Nánasta fjölskylda birkis
Undanfarnar vikur höfum við í pistlum okkar beint kastljósinu að birkinu sem er algengasta trjátegund landsins og skipar mikilvægan sess í íslenskri vist. Oftast nær höfum við sett inn einn og einn pistil og sagt frá ýmsu öðru þess á milli. Nú ætlum við að birta tvo pistla um skyld málefni sem tengjast birkinu. Í þessum pistli fjöllum við um nánustu fjölskyldu birkisins en í þeim næsta, sem við birtum eftir viku, segjum við frá helstu tegundum ættkvíslarinnar og hvernig hún er flokkuð.

Tilgangur flokkunar
Rétt er að muna að öll flokkun lífríkisins á að vera til einföldunar og er ætlað að auka skilning okkar á fjölskyldutengslum lífveranna og þar með þekkingu okkar á tegundum. Stundum er eins og þetta gleymist. Það mætti jafnvel halda að ekkert í heiminum sé svo einfalt að ekki megi flækja það með útskýringum. Við erum ekki laus við þetta. Okkar flækja stafar oft af því að í pistlunum segjum við gjarnan frá ólíkum sjónarmiðum hvað flokkunina varðar án þess endilega að taka afstöðu til ólíkra skoðana. Vonandi fyrirgefst okkur það. Í þessum pistli skoðum við fyrst ættina sem birkið tilheyrir og síðan ættkvíslina. Í næsta pistli skoðum við frekari flokkun ættkvíslarinnar og ólíkar tegundir innan hennar.

Ættin, Betulaceae
Í anda Íslendingasagna þykir okkur rétt að hefja umfjöllun á ættfræði. Fyrst segjum við frá ættinni en síðan ættkvíslinni.
Birki, Betula, er meginættkvísl birkiættarinnar sem einnig er nefnd bjarkætt, bjarkaætt eða bjarkarætt allt eftir því hver heldur á penna eða pikkar á lyklaborð. Á fræðimálinu er nafnið aðeins eitt. Ættin er nefnd eftir birkiættkvíslinni, Betula, og kallast Betulaceae. Rétt er að minna á að samkvæmt alþjóðlegum nafnareglum eru nöfn ættkvísla rituð með skáletri en það á ekki við um nöfn ætta eins og fram kemur í þessum pistli.
Innan ættarinnar er að finna sex ættkvíslir lauffellandi trjáa og runna sem eru misjafnlega framandi í augum okkur Íslendinga. Auk birkiættkvíslarinnar, Betula, eru þrjár ættkvíslir sem margir þekkja. Þær eru elri, Alnus, agnbeyki, Carpinus og hesli Corylus. Innan ættarinnar eru einnig tvær minna þekktar ættkvíslir sem eiga sér ekki íslensk heiti ef marka má íðorðabanka Árnastofnunar. Þær heita Ostrya og Ostryopsis á fræðimálinu. Birkið þrífst hér vel og hið sama má segja um elri. Hesli og agnbeyki eru til á skjólgóðum stöðum í landinu en tvær þær síðasttöldu eru hér ekki svo okkur sé kunnugt um.

Eins og algengt er ber heimildum ekki endilega saman um hversu margar tegundir eru innan þessarar ættar en samkvæmt þessari heimild frá árinu 2016 eru þær 167 en Britannica segir þær vera 145. Af ættkvíslunum er birkiættkvíslin stærst.
Af ættkvíslum ættarinnar er elrið talið skyldast birkinu. Stundum er ættinni skipt í tvær undirættir. Birkið og elrið er þá saman í annarri þeirra og kallast hún Betuloideae. Hinar fjórar ættkvíslirnar eru í undirættinni Coryloideae (Britannica 2026).


