Kort
af skógum
Kjarnaskógur
Leyningshólar
Háls
Garðsá
Vaðlaskógur
Laugaland
Miðhálsstaðir
Hánefsstaðir
Aðrir skógarreitir
Tímavélin |
|
Landeigandi:
Eigandi jarðarinnar Garðsár
Umsjón: Skógræktarfélag Eyfirðinga
Stærð: 7 ha
Friðað: 1931 og stækkaður nokkrum sinnum síðan
Hæsta tré 2000: Alaskaösp, gróðursett
um 1950, um 14 m
Fyrsta skógræktarverkefni Skógræktarfélags
Eyfirðinga, sem þá hét raunar enn Skógræktarfélag
Íslands, var friðun birkileifa í Garðsárgili
í mynni Garðsárdals þar sem Þverá
rennur á kafla í hrikalegu gljúfri.
Með þessari aðgerð hófs nýr kafli
í sögu skógræktar við Eyjafjörð.
Upphaflega var ekki fyrirhuguð þarna önnur skógrækt
en sjálfgræðsla birkis og árangur friðunarinnar
lét ekki á sér standa.
á árunum 1952 - 1971 voru þó gróðursettar
15.000 plöntur í Garðsárreit af ýmsum
tegundum og hefur margt dafnað þar prýðilega.
M.a. er í reitnum afar fallegur sitkagreniteigur.
Reiturinn er eins og aðrir skógar á vegum félagsis
öllum opinn en ekki sérlega greiðfær um þessar
mundir. Heimsókn í Garðsérreit er samt
nokkurrar fyrirhafnar virði því ægifagurt
er við skógi klætt gilið og mörg glæsileg
tré er þar að finna.
|
|

Haustlitir
í Garðsárgili

Skógarmenn
í Alaskaösp í Garðsárreit

Hávaxið
birki í Garðsárreit
|
|