið sameinuð næstu undirtegund og þar með fækkar undirtegundum úr níu niður í átta og úr fjórum niður í þrjár í Evrópu.
Að lokum er það algengasta undirtegundin. Það er H. rhamnoides ssp. rhamnoides. Hún vex oft nærri sjó allt frá Balkanlöndunum og vestur til Bretlandseyja. Sama undirtegund vex villt á Norðurlöndum. Þetta er sá hafþyrnir sem er ræktaður á Íslandi. Þær lýsingar á tegundinni sem hér er að finna eiga fyrst og fremst við um þessa undirtegund. Hér má skoða umfjöllun World Flora Online um undirtegundirnar og muninn á þeim.

Jarðvegskröfur
Það hefur sýnt sig í garðyrkju að hafþyrnir getur vaxið í allskonar jarðvegi ef samkeppnisgróðri er haldið frá. Sama á við um svæði þar sem hann er ræktaður vegna berja. Þó hentar þéttur, leirkenndur jarðvegur ekki. Í náttúrunni vex hann best þar sem lítil samkeppni er við annan gróður. Það kann að eiga þátt í því að hann er algengastur í rýru, sendnu landi í útlöndum. Telst slíkt land vera kjörlendi tegundarinnar. Í heimkynnum sínum er tegundina gjarnan að finna í allskonar sendnum jarðvegi og jafnvel í grófri möl. Inn til landsins vex hún oft á sendnum bökkum stórfljóta eða örðum sendnum svæðum. Hún vex einnig hátt til fjalla þar sem tré skyggja ekki á hana. Hún myndar oft litla, hreina lundi en stundum er hún í blöndu með ýmsum runnum og jafnvel trjám ef þau standa ekki mjög þétt.

Hafþyrnir þolir vel seltu og er bæði vindþolinn og nægjusamur. Á Íslandi þrífst hann best í loftríkum jarðvegi rétt eins og í útlöndum. Hann getur verið nokkuð fljótur að skjóta rótum í rýru og sendnu landi og á meðan virðist hann ekki verja orku í að vaxa mikið uppá við. Á þessu stigi vex hann varla nema upp í hnéhæð en getur náð töluverðri útbreiðslu.

Þegar frjósemin eykst geta aðrar plöntur komið inn í vistina og jafnvel vaxið hafþyrninum yfir höfuð, ef nota má það hugtak yfir hauslausar lífverur. Hafþyrnirinn þolir ekki mikinn skugga eins og títt er um frumherjaplöntur. Til að bregðast við þessu hafa hjól þróunarvélarinnar snúist þannig að um leið og frjósemin eykst fara sumar plönturnar að vaxa meira upp í loftið. Það er samt mjög misjafnt hversu mikið þær vaxa. Sumar plöntur virðast leggja meira upp úr því að verða þéttir, breiðir runnar til að takast á við samkeppnisplöntur en aðrir treysta á hæðina. Um leið og þetta gerist virðist draga úr rótarskotunum en ef til vill er það vegna þess að þau verða undir í samkeppninni og komast ekki á legg í skugga annars gróðurs. Þegar hafþyrnir er ræktaður í frjórri mold í görðum er eins og aðeins sumar plöntur skjóti miklum rótum. Til eru yrki sem valin eru vegna lítilla rótarskota.

Í landgræðslu hefur reynslan kennt undirrituðum að leirkenndur og þéttur jarðvegur hentar hafþyrni mun verr en sendinn og loftríkur jarðvegur. Að minnsta kosti á það við í Skriðdal, Hafnarfirði og á Skeiðum. Þegar plöntur eru komnar vel á legg þola þær mikla þurrka en þær geta vaxið í nokkuð blautum jarðvegi en þá verður vöxtur tæpast mjög mikill. Ekki er mælt með að planta hafþyrni í blautan jarðveg.

Öflugt rótarkerfi
Grundvöllur þess að hafþyrnir telst vera öflug landgræðsluplanta er rótarkerfið og hæfileiki tegundarinnar til að lifa í sambýli við örverur sem vinna nitur beint úr andrúmslofti. Nitur er það næringarefni sem helst er hörgull á hér á landi eins og fram kemur í kaflanum hér að neðan. Þessir gerlar eru af sömu ættkvísl, Frankia, og lifa á rótum elris sem við höfum sagt frá í nokkrum pistlum og reyndar lifa þessir gerlar í sambýli við fleiri tegundir. Þetta eru allt aðrir gerlar en þeir sem lifa á rótum lúpínu og fleiri belgjurta. Þeir eru af ættkvíslinni Rhizobium. Gagnsemin er samt alveg sambærileg.

