top of page
Search


Skógarbotnsplöntur
Þar sem tvö tré koma saman, þar er skógur. Aðstæður fyrir annan gróður en tré eru gjörólíkar í og utan við skóga. Sérstaklega ef trén eru fleiri en tvö. Þess vegna er farið dálítið frjálslega með sannleikann í þessari tilvitnun hér í byrjun og sennilega á það sinn þátt í að gera hana svona eftirminnilega. Allar grænar plöntur ljóstillífa. Því er birta og sólarljós þeim alger nauðsyn. Þar sem í skóginum vaxa að jafnaði mörg tré verður meiri birta utan við skóginn en víðast hva
Sigurður Arnarson
Jun 1013 min read


Silkitoppa
Skógar Íslands, einkum barr- og blandskógar, hafa sýnt okkur fram á að ýmsir fuglar, sem ekki voru á landinu í fyrri tíð, geta vel lifað hér á landi. Við höfum nú þegar sagt frá sumum þeirra. Má nefna glókollinn sem er skilgetið afkvæmi barrskóga á Íslandi og algerlega háður þeim um fæðu. Nú er komið að einum þeirra fugla sem telst vera flækingsfugl á Íslandi. Vel getur verið að sú tíð komi að hann geti sótt um íslenskan ríkisborgararétt. Þetta er hin fallega silkitoppa eða B
Sigurður Arnarson
May 2718 min read


Knappareynir
Um austurhluta Norður-Ameríku vex reynitegund sem reynd hefur verið hér á landi. Hún er kennd við álfuna alla og heitir Sorbus americana Marshall á fræðimálinu. Ekki er annað að sjá en tegundin þrífist hér prýðilega eins og svo margar reynitegundir sem reyndar hafa verið á Íslandi. Fyrri myndin er af korti frá World Flora Online sem sýnir útbreiðslu tegundarinnar. Á síðu Wikipedia er annað kort og ber þeim ekki alveg saman eins og sjá má. Kortin hjá WFO eru þannig uppbyggð að
Sigurður Arnarson
Apr 157 min read


Landnám skógarfugla
Skógrækt hefur verið stunduð á Íslandi í meira en heila öld með þeim árangri að nú eru um 2% landsins vaxin skógi. Þar af er um 1,5% vaxið birkiskógi og -kjarri en plantaðir skógar þekja um hálft prósent landsins. Sums staðar hefur þetta gengið hraðar fyrir sig en annars staðar hægar. Eyjafjörður er í fyrrnefnda hópnum og nú lætur nærri að 5% lands í firðinum sé vaxið skógi. Reyndar verður að geta þess að þetta eru íslensk viðmið. Ef notuð eru erlend viðmið, til dæmis viðmið
Sigurður Arnarson
Mar 2526 min read


Þróun skógarbotnsins
Víðast hvar á Íslandi ber landið glögg merki þess að hér hefur fólk búið í meira en ellefu hundruð ár án þess að gera sér að fullu grein fyrir því hvað landið þyldi. Fólkið kom að skógivöxnu landi og hóf þegar að höggva trén í ýmsum tilgangi. Það gat nýtt timbrið á fjölbreyttan hátt, til dæmis til smíða og kolagerðar, en einnig þurfti að rýma fyrir ræktun gróðurs og búfjár. Sjálfsagt hafa landnemarnir talið að af nægu væri að taka enda telja fræðingar að þá hafi um 25-40% lan
Sigurður Arnarson
Mar 421 min read


Furðutré innan gagnviðarættar
Fyrir nokkru birtum við pistil um einkennisbarrtré suðurhvels jarðar. Það eru tegundir af ættkvísl gagnviða eða Podocarpus. Gagnviðir eru lykiltré ættar sinnar sem kallast gagnviðarætt eða Podocarpaceae. Innan þeirrar ættar eru samtals um tveir tugir ættkvísla, en heimildum ber ekki saman um nákvæman fjölda. Þar má finna ýmis merkileg tré og runna sem mörg hver eru mjög framandi í augum þeirra sem búa á norðurhveli jarðar. Að ekki sé nú talað um þá sem búa á Íslandi. Í þessum
Sigurður Arnarson
Feb 1818 min read


