Háls í Eyjafjarðarsveit
 
Kort af skógum

Kjarnaskógur

Leyningshólar

Háls


Garðsá

Vaðlaskógur

Laugaland

Miðhálsstaðir


Hánefsstaðir


Aðrir skógarreitir

Tímavélin
 

Landeigandi: Ríkissjóður
Umsjón: Skógræktarfélag Eyfirðinga
Stærð: 145 ha
Friðað: 1993-1998

Í árslok 1993 fékk Skógræktarfélagið jörðina Háls í Eyjafirði á leigu af ríkissjóði, en jörðin var þá nýlega lögst í eyði.
Tilgangur félagsins var að gefa skógræktarfólki kost á landi til skógræktar og strax var hafist handa við friðun landsins og skipulagningu þess.

Í fyrsta áfanga voru skipulagðar 37 spildur að stærð frá 1 upp í 3 ha og hafði þeim nánast öllum verið úthlutað til leigjenda 1996. Tveimur árum síðar var girðingin færð verulega út og nú stunda um 50 aðilar, einstaklingar, fyrirtæki, félög og stofnanir skógrækt á Hálsi.

Gerðir eru framlengjanlegir leigusamningar um hverja spildu til 40 ára. Leigu er mjög stillt í hóf en reiknað með að landið sé klætt skógi á leigutímanum.
Heimilt er að reisa lítil hús á spildunum, allt að 20 fermetra að flatarmáli, þó ekki eiginleg sumarhús.

Er skemmst frá því að segja að þetta framtak hefur mælst afar vel fyrir eins og þátttakan sýnir og tekist einstaklega vel til í framkvæmd.

Hálsverjar hafa gróðursett tugi þúsunda trjáa og landið er óðum að taka á sig svip ungskógar. Tvö hús eru risin og fleiri væntanleg, auk hjólhýsa og minni skúra.

Nú eru aðeins örfáar spildur lausar á Hálsi.


Saurbær

Um þessar mundir er verið að ganga frá samningum um leigu á óræktuðu landi jarðarinnar Saurbæjar, sem liggur að Hálsi. Þar munu bætast við um 150 ha lands til skógræktar og eru uppi áform um að leigja hluta þess lands til áhgafólks um skógrækt. Einnig er stefnt að landgræðsluskógrækt á Saurbæ.

 
Vorið 2002 ber 6 ára gamlan lerkiskóginn á Hálsi við himin (ef maður sest á jörðina...)




Skógrækrarmenn framtíðarinnar una sér hið besta á Hálsi. 23. júní 2002




Horft heim að Hálsi 1995





Frá fyrstu gróðursetningunni á Hálsi




Hvað ungur nemur...








 
Vefstjóri