top of page
Search


Ættkvísl hlyntrjáa
Sen-no-Rikyu var þjóðþekktur temeistari í Japan á sextándu öld. Þá tíðkaðist ekki að fá sér eitthvert skyndite heldur var allt gert eftir ströngum hefðum og siðum. Þannig er það enn á betri heimilum Japans. Eitt haustkvöld þegar Sen-no-Rikyu hafði sópað garðinn samkvæmt sgildandi siðvenjum og gert allt hreint og fágað fyrir tedrykkju kvöldsins leit hann yfir svæðið og sá að svona fínpússað var umhverfið óspennandi og of gelt fyrir fróma tedrykkju. Því náði hann í tvö eða þrjú
Sigurður Arnarson
Sep 1616 min read


Runnkennt elri til landgræðslu - Seinni hluti: Tegundir
Í norðurhluta Evrópu, Ameríku, Asíu og í fjöllum sunnar í sömu álfum vex elri sem oftast myndar kjarr frekar en skóg. Nú er mest af því flokkað sem ein safntegund. Þetta runnkennda elri vex gjarnan við skógarmörk og getur lifað og vaxið við skilyrði sem reynast öðrum tegundum trjáa og runna strembin. Um þetta fjölluðum við í fyrri hluta þessa pistils sem lesa má hér . Í þeim pistli lofuðum við að fjalla nánar um mismunandi hópa þessa elris. Hér kemur sú umfjöllun. Myndarlegt
Sigurður Arnarson
Jan 1420 min read


Fræ eru ferðalangar
Flest vitum við að tré stunda ekki göngutúra. Hvert og eitt á í vandræðum með að færa sig úr stað, enda eru tré rótföst. Samt er það svo...
Sigurður Arnarson
Jun 8, 202216 min read


Aspamæður
Sum tré eru tvíkynja. Það merkir að hvert tré er bæði með karl- og kvenkyns æxlunarfæri. Þetta á við um reyni og birki svo dæmi séu nefnd. Önnur tré eru einkynja. Það merkir að hvert tré er annað hvort karlkyns eða kvenkyns. Þannig er því til dæmis farið hjá víðiættinni, en til hennar heyra bæði víðir og aspir. Nú er einmitt sá tími þegar alaskaaspir eru að henda fræjum sínum. Það er nánast eins og það snjói á þurrum dögum og fræin þekja stór svæði og fara víða. Þetta er tilr
Sigurður Arnarson
Jul 30, 20202 min read
bottom of page
