top of page
Search


Gráelri og náskyldar tegundir
Í barrskógabeltinu, allt í kringum norðurskautið, vaxa líkar trjátegundir sem eiga sér sameiginlega forfeður og -mæður. Þær mynda einhvers konar belti þar sem hver erfðahópur tekur við af öðrum. Ekki er alltaf auðvelt að átta sig á hvar einn hópur tekur við af öðrum því fátt hindrar erfðaflæði á milli hópanna. Í síðustu viku birtum við pistli þar sem við sögðum frá hvernig ísöldin hafði áhrif á þessi náskyldu tré. Þegar kuldaskeið gengu yfir gátu einstakir hópar einangrast og
Sigurður Arnarson
Jul 2913 min read


Gráelri á ísöld
Á veturna er kalt. Það kemur samt ekki í veg fyrir að inn á milli komi hlýir dagar. Stundum koma meira að segja nokkrir dagar í röð þar sem hlýindi ríkja. Líkja má hinni löngu ísöld við ákaflega langan vetur. Hún var samt ekki eitt samfellt kuldaskeið frekar en íslenskir vetur. Inn á milli komu hlýskeið sem breyttu öllu. Þau voru sambærileg við hlýja daga á hverjum vetri. Rétt eins og hlýir dagar á hverjum vetri eru almennt færri en köldu dagarnir þá stóðu hlýskeið ísaldar mu
Sigurður Arnarson
Jul 229 min read


Gráelri frá Evrópu - Annar hluti
Undanfarin misseri höfum við reglulega birt pistla um elri og elritegundir sem sjá má hér . Þar sem við erum sannfærð um að elritegundir séu vannýttar í skógrækt, garðrækt og landgræðslu ætlum við að halda þessari umfjöllun áfram. Fyrir nokkrum vikum birtum við fyrsta pistil okkar um evrópskt gráelri . Við vinnslu hans kom í ljós að okkur liggur mikið á hjarta um þessa elritegund sem hefur verið lengur í ræktun á Íslandi en annað elri. Því má líta á þennan pistil sem framhald
Sigurður Arnarson
Apr 115 min read


Runnkennt elri til landgræðslu - Seinni hluti: Tegundir
Í norðurhluta Evrópu, Ameríku, Asíu og í fjöllum sunnar í sömu álfum vex elri sem oftast myndar kjarr frekar en skóg. Nú er mest af því flokkað sem ein safntegund. Þetta runnkennda elri vex gjarnan við skógarmörk og getur lifað og vaxið við skilyrði sem reynast öðrum tegundum trjáa og runna strembin. Um þetta fjölluðum við í fyrri hluta þessa pistils sem lesa má hér . Í þeim pistli lofuðum við að fjalla nánar um mismunandi hópa þessa elris. Hér kemur sú umfjöllun. Myndarlegt
Sigurður Arnarson
Jan 1420 min read


Frjókorn elris
Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands, ni.is, kemur fram að byrjað er að mæla frjókorn á Akureyri þetta vorið. Daglegar niðurstöður verða birtar frá og með 1. maí. Einkum eru það súrur, grös og birki sem framleiða frjókorn sem valda ofnæmi hjá Íslendingum. Frjókorn eru farin að mælast á Akureyri og eru það frjókorn elritrjáa og -runna. Elri er af sömu ætt og birki en annarri ættkvísl ( Alnus á fræðimáli) og hér á landi er tæpur tugur ræktaður af Alnusættkvíslinni. Algengasta e

Sigurður Arnarson
Apr 25, 20201 min read
bottom of page
