Afmæliskaffi
- Sigurður Arnarson
- 2 days ago
- 1 min read
Þann 11. maí árið 1930 hittust 12 Eyfirðingar, tvær konur og tíu karlar, á Hótel Gullfossi og stofnuðu skógræktarfélag. Seinna fékk félagið nafnið Skógræktarfélag Eyfirðinga og er elsta skógræktarfélag landsins sem starfað hefur óslitið frá stofnun.
Undanfarin ár höfum við haldið upp á afmælið á þessum degi og boðið gestum og gangandi að þiggja súpu og ketilkaffi í höfuðstöðvum félagsins í rauða húsinu í Kjarnaskógi. Það gerum við einnig þennan afmælisdag. Gestum er velkomið að líta við milli kl. 11 og 14. Þar verður hægt að viðra málin, ræða við starfsmenn og suma stjórnarmenn eða spjalla við aðra gesti um málefni líðandi stundar og hið góða starf sem félagið vinnur. Einnig er kjörið að koma með athugasemdir, tillögur eða annað sem gagnast getur félaginu. Þér, lesandi góður, er hér með boðið að mæta og eiga góða stund með okkur.





Comments