Kort
af skógum
Kjarnaskógur
Leyningshólar
Háls
Garðsá
Vaðlaskógur
Laugaland
Miðhálsstaðir
Hánefsstaðir
Aðrir skógarreitir
Tímavélin |
|
Landeigandi:
Legatsjóður Jóns Sigurðssonar.
Umsjón: Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Stærð: 100 ha.
Friðað: 1980 - 81.
Hæsta tré 2000: Lerki, gróðursett 1982,
um 4 m.
Árið 1980, á 50 ára afmæli Skógræktarfélagsins,
var gerður samningur við Sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu
um afnot félagsins að landi til skógræktar.
Félagið hafði þá um nokkurt skeið
leitað að landi til skógræktar en gengið
erfiðlega.
Allt síðan 1980 hafa nýstúdentar frá
MA farið í gróðursetningarferðir að
Laugalandi að loknu síðasta prófi og lætur
nærri að í þessum ferðum hafi verið
gróðursettar 60.000 plöntur.
Skilyrði til skógræktar eru góð á
Laugalandi eins og annarsstaðar á Þelamörk.
Lerki hefur dafnað þar vel og sömu sögu er að
segja um stafafuru sem mikið heur verið gróðursett
af á Laugalandi. Þar hefur félagið tekið
talsvert af jólatrjám undanfarin ár.
Laugaland er rómað berjaland og fjöldi fólks
fer þangað til berja á hverju hausti.
|
|

Skógræktin
á Lauglandi úr lofti 1999

Nyrsti
hluti skógarins á Laugalandi

MA
stúdentar gróðursetja á Laugalandi 1982 undir
stjórn Tómasar Inga Olrich
|
|