Sagan
Stjórn S.E.
Starfsmenn
Lög S.E.
Hlutverk og markmið
Félagsaðild
Ásýnd Eyjafjarðar |
|

Í tilefni af 70 ára afmæli sínu árið
2000 gaf Skógræktarfélag Eyfirðinga út
bókina Ásýnd Eyjafjarðar.
Þetta er glæsilegt rit, 220 bls. í stóru
broti og ríkulega skreytt ljósmyndum.
Ritstjóri var Bjarni E. Guðleifsson og ritstjóri
myndefnis Aðalsteinn Svanur Sigfússon.
Höfundar eru fjölmargir.
Bókin segir sögu skóga og skógræktar
við Eyjafjörð frá landnámi til loka 20.
aldar með áherslu á þátt félagsins.
Bókin fæst hjá Skógræktarfélaginu
á kr. 4.200,- og í nokkrum bókaverslunum á
Akureyri og í Reykjavík.
|
|
Meðal
efnis í bókinni eru eftirfarandi kaflar:
Saga eyfirskra skóga
Eyfirskir frumkvöðlar
Umsagnir Flensborgs
Reyniviðurinn í Skriðu
Lystigarður Akureyrar
Stofnun Skógræktarfélags Eyfirðinga
Störf félagsins 1968-2000
Skógarreitir
Útivistarsvæðið í Kjarnaskógi
Skjólbeltarækt
Nytjaskógrækt
Norðurlandsskógar
Grisjun og skógarhögg
Merkistré |
|