top of page
mainLong-1.png
  • Facebook

Fundur um viðarmiðlun

Í gær, 9. apríl 2026, var haldinn fróðlegur og góður fundur í Kjarnaskógi. Eiríkur Þorsteinsson frá Trétækniráðgjöf hélt erindi en auk hans sátu fundinn fulltrúar frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga og Landi og skógi. Fulltrúar skógræktarfélagsins þurftu auðvitað ekki að fara langt en frá Landi og skógi komu fulltrúar bæði frá skrifstofunni í Gömlu-Gróðrarstöðinni og frá Vaglaskógi.

Þorri fundarmanna fer yfir málin í Kjarnaskógi. Mynd: Ingólfur Jóhannsson.
Þorri fundarmanna fer yfir málin í Kjarnaskógi. Mynd: Ingólfur Jóhannsson.

Umræðuefni fundarins var viðarmiðlun og hvernig best verður að henni staðið. Hugmyndin er að stofna til fimm starfstöðva á landinu. Ein á Vesturlandi, önnur í Reykjavík, sú þriðja á Suðurlandi, fjórða á Austurlandi og að lokum verður sú fimmta hér fyrir norðan. Fundurinn í Kjarna var fyrir síðast talda hópinn.


Starfstöðvar fyrirhugaðrar viðarmiðlunar. Skógræktarfélag Íslands heldur utan um verkefnið sem skoða má á skog.is/vm.
Starfstöðvar fyrirhugaðrar viðarmiðlunar. Skógræktarfélag Íslands heldur utan um verkefnið sem skoða má á skog.is/vm.

Starfsmenn fyrirtækja, sem taka þátt í þessu verkefni, þurfa að sækja námskeið til að öðlast þekkingu á timburflokkun. Farið verður eftir staðlinum ÍST INSTA 142:2009 ef einhver skyldi vita hvað það merkir.

Hugmyndin með verkefninu er að tryggja betri viðarafurðir fyrir margvíslega notkun og að skapa vettvang þar sem fagaðilar, svo sem arkitekta og verkfræðinga, geta átt samtal og aflað sér upplýsinga um íslenskan við sem nýta má í margvíslegum tilgangi. Byggt verður á reynslu þeirra sem taka þátt í verkefninu um leið og stuðlað verður að aukinni þekking þeirra á viðargæðum. Allt útlit er fyrir að Skógræktarfélagið verði þátttakandi í verkefninu. Meira verður sagt frá því síðar í sérstökum pistli.

Merki verkefnisins sem við fengum af heimasíðu þess.
Merki verkefnisins sem við fengum af heimasíðu þess.

Comments


Heimilisfang:

Skógræktarfélag Eyfirðinga

Kjarnaskógi

600 Akureyri

Netfang: ingi@kjarnaskogur.is

bottom of page