Aðalfundur 2026
- Sigurður Arnarson
- 1 day ago
- 2 min read
Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga var haldinn þriðjudaginn 24. mars í Hótel Kjarnalundi í Kjarnaskógi. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Í lok fundar héldu þær stöllur og stjórnarkonur félagsins, Helga Ösp Jónsdóttir sérfræðingur hjá Landi og skógi og Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun afar fróðlegan fyrirlestur um skaðvalda í skógi og sveppina sem þar eiga heima.

Mikla athygli vakti að félagið vildi leggja táknræna hönd á plóg til að draga úr verðbólgu á landinu. Því var ákveðið að árgjald félagsins skyldi lækkað um 7,5% sem er sama tala og stýrivextir Landsbankans eru í núna. Um þetta má meðal annars lesa hér og hér. Í stað fimm þúsund króna áður kostar nú eingöngu kr. 4.625.- að vera félagi í öflugu almannahagsmunafélagi sem jafnframt er elsta skógræktarfélag landsins og vinnur ötullega að samfélagsmálum og eflingu trjá- og skógræktar. Annars er það helst að frétta að kjörtímabili Guðríðar Gyðu Eyjólfsdóttur og Óla Þórs Jónssonar rann út og gaf hvorugt þeirra kost á sér áfram. Að auki gekk Pétur Halldórsson úr varastjórn.

Félagið vill færa þessu góða fólki sínar bestu þakkir fyrir farsælt og gott starf í þágu félagsins. Þrátt fyrir að þau gangi úr stjórn mun fólkið halda áfram að vinna fyrir félagið. Má nefna sem dæmi að Pétur og Guðríður Gyða munu halda áfram að lesa yfir próförk fróðleikspistla félagsins.

Í stjórn voru kosin Helga Ösp Jónsdóttir sem var í varastjórn og Helgi Þórsson í Kristnesi. Fyrir í stjórn voru Ásgeir Þór Ásgeirsson, Gunnar Már Gunnarsson, Rebekka Kristín Garðarsdóttir, Sigurður Arnarson og sitjandi formaður; Sigurður Sæmundsson. Stjórnin mun skipta með sér verkum á sínum fyrsta fundi.
Í varastjórn var Alfa Jóhannsdóttir endurkjörin en ný í varastjórn eru Tryggvi Marínósson og Ísak Már Jóhannesson.
Við óskum öllu þessu fólki velfarnaðar í starfi.





Comments