|
Kort
af skógum
Kjarnaskógur
Leyningshólar
Háls
Garðsá
Vaðlaskógur
Laugaland
Miðhálsstaðir
Hánefsstaðir
Aðrir skógarreitir
Tímavélin
Kort af Kjarna
Umferðartalning
|
|
Landeigandi:
Akureyrarbær
Umsjón: Skógræktarfélag Eyfirðinga
Stærð: Samtals um 800 ha sunnan Glerár
Friðað: Fyrst 1946 og stækkað margsinnis
Hæsta tré 2000: Alaskaösp 15,25 m
Upphaf skóg- og trjáræktar í Kjarnaskógi
má rekja til 1946, þegar Skógræktarfélagið
fékk þar land undir gróðrarstöð
sína, sem enn er starfrækt þar.
Við upphaf skógræktar í Kjarnalandi var
þar skóglaust með öllu og landið var nýtt
til beitar, slægna og kartöfluræktar.
1952 var síðan hafist handa við friðun og skógrækt
í Kjarnalandi, sem nú er hinn alkunni Kjarnaskógur
sem sést á loftmyndinni hér til hægri
á síðunni.
Félagið vann að ræktun Kjarnaskógar
á eigin vegum allt til 1972 að Akureyrarbær tók
við skóginum og gerði hann að útivistarsvæði
Akureyringa í samstarfi við Skógræktarfélagið
sem annast allar framkvæmdir, skipulag og hirðingu svæðisins.
Þetta samstarf hefur verið einkar farsælt og sem
útivistarsvæði hefur Kjarnaskógur verið
fyrirmynd annarra slíkra um allt land og heldur enn forystu
á því sviði.
Margsinnis hafa girðingar um Kjarnaskóg verið færðar
út. Unnið er að ræktun samfellds skógar
frá gamla Kjarnaskógi í suðri allt norður
að Glerá, ofan byggðainnar og eins hátt í
hlíðarnar og skilyrði leyfa. Alls eru nú innan
girðinga útivistarsvæðisins um 800 ha lands.
Aðastaða til hvers konar útivistariðkana í
Kjarnaskógi er með ágætum. Leikvellir, trimmtæki,
upplýst trimmbraut með skíðaspori á
vetrum og svo mætti lengi telja. Gott kerfi göngustíga
liðast um skóginn. Til að sjá kort yfir göngustíga
í Kjarnaskógi, rennið
músinni hér yfir.
nákvæmara kort yfir miðsvæði Kjarnaskógar
er að finna hér.
Í Kjarnaskógi hafa nokkrum sinnum verið gerðar
umferðartalningar og skoðanakannanir meðal gesta á
svæðinu. Síðast var slík könnun
gerð sumarið 2001 og er helstu niðurstöður
að finna hér.
Trjágróður í Kjarnaskógi er afar
fjölbreyttur og trjásýnistígur liggur
um hjarta skógarins meðfram Brunná. Sífellt
er unnið að fjölgun tegunda trjáa og runna í
skóginum.
Augljóst er að fólk kann vel að meta þetta
framtak Skógræktarfélagsins og Akureyrarbæjar,
því talið er að á annað hundrað
þúsund manns heimsæki skóginn á
hverju ári.
Ýtarlega er fjallað um Kjarnaskóg í bókinni
Ásýnd Eyjafjarðar.
Verkstjóri er Bergsveinn Þórsson, umhverfisfræðingur.
|
|

Kjarnaskógur
úr lofti árið 2000

Steinagerðisvöllur,
leiktæki og grillaðstaða

Skíðasporið
í Kjarna nýtur hylli

Brunná liðast
um skóginn
|
|