Aðrar
jólavörur
Úrval
skreytinga og skreytingaefnis
|
|
Rauðgreni
Picea abies
Rauðgreni er langalgengast íslenskra jólatrjá
og í huga margra er það hið eina sanna jólatré.
Rauðgreni er fíngert og formfallegt tré sem ilmar
vel. S.E. heggur nokkuð af rauðgreni í eigin skógum
og kaupir einnig tré frá öðrum aðilum,
m.a. Skógræktarfélagi Íslands. Það
er útbreiddur misskilninur að rauðgreni sé
erfitt í notkun sem jólatré vegna barrfellis.
Með réttri meðhöndlun má auka barrheldni
grenitrjáa verulega.

Blágreni
Picea engelmannii
Blágreni hefur notið vaxandi vinsælda sem jólatré
hin síðari ár. Ástæðurnar eru
einkum þær að blágreni er oft afar fallegt
og eins hitt að það er mun barrheldnara en rauðgreni.
S.E. sækir allt blágreni sem það hefur til
sölu í eigin skóga en framboð er mun minna
en eftirspurn. Því er ráðlegt fyrir unnendur
blágrenis að vera snemma á ferð í jólatrjáasöluna.

Stafafura
Pinus contorta
Stafafura hefur sótt í sig veðrið sem jólatré
á undanförnum áratugum. Furan hefur allt annað
vaxtarlag en genitrén, mun grófgerðari með
löngum nálum og stórgerðum greinum. Stafafura
hefur marga kosti sem jólatré og er fyrst að nefna
ilminn. Þá er barrfellir ekki vandamál á
furutrjám, segja má að þau felli ekki barr.
Sérstök meðhöndlun er því óþörf
á furu til að hún haldi barri. Oft eru könglar
á furutrjánum. Oll furutré sem S.E. hefur til
sölu eru sótt í skóga félagsins.

Fjallaþinur
Abies lasiocarpa
Fjallaþinur er því miður afar fágætur
sem jólatré á Íslandi. Er það
vegna þess að hann þrífst ekki vel nema við
bestu skilyrði og ekki hefur verið gróðursett
mikið af honum í áranna rás. Hins vegar
er fjallaþinur kjörið jólatré og hefur
allt til brunns að bera sem slíkt: formfegurð, ilman
og barrheldni. Aðeins örfá hundruð fjallaþinstrjáa
eru til sölu á landinu öllu fyrir hver jól.
Norðmannsþinur
Abies nordmanniana
Verulegur hluti jólatrjá í híbýlum
Íslendinga er fluttur inn frá Danmörk og er norðmannsþinur
þar ríkjandi. Þessi tré eru ræktuð
á feikimiklum jólatrjáaökrum á
Jótlandi og seld víðs vegar um Evrópu.
Norðmannsþinurinn hefur þá kosti að fella
ekki barr og ilma vel auk þess að vera fallega dökkgrænn
á lit. Vegna þess hve hratt trén vaxa eru þau
oft nokkuð gisin ofantil. Líkt og með furu þarf
ekki neina meðhöndlun á þintrjám til
að tryggja barrheldni þeirra.
|
|

Leiðbeiningar um meðhöndlun
Til að jólatréð skarti sínu fegursta
sem lengst og haldi angan og barri er ýmislegt hægt að
gera.
Eftir að tréð hefur verið keypt og þangað
til það er tekið í hús til skreytingar
er best að geyma tréð á köldum og skjólsælum
stað. Sé tréð geymt úti er gott að
vefja það í plast til að hlífa því
við vindi. Mikið frost dregur úr barrheldni grenitrjáa.
Þegar tréð er tekið inn og sett upp er gott að
nota svokallaða suðuaðferð á grenitré
- þá meðhöndlun er óþarfi að
nota á þini og furur. Suðuaðferðin felst
í því að opna vel rótarhálsinn
á trénu; gott er að saga sneið neðan af
stofninum til að fá nýtt sár og einnig að
tálga börkinn af neðstu 5-10 sm stofnsins. Látið
síðan tréð standa í snarpheitu vatni
í nokkra stund (10 mín) áður en það
er sett í fót með vatni.
Mikilvægt er að fylgjast vel með því fyrstu
dagana að nægt vatn sé í fætinum því
tréð dregur til sín mikinn vökva fyrst eftir
þessa aðgerð.
Forðist að láta jólatré standa nærri
ofni eða öðrum hitagjafa.
Á þin - og furutrjám er nægilegt að
saga sneið neðan af stofninum og gæta þess síðan
að ávallt sé vatn í fætinum.
|
|