Rótarkerfið er stórt og fer víða. Það hjálpar plöntunni við að binda jarðveg og að fjölga sér kynlaust með rótarskotum. Það hjálpar einnig við að ná í þær bjargir sem plantan þarf. Rótarkerfi hverrar plöntu getur farið allt að fjóra metra niður í jörðina og haft tíu metra þvermál. Allar plönturnar, sem sprottið hafa upp af sömu rótinni, eru tengdar sama neðanjarðarhagkerfinu.
Ekki er nóg með að plönturnar auðgi jarðveginn af nitri. Vísindamenn hafa komist að því að rætur hafþyrnis geta losað um torleyst, lífræn og ólífræn efni sem finna má í jörðinni og komið þeim í form sem plöntur geta nýtt sér. Þannig eykur hafþyrnirinn ekki bara frjósemina með því að bæta hinu mikilvæga nitri í kerfið heldur einnig öðrum nauðsynlegum næringarefnum (Rongsen 1992). Svona rótarkerfi er mjög gagnlegt til að binda sendinn jarðveg, koma í veg fyrir rof og auka frjósemi.

Um mikilvægi niturs
Eins og fram kemur í þessum pistli er nitur það næringarefni sem oftast skortir í íslenskri vist. Í ísaldarlok fylgdi hafþyrnir í kjölfar hopandi jökla í Norður-Evrópu. Hann dreifðist þá um allar auðnir Norðurlandanna og skapaði niturforða í jarðvegi. Hann hélt þarna velli sem ein algengengasta tegundin í næstum þúsund ár þar til trjátegundir eins og skógarfura, Pinus sylvestris, birki, Betula spp., og fleiri, sem margar kunnu að meta hið niturríka land, yfirskyggðu hann. Því hefur verið haldið fram af norrænum vistfræðingum að það nitur sem enn er að finna í skógarjarðvegi og hringrásum vistkerfa á þessum slóðum sé að stórum hluta það nitur sem rótargerlar hafþyrnis bundu á þessum tíma. Því hefur þetta skeið verið nefnt „hafþyrniskeið“ (Sigurður 2014). Í þessu sambandi má nefna að víða um heim fylgdi runnkennt elri ísröndinni þegar jöklar hopuðu í lok síðustu ísaldar. Það gerðist ekki á Norðurlöndum eins og við sögðum frá í þessum pistli. Það jók mjög á mikilvægi hafþyrnisins á þessum slóðum.
Enn má finna hafþyrni á Norðurlöndum en hann er ekki eins algengur sem forðum. Hann er fyrst og fremst að finna þar sem hávaxnar plöntur varpa ekki of miklum skugga. Annað hvort nærri opnu hafi eða hátt til fjalla.
Þessar myndir sýna vel hversu auðvelt hafþyrnir á með að vaxa í rýru landi. Fyrri myndin er tekin á Suðurlandi og sýnir fimm ára gamla plöntu af dönsku kyni sem farin er að skjóta rótum í svörtum sandi. Myndina tók Aðalsteinn Sigurgeirsson. Seinni myndin sýnir hafþyrni af norsku kyni sem skríður um mel á Austurlandi. Hana tók Sig.A. Vel má ímynda sér hvernig evrópskur hafþyrnir hefur fylgt jökulröndinni í lok ísaldar og bætt jarðveginn.
Á Íslandi var aldrei hafþyrniskeið og skortur var á öðrum tegundum með Frankia eða aðra niturbindandi gerla í sinni þjónustu. Má nefna að elri, sem einnig bindur nitur, komst ekki hingað af sjálfsdáðum eftir að ísöld lauk. Þar að auki eru hér færri niturbindandi tegundir af belgjurtaætt en víðast hvar þar sem svipuð skilyrði ríkja. Í flóru Íslands er aðeins að finna sjö tegundir belgjurta á meðan tegundafjöldi þeirra í Noregi losar eitt hundrað (Sigurður 2014).

