rfre
3 mars 2009
Troðnar skíðaleiðir
Trimmbraut, Naustaborgir og Skátakveðjan var troðin í dag. Færið frábært

5.2.2009

Gönguskíðaparadis Kjarnaskógi
Allar leiðir eru troðnar í Kjarnaskógi auk Hvammshringur, Hjallar og Brennivínsrúnturinn. Minnum á simsvari með upplysningar um skíðafæri 878 4050

 

24 óktober 2008

Glæsilegt Skíðafæri!
I dag og i gær var allar helstar leiðir tróðnar í Kjarnaskógi. Trimmbraut, Naustaborgir, yfir Hömrum (skátakveðjan), Brennivínsrúnturinn og inn í Hvammi. Bendurm mönnum af að leiðinn inn i Hvammur er svolitið erfitt vegna brattar brekkur. Mæli sérstaklega með Naustaborgir. Langt besta snjórinn er þár og fjólublá þúrrvax átti að géra undrarverki!.

skurdar

nam

gbh

rfre
18 januar 2008

ginz

Loksins loksins! Skíðafæri í Kjarna
Nægur snjór er i Kjarna til að renna sér á skiðum. Trimmbrautin er tróðin og sporlagt, og Naustaborgir er pakkað. Skógræktarfélag Eyfirðinga er buin að eignast öflugan snjósleða og sporleggjari (www,yellowstonetrack.com) sem leyfir okkur að tróða braut við aðeins 15 sm snjógrunnur. Á morgun 20 januar verður sporlagt bæði Trimmbraut og Naustaborgir.

Minnum á símsvarann þar sem gefnar eru upplýsingar um gönguskíðafærið í Kjarna S: 878-4050


desember 2007



Jólatrjáasalan í fullum gangi

Eins og undnfarna áratugi gengst SE fyrir sölu jólatrjáa og ýmiss konar varnings tengdum jólahaldi og skreytingum.
Megináhersla er eins og síðustu ár lögð á ævintýraheiminn í Kjarna. Félagið býður upp á fjölbreytt úrval jólatrjá, greina og varnings til skreytinga.

Í Kjarnaskógi er opið alla virka daga til jóla kl. 12:00-18:00 og helgina 15 og 16 desember kl 12:00-16:00

Fylgist með auglýsingum í Dagskránni um nánari tilhögun.



haustið 2006



Skíðafæri í Kjarna
Í dag, 25. október, hefur snjóað nóg til að hægt sé að fara á gönguskíði í Kjarna. Snjósleðinn var dreginn fram og trimmbrautin, sem er um 2,2 km var troðin. Nú verður að vona að gróðurhúsaáhrifin geri okkur ekki þann óleik að veturinn verði of hlýr fyrir skíðaiðkun á láglendi.

Minnum á símsvarann þar sem gefnar eru upplýsingar um gönguskíðafærið í Kjarna S: 878-4050






Grisjað í Naustaborgum
Á haustin gefst oft ágætur tími til að grisja og er þessa dagana er verið að grisja lerki í Naustaborgum.
Nú er verið að fara í gegnum lerki frá Altai sem plantað var 1985 og verður að teljast hörmulega ljótt.
Á þessu svæði er verið að grisja úr um 3000 plöntum á ha niður í 1.000 -1.200 tré á ha.
Með þessu móti standa eftir þokkalegir einstaklingar og væntalega þarf ekki að grisja þarna aftur næstu 20 árin.





