top of page

Jólatrésskemmtun í Kjarnaskógi 17. desember

Eins og allir vita eiga jólasveinarnir heima í Kjarnaskógi, rétt hjá ærslabelgnum á Birkivelli. Í samstarfi við þá og Félag eldri borgara á Akureyrir býður Skógræktarfélag Eyfirðinga öllum börnum sem leið eiga um Kjarnaskóg sunnudaginn 17.desember að dansa kring um jólatréð við grillhúsið á Birkivelli kl. 16.


Á vígsludegi Birkivallar árið 2017 var rauðgrenijólatrénu fína plantað gagngert til að dansa í kring um það í fyllingu tímans. Því hefur nú vaxið fiskur um hrygg og tímabært að það fái að sinni hlutverki sínu 😊


Best er að leggja á bílastæðinu neðan við strandblakvellina en þaðan verðar skilti sem vísa í rétta átt að leikvellinum á Birkivelli. Á korti Google: https://maps.app.goo.gl/M4xxByyjyDKq5hKHA


Jólasveinar og glaðir krakkar í Kjarnaskógi
Frá jólatrésskemmtuninni í Kjarnaskógi 2022

Þar verður dansað kring um jólatréð undir styrkri leiðsögn reynslubolta í jóladansi og jólasveinarnir okkar, þeir Hurðaskellir og Kjötkrókur líta við með karamellu og köngul í poka. Hvur veit nema þeir taki líka lagið og sýni nýju danssporin sem þeir undanfarið hafa æft af kappi upp við Súlurætur !


Birkibandið flytur svo fallegu jólalögin,hægt verður að ylja sér við eldinn, þiggja kakó, ketilkaffi og piparkökur osfrv.


Ungir sem aldnir hjartanlega velkomnir, eigum saman gleðilega skógarstund í aðdraganda jóla 😊


Aðgangur að sjálfsögðu ókeypis eins og alltaf en þið verðið að klæðast eftir aðstæðum, í desember er allra veðra von á Akureyri og besta veðrið í Kjarna 😊


Fjölmargir nýta göngu, hjóla og skíðaleiðir í Kjarnaskógi sér til heilsubótar á degi hverjum. Við lítum á þetta sem venjulegan dag í skóginum okkar en langar að gera þessa jólatrésskemmtun að árlegum viðburði. Hvetjum foreldra, afa og ömmur osfrv til að njóta útivistar með börnunum úr fjölskyldunni í aðdraganda jóla, staldra við stutta stund á Birkivelli, fá sér snúning kring um jólatréð og kankast aðeins á við jólasveinana á leið ykkar um skóginn 😊



Recent Posts

See All
bottom of page