Kort
af skógum
Kjarnaskógur
Leyningshólar
Háls
Garðsá
Vaðlaskógur
Laugaland
Miðhálsstaðir
Hánefsstaðir
Aðrir skógarreitir
Tímavélin |
|
Landeigandi:
Skógræktarfélag Eyfirðinga
Umsjón: Skógræktarfélag Eyfirðinga
Stærð: 12 ha
Friðað: 1946
Hæsta tré 2000: Alaskaösp, gróðursett
um 1950, um 10 m
Upphafsmaður skógræktar á Hánefsstöðum
var eldhuginn og athafnamaðurinn Eiríkur Hjartarson rafmagnsverkfræðingur,
sem keypti jörðina og hóf þar skógrækt
1946.
eiríkur, sem einnig er upphafsmaður Grasagarðsins
í Laugardal í Reykjavík, var fæddur og
uppalinn í Svarfaðardal og átti þar sterkar
rætur þótt hann settist að í Reykjavík.
Skógræktina á Hánefsstöðum hóf
hann með því að reisa mikla girðingu um
reitinn og var svo vandað til þess verks að nú,
meira en hálfrii öld síðar, er sú
girðing í fullu gildi.
Næsta áratuginn eða svo flutti Eiríkur með
sér frá Reykjavík plöntur sem hann og
fjölskylda hans gróðursettu á Hánefsstöðum
og kennir þar ýmissa grasa. Alls var í hans
tíð plantað 94.633 plöntum í þessa
12 ha. lands.
Nyrst í skóginum útbjó Eiíkur
litla tjörn sem er mjög til prýði.
Árið 1965 ánafnaði Eiríkur Skógræktarfélagi
Eyfirðinga skóginum og tók félagið
þá við umhirðu hans. Eiríkur féll
frá 1981 og árið 1986, á 40 ára
afmæli reitsins, reisti fjölskyldan honum minnisvarða
sem sjá má á mynd hér til hægri.
Skógræktarfélagið átti jörðina
fram yfir 1980 að hún var seld að undanskildum skóginum.
Hánefsstaðaskógur hefur í síauknum
mæli laðað til sín fólk, enda frábært
útivistarsvæði, fjölbreytt og fallegt í
tignarlegu umhverfi.
Árið 1999 var undirritaður samningur milli S.E. og
Dalvíkurbyggðar um að Hánefsstaðaskógur
yrði útivistarsvæði Dalvíkurbyggðar
og hófst þar með nýr kafli í sögu
þessa merka skógar.
Skógræktarfélagið annast skipulag og yfirumsjón
framkvæmda en Dalvíkurbyggð greiðir kostnað
við þær og leggur til vinnuafl.
Nú þegar hafa verið lagðir göngustígar
og reist leiktæki í skóginum. Þá
hafa fjölmargar trjátegundir verið merktar meðfram
göngustígum og unnið er að frágangi á
grillaðstöðu á samkomusvæðinu.
Allir sem leið eiga um Svarfaðardal eru hvattir til að
gefa sér tíma til að ganga um skóginn á
Hánefsstöðum.
|
|

Hánefsstaðaskógur
í Svarfaðardal

Séð
inn Svarfaðardal úr skóginum

Á
leikvellinum á Hánefsstöðum

Á
skógardegi á Hánefsstöðum
Minnisvarði
um Eirík Hjartarson
|
|