Hlutverk og markmið
 
Sagan

Stjórn S.E.

Starfsmenn


Lög S.E.


Hlutverk og markmið

Félagsaðild

Ásýnd Eyjafjarðar
 

Hlutverk og markmið Skógræktarfélags Eyfirðinga

Hlutverk:

Að vekja og viðhalda áhuga héraðsbúa á skógrækt og veita leiðbeiningar og fræðslu.

Að stuðla að verndun skóga í héraðinu, fylgjast með viðgangi þeirra og skrá ástand og þróun.

Að vera samtarfsvettvangur þeirra einstaklinga og félaga, sem vilja vinna að framgangi trjá – og skógræktar í héraðinu.

Að vera í forystu og hvetja til hvers konar framfara í skógrækt og nýtingu skóga.

Að vinna skipulega að nýskógrækt og stuðla að skráningu og skipulagningu skógræktar í héraðinu með tilliti til umhverfisþátta.


Markmið:

Að styrkja gróðurfar svæðisins og endurheimta glötuð landgæði.

Að skógrækt verði sjálfbær og umhverfisvænn atvinnuvegur.

Að almenningur eigi sem víðast aðgang að skógi vöxnum útivistar-svæðum.

Að útvega félagsmönnum land til skógræktar.

Að taka ný landssvæði til skógræktar á vegum félagsins.

Að tryggja fjölbreytt og vandað framboð af trjáplöntum með því að starfrækja eigin gróðrastöð.

Að kynna skógrækt og landvernd sérstaklega meðal barna og unglinga.

Að félagið hafi ávallt í þjónustu sinni hæft og áhugasamt starfsfólk og geti boðið fram faglega ráðgjöf í sem flestum þáttum skógræktar.

Að fjölga félagsmönnum og tryggja að tengsl þeirra verði ávallt sem virkust.



 
 
Vefstjóri