Ættkvíslirnar eiga það sameiginlegt að blöðin eru nokkuð áþekk á öllum tegundunum. Þau eru að jafnaði einföld, fjaðurstrengjótt og tennt en lag þeirra og stærð getur verið býsna fjölbreytt að öðru leyti. Allar tegundirnar geta myndað axlarblöð (Ágúst 2026).
Agnbeyki, Carpinus betulus, er af sömu ætt og birkið og minnir á það. Myndirnar voru teknar í ágúst 2025 í Glenfarg í Skotlandi. Myndir: Sig.A.
Allar tegundirnar mynda einkynja blóm en bæði kvenblóm og karlblóm vaxa á sömu plöntunum. Frá því geta verið undantekningar á ungum plöntum. Blómin eru mörg saman og myndast í aðskildum reklum sem nær alltaf þroskast fyrir eða samhliða laufgun. Þrátt fyrir að blóm ættarinnar séu mjög lík og opnist á vorin er þroskaferlið ekki það sama hjá öllum ættkvíslum. Hjá birkinu spretta karlreklarnir fram á haustin og sitja hálfþroskaðir á greinunum allan veturinn en kvenreklarnir birtast á vorin. Bæði kynin opna sig á vorin eins og algengast er innan ættarinnar en karlblómin opna sig að jafnaði á undan kvenblómum á sama tré (Ágúst 2026). Þannig er það hjá nánast öllum tegundum innan ættarinnar. Þó verður oftast einhver skörun þannig að seinustu karlblómin opnast á sama tíma og fyrstu kvenblómin. Þetta skiptir máli þegar kemur að fræmyndun og uppstokkun erfðaefnis. Á þennan hátt er hægt að draga verulega úr sjálffrjóvgun en hún er engu að síður möguleg.
Talið er mikilvægt að stunda víxlfrjóvgun til að stokka upp erfðaefni. Þannig getur hver ný kynslóð verið ögn betur aðlöguð umhverfisaðstæðum á hverjum stað en kynslóðin á undan. Uppstokkunin hjálpar til við að takast á við óvæntar umhverfisbreytingar, hverjar sem þær kunna að verða.
Meginþorri birkifræja verður til við víxlfrjóvgun. Sjálffrjóvgun getur aðeins átt sér stað þegar þroski karl- og kvenblóma skarast á sama trénu. Það getur hjálpað ef tréð stendur eitt og hefur ekki möguleika á að mynda fræ með víxlfrjóvgun. Því er það eins konar varnagli að blómgunin skuli skarast lítillega.

Ættkvíslin, Betula L.
Íslenska birkið, Betula pubescens Ehrh., er af birkiættkvíslinni, Betula L., sem Linnæus skilgreindi fyrst árið 1753. Því er bókstafurinn L. á eftir heiti ættkvíslarinnar. Jakob Friedrich Ehrhart (1742 – 1795) er eignað fræðiheiti tegundarinnar. Hann var samt ekki fyrstur til að nota heitið. Það gerði meðal annars Linnæus á undan honum en án þess að lýsa tegundinni af grasafræðilegri nákvæmni. Þar liggur munurinn. Ehrhart gaf fjölmörgum plöntum nöfn en er frægastur fyrir að hafa fyrstur grasafræðinga notað hugtakið undirtegund (subspecies). Við sögðum nánar frá nafni ættkvíslarinnar í þessum pistli. Þar sem síðari liður heitis flestra tegunda af þessari ættkvísl er gjarnan -birki (fjalldrapi er undantekning) er alltaf ákveðin hætta á ruglingi þegar talað er um birki. Þess vegna hefur hið íslenska birki stundum verið nefnt ilmbirki ef hætta er á ruglingi.

Í sérstökum pistli sem sjá má hér sögðum við frá birkiættkvíslinni. Óþarfi er að endurtaka það allt saman en þar kemur fram að innan ættkvíslarinnar eru til jarðlægir runnar og allt upp í um 30 metra há einstofna tré. Allar tegundirnar vaxa villtar á norðurhveli jarðar. Hvorki er full eining um fjölda tegunda né hvar mörk þeirra liggja.
Ættkvíslin hefur verið til á jörðinni mjög lengi og má skipta henni í þrjár undirættir. Ein af þeim er þekkt fyrir sinn ljósa stofn. Um þetta fjöllum við í næsta pistli okkar um birki.

Framhaldið
Næsti birkipistill okkar verður beint framhald af þessum. Þá segjum við nánar frá helstu birkitegundum heimsins og förumyfir hvernig þeim er skipt í hópa eftir skyldleika. Þar byggjum við helst á bók eftir Kenneth Ashburner & Hugh A. McAllister frá 2013. Svo skoðum við sérstaklega helstu tegundir sem reyndar hafa verið á Íslandi. Að lokum viljum við þakka Helga Þórssyni fyrir lán á mynd og Pétri Halldórssyni fyrir vandaðan yfirlestur. Alla birkipistla okkar má sjá hér um leið og þeir birtast.

Heimildir
Ágúst H. Bjarnason (2026): Flórulyklar. Greiningarbók háplantna á Íslandi. Gefið út á kostnað höfundar.
Kenneth Ashburner & Hugh A. McAllister (2013): The Genus Betula. A Taxonomic Revision of Birches. Kew Publishing. Royal Botanic Gardens, Kew.
Britannica, ritstjórn (2026) Betulaceae. Britannica. Sjá: Forest | Definition, Ecology, Types, Trees, Examples, & Facts | Britannica. Sótt 6. apríl 2026.




Comments