MÝRIN – Endurheimt votlendis
Í Naustaborgunum miðjum er allstór mýri, um 4 ha, sem Naustaflói heitir og í flóanum miðjum er lítil tjörn sem kallast Hundatjörn. Eins og tíðkaðist uppúr miðri síðustu öld var reynt að þurrka þessa mýri til að nýta mætti hana til beitar. Grafnir voru skurðir á flesta kanta í kringum flóann til að ná vatninu burt. Þetta skilaði þokkalegum árangri en Hundatjörnin þornaði þó aldrei að gagni og var greinilegt að fuglar sóttu mjög í tjörnina. Nú í sumar hafa verið hafnar framkvæmdir við að endurheimta votlendið í Naustaflóanum. Stíflaðir voru þeir skurðir sem voru að veita vatni frá svæðinu og lítill lækur sem búið var að veita frá svæðinu var veitt inn á svæðið aftur. Greinilegt er að vatnsborð flóans hefur hækkað og nú þegar er fuglalíf blómlegt í pollunum sem hafa myndast en breytingar á gróðurframvindu geta þó tekið áratugi.


8. september


Ljóðaðagangan framundan

Laugardaginn 16. september nk. verður hin árlega Ljóðaganga farin, að þessu sinni í Garðsárreit í Eyjafirði.
Að göngunni standa, auk Skógræktarfélagsins, Amtsbókasafnið og Populus tremula. Lagt verður upp með rútu frá bókasafninu kl. 14 og áætlaða að koma til baka á fimmta tímanum.
Skógurinn verður kynntur, en um hann hafa verið lagðir göngustígar undanfarið og upplýsingaskilti komið fyrir. Valinkunnir listamenn og lesarar munu flytja kvæði í skóginum fyrir göngufólk í tali og tónum.
Ketilkaffi að vanda og engin gjaldtaka. Allir velkomnir.





28. ágúst

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands

Um nýliðna helgi var haldinn aðalfundur SÍ í Hafnarfirði, en Skógræktarfélag Hafnarfjarðar heldur upp á 60 ára afmæli sitt á árinu. Skógræktarfélag Eyfirðinga átti nú í fyrsta sinn fimm fulltrúa á fundinum, þar sem félagsmenn í SE eru nú orðnir á fimmta hundrað talsins. Eyfirðingar létu til sín taka á fundinum; lögðu fram tvær tillögur sem báðar voru samþykktar óbreyttar og framkvæmdastjóri félagsins, Jón Kr. Arnarson, var kosinn í varastjórn SÍ.




11. ágúst

Unnið í Leyningshólum

Tvo síðustu daga var verið að draga út lerkidrumba úr Leiningshólum en þar var unnið við grisjun síðasta sumar.   Lerkiskógurinn er um 0,5 ha og var plantað á árunum 1953 - 1960. Þetta er óvenju beinvaxinn lerkiskógur með yfirhæð um 12 m.

10. ágúst

Rósirnar skarta sínu fegursta

Undanfarin   15 ár hefur mikið verið gróðursett af sjaldséðum og blómstrandi trjá- og runnategundum í Kjarna og alls er nú búið að planta um 180 tegundum. Þetta hefur gert skóginn áhugaverðari til útivistar enda er hann nú fallegri á að líta; hann ilmar betur, fuglar geta náð sér í ber og áhugamenn um trjárækt eru alltaf að sjá nýjar og nýjar plöntur blasa við. Núna fyrripart ágústmánaðar má víða sjá blómstrandi rósir eins og þessa fjallarós í Brunnárgilinu.



3. ágúst 2006



Leyndardómar birkiskógarins

Sunnudaginn 13. ágúst verður farin skógarganga um Leyningshóla í Eyjafirði.
Gangan hefst í hólunum klukkan 13:00.
Skógarmenn munu leiða gesti um þennan unaðsreit Eyjafjarðar, þar sem eru einu skógarleifar héraðsins sem mynda samfelldan skóg. Umhverfi og náttúra eru stórbrotin og athyglisverð og þar má lesa þróun villts birkiskógar beint í landinu.
Fulltrúar frá verkefninu „Lesið í skóginn“ verða á staðnum.
Ketilkaffi að hætti skógarmanna eins og venjulega.





15. júlí 2006



Pöddulíf

Laugardaginn 15. júlí leiddi Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur 30 áhugasama þátttakendur í allan sanleikann um pöddur í Kjarnaskógi. Fyrr í vikunni hafði Bjarni sett út fallgildrur til að veiða í kvikindin, sýnunum var safnað saman í göngunni og var afraksturinn skoðaður í víðsjám að göngu lokinni. Var það mál manna að þetta hafi verið bæði fróðleg og skemmtileg ganga.