Vegna skorts á plöntum á Íslandi, sem binda nitur með hjálp örvera, gekk mjög hratt á forðann eftir að landið byggðist og gróður tók að eyðast. Það tókst ekki að endurnýja niturforðann eftir því sem af honum var tekið með beit. Enn sjást þess merki á þrautpíndu landi. Þetta hefur eflaust átt sinn þátt í því hversu hratt gróðurþekjan lét undan eftir landnám í kjölfar ósjálfbærrar landnýtingar og áfalla á borð við skriðuföll og flóð sem nauðbeitt landið gat ekki tæklað.

Rannsóknir erlendis hafa sýnt fram á að niturframleiðsla hafþyrnis er nokkuð óstöðug. Hún er háð umhverfisaðstæðum svo sem hita og raka. Þannig getur veðrið haft mikil áhrif á árlega niturbindingu. Tegundin getur þrifist í fjölbreyttum jarðvegi en það dregur úr niturvinnslunni ef aðstæður eru óhagstæðar. Í garðrækt skiptir niturvinnslan minna máli en úti í náttúrunni. Það kann að eiga þátt í að hafþyrnirinn þrífst þar í fjölbreyttum jarðvegi. Erlendis, þar sem bæði loft- og jarðvegshiti er hærri en hér á landi, hefur binding hjá hafþyrni verið mæld allt að 180 kg á ha en við vitum ekki til þess að slíkar mælingar hafi verið gerðar hér á landi og væntanlega eru tölurnar ekki eins háar á okkar svala landi. Í Skotlandi virðist bindingin vera minni en hjá elritegundum (Greer 2023) og sennilega er það einnig þannig hér á landi. Það þarf þó ekki endilega að vera galli. Góðir hlutir gerast hægt.

Notkun á Íslandi
Sá sem þetta ritar hefur fyrst og fremst notað tegundina til landgræðslu í Skriðdal og ofan Hafnarfjarðar. Svo hefur hann reynt hana í sendnum jarðvegi á Skeiðunum með ágætum árangri nema þar sem samkeppni er mikil. Sennilega er landgræðsluhlutverkið algengast hér á landi en tegundin er ekki mikið notuð á þann hátt. Ástæðan kann að vera sú að þegar tegundin vex upp er ekki auðvelt að ganga í gegnum runnaþykknið vegna þyrnanna. Aftur á móti drepast lágvöxnu plönturnar þegar þær lenda í skugga þeirra sem vaxa meira. Því er óvíst að kjarrið verði eins þétt og ógreiðfært og ætla mætti.
Vel getur farið á að nota þessa tegund í landgræðsluskógum og í sendnum og rýrum skógarjöðrum. Litur hafþyrnis er sérstakur og óvenjulegur svo hann stingur skemmtilega í stúf við annan trjágróður.

