Sagan
Stjórn S.E.
Starfsmenn
Lög S.E.
Hlutverk og markmið
Félagsaðild
Ásýnd Eyjafjarðar |
|
Lög
Skógræktarfélags Eyfirðinga.
(með áorðnum breytingum, síðast á
aðalfundi 1993.)
1. gr.
Félagið heitir Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Heimili þess og varnarþing er á Akureyri.
2. gr.
Hlutverk félagsins er:
Að vekja og viðhalda áhuga héraðsbúa
á skógrækt og veita leiðbeiningar og fræðslu.
Að stuðla að verndun skóga í héraðinu,
fylgjast með viðgangi þeirra og skrá ástand
og
þróun.
Að beita sér fyrir verndun frum-skóga á svæðinu
og vistkerfi þeirra.
Að vera samstarfsvettvangur þeirra einstaklinga og félaga,
sem vilja vinna að framgangi
trjá- og skógræktar í héraðinu.
Að vera í forystu og hvetja til hvers konar framfara í
skógrækt og nýtingu skóga.
Að vinna skipulega að nýskógrækt og stuðla
að skráningu og skipulagningu skógræktar
í héraðinu með tilliti til umhverfisþátta.
3. gr.
Félagið setur sér markmið í samræmi
við hlutverk sitt, skilgreinir þau og markar stefnu um viðfangsefni
og framkvæmdir á hverjum tíma. Markmiðin skulu
endurskoðuð reglulega af stjórn.
4. gr.
Félagið er öllum opið öllum einstaklingum
sem áhuga hafa á skógrækt og vilja vinna
að framgangi hennar.
5. gr.
Stjórn félagsins skipa sjö menn, sem kosnir eru
á ársþingi þess. Stjórnin er kosin
til þriggja ára og skiptir hún með sér
störfum. Einnig skulu kosnir þrír varamenn. Stjórnarkosningu
skal svo háttað, að kosnir séu tveir, tveir
og þrír til skiptis á ársfundum. Þá
skulu einnig kosnir tveir endurskoðendur og varamenn þeirra,
einn í senn til tveggja ára. Einnig skulu kosnir fulltrúar
á aðalfund Skógræktarfélags Íslands
samkvæmt gildandi lögum þess.
6. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn árlega fyrir lok
júnímánaðar. Stjórnin boðar til
fundar með auglýsingu í blöðum og útvarpi
með viku fyrirvara. Hún skal leggja fram endurskoðaða
reikninga félagsins og skýrslu um starfið á
liðnu ári.7. gr.
Á fundum félagsins hafa allir fullgildir félagar
atkvæðisrétt.
8. gr.
Aðalfundur félagsins telst lögmætur, ef til
hans er boðað með nægum fyrirvara og ef mættir
eru minnst 15 félagsmenn. Verði fundur ekki lögmætur
skal boða til hans aftur innan tveggja vikna og telst hann þá
lögmætur, þó færri mæti en 15
félagsmenn. Afl atkvæða ræður úrslitum
mála.
9. gr.
Stjórn annast allar framkvæmdir félagsins og fjárráð
þess. Hún boðar til funda og undirbýr málefni
félagsins fyrir fundi. Þá hefur hún á
hendi alla bókun fyrir félagið og bréfaviðskipti
og ræður starfsmenn þess. Stjórnin getur boðað
til aukafunda til að ræða einstök vandamál.
Skylt er stjórninni að boða til félagsfundar
ef 15 félagsmenn eða fleiri óska þess.
10. gr.
Félagið skal rofið og hætta störfum, ef
meiri hluti greiddra atkvæða verður með því
á tveimur fundum í röð og renna þá
allar eignir félagsins í sjóð, sem afhendist
Skógræktarfélagi Íslands til varðveislu
uns myndaður verður að nýju félagsskapur
í héraðinu um skógræktarmálin
og rennur sjóðurinn þá til þess félagsskapar.
|
|