Nýtt leiktæki

Í dag var sett upp nýtt leiktæki á Kjarnavelli og kemur það í staðinn fyrir eldra tæki sem þar var. Tækið er lítill þríhyrndur klifurveggur sem ungir jafnt sem aldnir ættu að geta haft gaman af.



Samgöngubætur í Brunnárgili

Síðustu daga hefur verið unnið við að setja ræsi í Brunná milli Lerkirjóðurs og Rómantíska rjóðurs. Gilið á þessum stað hefur löngum þótt erfitt yfirferðar og alveg ófært fyrir fótafúna og fólk með barnavagna. Með tilkomu ræsisins verður göngustígurinn öllum fær og einnig opnast möguleikar að troða þarna skíðagöngubraut á veturna.



Góður bekkur

Þessi dásamlegi bekkur er smíðaður úr lerki úr Kjarnaskógi og er sérstaklega hannaður til að hvíla á lúin bein og njóta náttúrunnar. Bekkurinn er staðsettur við trimmbrautina skammt neðan við klósetthúsið Kjarnastekk.




5. júlí 2006


Upplýsingabæklingur um merk tré á Akureyri

Skógræktarfélag Eyfirðinga og Akureyrarbær hafa gefið út bækling um merk tré á Akureyri. Í bæklingum eru ljósmyndir og upplýsingar um 32 tré á Akureyri sem teljast merkileg fyrir einhverra hluta sakir. T.d. sjaldséð tré, gömul, mjög stór tré, sérlega falleg tré eða sérkennileg. Í bæklingnum er einnig kort sem sýnir staðsetningu trjánna.

Í tilefni af útgáfu bæklingsins veruður farin fræðsluganga um miðbæ og Norðurbrekku fimmtudaginn 6. j úlí kl. 20:00 og lagt upp frá Ráðhústorgi.




3. júlí 2006



Vinnuskólinn lýkur við gróðursetningu sumarsins

Glaðbeitt ungmenni setja niður 22.879. plöntu sumarsins og ljúka þannig skógarplöntugróðursetningum ársins. Nú í sumar hafa 9 sextán ára ungmenni frá vinnuskóla Akureyrar gróðursett norðan við Glerá undir stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga. Gróðursetningin gekk vel og var plantað 10 tegundum trjáa og má þar nefna tegundir eins og lindifuru, bergfuru, hengibirki, gráelri og birki. Eiga þessar plöntur vafalaust eftir að vaxa og dafna og mynda fagra umgjörð um Akureyri.




18. júni 2006


Jónsmessukvöld í Kjarnaskógi

Um 800 manns lögðu leið sína í blíðskaparveðri í Kjarnaskóg á Jónsmessukvöld til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sem þar var boðið uppá. Vítt og breitt um skóginn var verið að skemmta gestumog fræða. Má þar nefna tónlist og ljóð, ketilkaffi og plöntugreiningar, jurtalitun, fornleifauppgröft, leiki og föndur úr afurðum skógarins, sýningu á verkum leikskólabarna og afrakstur úr smiðjum sem voru í gangi dagana á undan.





18. júni 2006





Nýr drykkjarfontur tekinn í notkun

Í dag var nýr drykkjarfontur tekinn í notkun og er hann staðsettur við aðaltrimmbrautina, ofan bílastæðis við Kjarnakot. Drykkjarfonturinn var færður Akureyrarbæ að gjöf í minningu Helgu Alice Jónhanns frá ættingjum, nemendum og vinum og tók bæjarstjóri á móti gjöfinni. Drykkjarfonturinn er úr stuðlabergi og mun koma í góðar þarfir þegar þreyttir trimmarar þurfa að svala þorstanum.