Í garðrækt er tegundin gjarnan notuð í þyrpingar, steinhæðir eða sem stakstæður runni. Þar þrífst hún í alls konar jarðvegi þótt sendinn jarðvegur henti plöntunni best. Í garðrækt, rétt eins og í annarri ræktun, er mikilvægt að muna að hafþyrnir þarf sólríkan vaxtarstað. Hann þrífst ekki í skugga. Í íslenskum görðum er sennilega algengast að sjá tegundina notaða sem staka, lágvaxna runna fremst í blönduðum runnabeðum. Einnig þekkist að hærri runnar séu ræktaðir á stöku stað.
Strauß (2019) segir frá því að sérstök yrki séu ræktuð í limgerðum í þýskum görðum. Fáir hætta sér í gegnum slík þyrnigerði og þau geta litið vel út og gefið ágæta berjauppskeru. Aðrar plöntur, sem vaxa nálægt þessum limgerðum, njóta góðs af niturbindingunni. Strauß nefnir að í garðrækt sé mikilvægt að velja yrki sem ekki mynda mikil rótarskot.
Að ósekju mætti nýta hafþyrni mun meira í garðrækt en nú er gert á Íslandi. Bæði vegna þess að hann er sérstakur útlits og eins vegna þess hve harðgerður hann er. Það má nota hann á vindasömum stöðum og í villigörðum. Hann hentar vel við sjávarsíðuna þar sem fátt annað þrífst enda þolir hann vel að vaxa þar sem salt berst á hann. Því má einnig planta honum á umferðareyjum þar sem salt frá hálkuvörnum berst af götunni. Hann kippir sér ekkert upp við svoleiðis smámuni.
Tvær myndir af hafþyrni í görðum. Myndirnar eru af heimasíðu Þallar í Hafnarfirði.
Að lokum
Í þessari grein hefur verið farið yfir það helsta sem tengist notkun hafþyrnis á Íslandi. Sambærileg notkun þekkist víða erlendis og þar er hann mikilvægur í gróðurframvindu. Við vorum samt ekkert að endurtaka það sem kom fram í tveimur fyrri pistlum okkar um tegundina. Hana má rækta til að fá hin hollu og C-vítamínríku ber, eins og sagt var frá í síðasta pistli um tegundina en hafþyrni má einnig nýta til landgræðslu og í garðrækt. Hann getur einnig hentað í skógarjaðra og við sumarbústaði þar sem jarðvegur og aðrar aðstæður henta.
Þegar tegundin er ræktuð verður að hafa í huga að hún getur skotið rótum allvíða og er með þyrna sem hugnast ekki öllum. Frá því var sagt í fyrsta pistli okkar um tegundina og endurtekið hér svo það komi engum á óvart sem rækta vill hafþyrni.
Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem veittu okkur upplýsingar sem við nýttum í alla þrjá pistlana, lánuðu okkur myndir og styðja við skógrækt í landinu. Einnig viljum við þakka Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur fyrir vandaðan yfirlestur handrits. Það er þó ekki hennar sök ef villur hafa læðst í pistilinn. Þær skrifast alfarið á höfundinn.

Heimildir og frekari lestur
Við birtum hér sömu heimildaskrána fyrir alla þrjá pistlana þótt aðeins sé vísað í sumar þeirra í þessum pistli.
Ron Greer (2023) Upplýsingar í gegnum samskiptamiðla.
Gróðrarstöðin Þöll (2025): Hafþyrnir - Hippophae rhamnoides. Sótt 29. nóvember 2025. Sjá: Hafþyrnir – Hippophae rhamnoides – Gróðrarstöð.
Helgi Þórsson (2025): Upplýsingar í gegnum samskiptamiðla.
Thomas S.C. Li & W.R. Schroeder (1996): Sea Buckthorn (Hippophae rhamnoides L.): A Multipurpose Plant. HortTechnology Volume 6: Issue 4 bls. 370 – 380. Sjá: Sea Buckthorn (Hippophae rhamnoides L.): A Multipurpose Plant in: HortTechnology Volume 6: Issue 4 | ASHS.
Lystigarður Akureyrar (2025): Hippophaaë rhamnoides. Sótt 28. nóveber 2025. Sjá: Garðaflóra | Lystigarður Akureyrar.
L. Rongsen (1992). Seabuckthorn - A multipurpose Plant Species for Fragile Mountains[GE1] International Centre for Integrated Mountain Development. (ICIMOD) Publications No. 20. Katmandu, Nepal. Sjá: Seabuckthorn - A multipurpose Plan Species for Fragile Mountains.
Cheng-Jian Ruan, Kommo Rumpunen & Hilde Nybom (2011): Advances in improvement of quality and resistance in a multipurpose crop: sea buckthorn. Í: Critical Reviews in Biotechnology. 33:2 bls. 126-144. Birt á vef 2013. Sjá: Advances in improvement of quality and resistance in a multipurpose crop: sea buckthorn: Critical Reviews in Biotechnology: Vol 33 , No 2
Keith Rushforth (1999): Trees of Britain & Europe. Collins Wildlife Trust Guide. The Harper Collins Publishers, London.
Sigurður Arnarson (2014): Belgjurtabókin. Tré, runnar og blómjurtir af ertublómaætt. Sumarhúsið og garðurinn, Selfossi.
Markus Strauß (2019): Sanddorn. Die Vitamin-C Pflanze für Selbstversorger. 2. útgáfa. Verlag4you.
WFO, The World Flora Online (2025): Hippophae L. (ásamt undirsíðum) Sjá: Hippophae L. Sótt: 23. nóvember 2024.




Comments