Stjórn og varastjórn 2026-2027
- Sigurður Arnarson
- 6 hours ago
- 1 min read
Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga var haldinn þriðjudaginn 24. mars síðastliðinn í Hótel Kjarnalundi í Kjarnaskógi. Á fyrsta fundi stjórnar skipti hún með sér verkum og er samdóma álit þeirra er gerst þekkja að vel hafi tekist til. Helst bar til tíðinda að Sigurður Hólm Sæmundsson baðst undan áframhaldandi formennsku. Í hans stað var Helgi Þórsson frá Kristnesi kosinn formaður.

Í stjórn eru sjö aðalmenn og þrír til vara. Hver stjórnarliði er kosinn til þriggja ára í senn og hver varastjórnarliði er kosinn til eins árs í senn. Hin nýja stjórn er þannig skipuð: Formaður: Helgi Þórsson. Varaformaður: Sigurður Hóm Sæmundsson. Ritari: Helga Ösp Jónsdóttir
Gjaldkeri: Rebakka Kristín Garðarsdóttir. Meðstjórnendur: Sigurður Arnarson,
Gunnar Már Gunnarsson,
Ásgeir Þór Ásgeirsson.
Varamenn: Tryggvi Marinósson,
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir,
Ísak Már Jóhannesson.
Um leið og við óskum þessu fróma fólki velfarnaðar í starfi viljum við þakka fráfarandi stjórn gott og óeigingjarnt starf í þágu skógræktar í Eyjafirði. Sérstakar þakkir fá Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, Óli Þór Jónsson og Pétur Halldórsson fyrir sinn hlut, en þau gengu úr stjórn. Öll munu þau þó halda áfram að sinna verkefnum fyrir félagið þegar á þarf að halda.

Á heimasíðu félagsins má sjá myndir af öðrum stjórnarmönnum. Þegar þetta er skrifað vantar tvær myndir en úr því verður bætt.




Comments