26. maí 2006


Garðplöntusalan opnar

Gróðrarstöðin í Kjarna hefur opnað garðplöntusöluna. Salan verður opin alla daga frá klukkan 10-18.

Í vor verðum við með mikið úrval af sumarblómum á góðu verði. Auk þess er mikið framboð af nýjum og spennandi tegundum trjáa og runna. Sérstök áhersla verður lögð á harðerðar rósa tegundir og yrki, meðal annars harðgerðar kanadískar rósir.

Nánari upplýsingar um nýjar tegundir verða birtar hér á vefnum þegar salan verður komin í fullan gang eftir maí hretin. Þá verða einnig kynnt sértilboð á blómum og runnum.







23. september 2005





Í kvöld var haldið kveðjuhóf til heiðurs tveimur höfðingjum sem yfirgáfu stjórn SE sl. vor.

Það voru þeir öðlingar Magnús Stefánsson frá Fagraskógi, sem setið hefur í stjórn félagsins lengi og árum saman sem varaformaður, og Vignir Sveinsson sem vermdi stól formanns félagsins á árunum 1991 -- 2005.
Heiðursmönnum þessum voru afhent skjöl með þökkum félagsins fyrir mikil og gifturík störf. Jafnframt var þeim hjónum Vigni og Valdísi Gunnlaugsdóttur afhentur gripur til minja, hannaður og smíðaður af stjórnar- og starfsmönnum félagsins; birkilaufin fjögur úr merki SE. Það var Haukur Karlsson sem vann þá handavinnu af sinni alkunnu snilld.

Aldrei verður nógsamlega þakkað það starf sem unnið hefur verið innan félagsins síðustu áratugi og engin tilraun gerð hér til að bæta úr þeim skorti. Magnúsi og Vigni eru færðar bestu kveðjur og þakkir, við vitum að þar eigum við hauka í horni.







18. september 2005

Ljóðagangan 2005



Í dag, sunnudaginn 18. september, var hin árlega Ljóðaganga farin, að þessu sinni í Fagraskóg.
Með fræðslu, ljóðalestri og söng var Davíðs Stefánssonar minnst á hans bernskuslóðum, en í ár eru 110 ár liðin frá fæðingu skáldsins.
Farið var með hópferðabíl frá Amtsbókasafninu og ekið undir leiðsögn Erlings Sigurðarsonar sem leið liggur í Fagraskóg.
Þar tóku við heimamenn í Fagraskógi og Stefán bóndi Magnússon tók á móti gestum og kynnti minningarlunndinn og minntist skáldsins. Þórunn Ólafsdóttir , Rúnar Sigþórsson og Sigurður Heiðar Jónsson lásu úr ljóðum Davíðs. Hildur Tryggvadóttir söng við undirleik Arnórs Vilbergssonar nokkur lög við ljóð Davíðs og Kristján Pétur Sigurðsson söng Capri Katarina án undirleiks - það hefur hann raunar gert í öllum ljóðagöngum sem farnar hafa verið til þessa við góðan orðstýr en aldrei verið meria við hæfi en nú á æskuslóðum Davíðs. Kynnir var Hólmkell Hreinsson, amtsbókavörður.

Þátttaka var prýðileg í hægum norðan vindi, þéttri rigningu og kulda. SE yljaði gestum með nýsoðnu ketilkaffi og bakkelsi og Populus tremula kryddaði kaffið með kúmenbraðgi.

Ljóðagangan var að þessu sinni samstarfsverkefni Amtsbókasafnsins, Skógræktarfélagsins og Populus tremula ásamt heimamönnum í Fagraskógi. SE þakkar samstarfið!og bendir á að hugtakið regnskógar hafa nú fengið nýja og norðlægari merkingu...




10. september 2005


Draugar í Kjarnaskógi á Jónsmessunótt...