Vistkerfisþjónusta
Á fögrum síðsumarsdegi er fallegt og fróðlegt að ganga um Kjarnaskóg. Sjá má börn að leik. Sum eru við Brunnána á meðan önnur klifra upp í tré eða eru á skipulögðum leiksvæðum. Í skóginum eru fjölskyldur á gangi sem njóta þess sem hann hefur upp á að bjóða. Sumir tína allskonar ber á meðan aðrir leita sveppa. Enn aðrir skoða fugla og njóta þess að heyra í þeim. Ef til vill má rekast á glókoll, svartþröst, gráþröst, krossnef eða skógarsnípu. Þetta eru allt saman frekar nýlegir
Sigurður Arnarson
Feb 1115 min read


Gráþröstur
Talið er að í heiminum öllum séu til um 90 tegundir þrasta, Turdus spp. Þrjár tegundir þeirra hafa verpt nokkuð reglulega á Íslandi hin síðari ár. Tvær þeirra, skógarþröstur, T. iliacus og svartþröstur, T. merula, teljast til íslenskra fugla enda alveg öruggt að þeir verpa hér á hverju ári. Sú þriðja, gráþrösturinn, T. pilaris, er fyrst og fremst algengur haust- og vetrargestur sem kemur gjarnan í október og nóvember. Flestir fara þrestirnir svo í burtu þegar hinir dæmigerðu
Sigurður Arnarson
Dec 10, 202511 min read


Vorboðinn ljúfi
Skógarþröstur, Turdus iliacus, hefur löngum verið með vinsælustu fuglum landsins. Um það vitnar meðal annars fjöldi ljóða og vísa þar sem hann kemur fyrir. Í sumum þessara ljóða skipar fuglinn stóran sess en í öðrum er hann nefndur eins og í framhjáhlaupi. Í þessum pistli segjum við frá því helsta sem tengist fuglinum en við reynum að gera það sem mest frá sjónarhorni skálda. Það er við hæfi að fyrsta mynd þessa pistils sýni skógarþröst að hefja sig til flugs þótt óvíst sé að
Sigurður Arnarson
Oct 29, 202520 min read


Svartþröstur
Á Íslandi eru til fuglar sem syngja fallega. Sérstaklega virðist það eiga við um nokkrar tegundir spörfugla sem helst hafast við í skógum. Auðvitað hefur hver og einn sinn eigin smekk hvað fegurð áhrærir en sennilega er á engan fugl hallað þótt því sé haldið fram að frægustu söngröddina eigi svartþrösturinn. Því til sannindamerkis má nefna að hann hefur meira að segja fengið að syngja inn á Bítlaplötu. Svartþrestir eru á Íslandi vegna framtakssemi okkar manna. Við höfum búið
Sigurður Arnarson
Sep 10, 202520 min read


Eplabóndi í aldarfjórðung
Nú eru liðin 25 ár frá því að fyrst voru sett niður eplatré í Kristnesi. Hvernig gengur það? Það gengur svona: Við skulum segja að 25 ár séu nægilegur tími til að gefa einhverja hugmynd um það hvaða möguleikar séu fyrir hendi í eplarækt. Einhverja hugmynd höfum við um fjölmarga þætti ræktunarinnar. Þetta er alls ekki vísindaleg tilraun og efalaust dregur undirritaður einhverjar rangar ályktanir. En skítt með það. Þær munu þá vafalaust verða leiðréttar af þeim eplapælurum se

Helgi Þórsson
Apr 9, 20259 min read


Fuglaskógar
Eitt af því sem laðar margan manninn í skóga landsins eru skógarfuglarnir. Í þessari grein verður auðvitað minnst á fugla, en kastljósinu er beint að trjánum og hvaða tré henta fuglum best og af hverju. Þetta getur verið gott að hafa í huga við skipulag skóga, til dæmis við sumarbústaðalönd, ef markmiðið er að laða að skógarfugla. Rétt er þó að taka það fram að auðvitað eru fuglar í öllum skógum, en sum tré laða að sér fleiri fugla og fuglategundir en önnur. Skógar veita skj
Sigurður Arnarson
Jan 22, 202523 min read


Um mórber og óvænt heimsmet
Mórber vaxa á samnefndum runnum eða trjám þar sem frost eru fátíð nema á miðjum vetri. Því er þau ekki að finna utan dyra á Íslandi. Ættkvíslin á sér merkilega sögu og kemur við á óvæntustu stöðum. Tegundirnar voru fyrir langalöngu talin nauðaómerkileg en það breyttist fyrir löngu. Eins og allir vita er mikill munur á hugtökunum „fyrir löngu“ og „fyrir langalöngu“. Það sem kom mórberjum ofar í goggunarröðina er sú staðreynd að ein tegundin er grundvöllur silkiframleiðslu í h
Sigurður Arnarson
Jan 8, 202524 min read
bottom of page