Fjölbreytt félagsstarf

Það sem af er árinu hefur félagsstarf SE verið afar blómlegt og svo verður áfram í tilefni af 75 ára afmæli félagsins.
Þegar hafa verið farnar nokkrar skógargöngur; Jónsmessuhátíð í Kjarnaskógi, skógardagur í Kristnesskógi og sveppaganga á Dagverðareyri, auk fræðslukvölda í Kjarnaskógi. Framundan er Ljóðaganga í Fagraskógi til heiðurs Davíð Stefánssyni, þar sem SE er í samstarfi við Amtsbókasafnið á Akureyri og Menningarsmiðjuna Populus tremula.
Einnig er unnið að útgáfu bæklings um merk tré á Akureyri sem koma mun út á allra næstu dögum og verður kynntur sérstaklega.







8. september 2005



Samningur um Saurbæ

Í dag var undirritaður leigusamningur milli SE og Landbúnaðarráðherra um óræktað land Saurbæjar í Eyjafirði, samtals 151 ha lands. Undir samninginn rituðu Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Sigrún Stefánsdóttir formaður SE við athöfn í Kjarnaskógi.

Með samningi þessum er loks í höfn mál sem unnið hefur verið að um 5 ára skeið innan SE og ástæða til að fagna þessum áfanga.
Fyrirhugað er að framleigja landspildur til félagsmanna líkt og gert hefur verið á Hálsi undanfarinn áratug með góðum árangri. Vonit standa til að úthlutun landspildna geti hafist að ári.




27. og 28. ágúst 2005


Margrét í Dalsmynni




Aðalfundur SÍ

SE átti fjóra fulltrúa á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands sem haldinn var á Lýsuhóli á Snæfellsnesi um helgina í boði Skógræktarfélags Heiðsynninga. Fulltrúar að þessu sinni vour Sigrún Stefánsdóttir formaður, Jón Kr. Arnarson, Aðalsteinn Svanur Sigfússon og Kristín Magnúsdóttir.
Fundurinn var átakalaus og vel heppnaður í alla staði eins og við var að búast þar sem stórsnillingurinn Margrét Guðjónsdóttir í Dalmynni, formaður SH, hélt um stjórnartaumana.


24. maí 2005

Aðalfundur SE

Aðalfundur SE var haldinn í kvöld, 24. maí, í Kjarnaskógi.
Á fundinum kom m.a. fram að tap varð nokkuð af rekstri félagsins á síðasta ári, eða rúmar tvær og hálf milljón króna en horfur á bjartari tíð framundan.
Fram kom einnig að samningar við Landbúnaðarráðuneyti um leigu á óræktuðu landi Saubæjar í Eyjafjarðarsveit eru nú á lokastigi.

Nokkur mannaskipti urðu í stjórn félagsins þar sem úr henni gengu á fundinum bæði Magnús Stefánsson varaformaður, sem setið hefur í stjórn á annan áratug, og Vignir Sveinson sem verið hefur formaður félagsins síðustu 14 ár og samfellt 18 ár í stjórn þess. Félagið þakkar þessum heiðursmönnum báðum mikil og gifturík störf í þágu félagsins og óskar þeim velfarnaðar.
Í þeirra stað voru kjörin í stjorn Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir og Ólafur Thoroddsen.

Að aðalfundi loknum ný stjórn saman og skipti með sér verkum. Sigrún Stefánsdóttir tekur sæti formanns, Bjarni E. Guðleifsson varaformaður, Óskar Gunnarsson ritari, Ólafur Thoroddsen gjaldkeri og Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Herdís Gunnlaugsdóttir og Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir meðstjórnendur.





11. maí 2005

Stórafmæli

Skógræktarfélag Eyfirðinga er 75 ára í dag!
Þetta elsta starfandi skógræktarfélag landsins er þrátt fyrir þennan aldur á besta skeiði og enn í fullum vexti - lærdóm tökum við af trjánna dæmi.

Afmlinu er fagnað með fundi á Hótel Kea kl. 20:00 með fyrirlestrum, bakkelsi og söng að hætti skógarmanna.

S.E. óskar félagsmönnum og Eyfirðingum öllum til hamingu með afmælið.